Leita í fréttum mbl.is

Láttu ekki taka þig með trukki.

Ég vaknaði 6:45 og mikið ofsalega leið mér vel, útsofin og krumpuð. Ég vakti Kormák, hann var ekki alveg tilbúinn að vakna, en það tókst fljótlega með smá djóki í honum og það endaði með því að hann fór hlæjandi á fætur. Ég sagði honum að þetta væri yndislegur dagur og mér þætti gott að vakna svona hamingjusöm og að ég elskaði hann alveg milljón...... hvað haldið þið að krakkaormurinn hafi sagt ??? Hann sagði " af hverju ferðu ekki í þáttinn hjá Dr. Phil ? "  Kannski horfir hann aðeins of mikið á sjónvarp....... svo var hann að tala um að ég hefði aldrei vaknað svona skemmtileg með honum og aldrei verið komin á fætur á undan honum. Það er greinilegt að mín andlega líðan er öll að koma til. Jæja, hann er farinn í skólann sæll og glaður.

ækljh

María og Hjörleifur koma í dag, ég verð að viðurkenna að ég hlakka ansi mikið að fá þau, enda hef ég ekki séð ömmustrákinn minn í einhverja daga, það er amk orðið allt of langt síðan ég sá hann. María ætlar að hjálpa mér og ég passa elksu Hjörleif á meðan. Hún ætlar að taka fyrir mig vaskaskápinn, baðherbergið og fl. í gegn og skúra hérna út fyrir mig, ég er svo asskoti léleg búin að vera síðustu daga/vikur í skrokknum.

momaeli

Enn er ekkert að gerast í svalarmálunum hérna, ég ætla að hringaj í Félagsbústaði í dag og kanna hvernig málin standa, þarf líka að láta vita að útihurðin lokast ekki og það er ekert grín þegar verið er að kveikja í stigagöngum í blokkum hérna í kring. Held samt eða vona að það sé eithvað að róast þetta action sem búið er að vera í gangi hérna undanfarna vikur.

wash-cat

Ætli það sé ekki best að hætta þessu bloggeríi í bili, og kannski gefa strákunum mínum morgunmat og knúsa þá svo aðeins í klessu.

Eigið góðan dag elskurnar. Bestu kveðjur frá Lindu litlu, Tuma og Patta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er búinn að lesa - Góðan daginn - Ég fékk verk í kjálkann þegar ég sá myndina af Lindu piparmintur... mig langar í svona og það er skrítið að ég muni eftir bragðinu.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 31.3.2008 kl. 08:49

2 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Ég vaknaði EKKI svona kát eins og þú í morgun,ég fór öfugu megin framm úren er orðin kát núna enda komin hádegi...

Frábært að þér skuli líða svona vel,og ert hamingjusöm,það kom að því að líf þitt breyttist til hins betra kéllingin mín

Guðný Einarsdóttir, 31.3.2008 kl. 12:44

3 Smámynd: Helga Dóra

Aumingas kisulóran

Helga Dóra, 31.3.2008 kl. 17:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband