Leita í fréttum mbl.is

Prinsinn á hvíta hestinum.

Halló Halló Halló !!! Var að koma heim og klukkan er að verða 4, er búin að vera að vinna síðan klukkan 6. úfffff... svo fer ég aftur að vinna 11:45 á morgun.

Vitið þið hvað !?!???! Ég hitti draumaprinsinn minn í kvöld.... vá hann er svo sætur, skemmtilegur, kurteis, kammó.... bara name, hann er æði!! Hann kom sko á barinn og hann æltar að koma á morgun að horfa á landsleik Íslands á móti Pólverjum. Vá hvað maðurinn er mikill draumur, shit, ég verð að giftast honum. Hann kynnti sig og spurði hvað ég héti... svo spurði hann mig hvenær ég væri fædd og auðvitað sagði ég 1971 hann gapti og sagði nei í alvöru, hann hélt að ég væri "78 model...... ég varð audda að segja honum að ég væri amma, þá duttu augun í honum á gólfið og ég stökk af stað og tók þau upp og rétti honum. Kræsturinn, ég er ástfangin.. Samt er einn galli... nei, hann á ekki kærustu... ó mæ god.. hann er 25 ára!!!!

Ég gæti næstum verið mamma hans. Tengdasonur minn er 5 árum eldri en hann. Þar með fór draumurinn um riddarann á hvíta hestinum fyrir vísindin.

Jæja.... annars ætti ég ekki að sitja hérna við tölvuna, þarf að mæta í vinnu eftir 8 tíma. Verð að hendast í rúmið. Varð bara aðeins að losa um..... hann er svoooo mikið krútt.

Jæja.,... góða nótt. Dreymi ykkur vel, það ætla ég að gera og ég veit hvað mig dreymir hehehehehehehe

gúdd bæ and over and out.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Linda: Í guðanna bænum farðu ekki að dúlla þér með agúbarninu.  Þetta er blautt á bak við eyrun.

Segi svona.  En njóttu dagsins.

Jenný Anna Baldursdóttir, 31.5.2008 kl. 09:30

2 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Til hamingju elsku Linda mín og láttu ekkert stoppa þig

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 31.5.2008 kl. 17:29

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Passaðu þig á litlu börnunum... segi bara svona.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 31.5.2008 kl. 19:12

4 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

ÚLALA  Bara búin að hitta sætan gutta,vertu ekkert að pæla í aldrinum  Ha,ha allavega ekkert ólöglegt við einn 25 ára,þú tékkar allavega á honum Linda mín,ég væri alveg til í að hafa einn svona ungan

Katrín Ósk Adamsdóttir, 31.5.2008 kl. 22:37

5 Smámynd: Dóra Maggý

Blessuð vertu,allt í góðu ef hann er þroskaður miða við aldur,allt í lagi að vera opin fyrir nýjungum,ef þú hittir hann aftur,vertu þá ekkert að forðast hann og ekki kannski alveg gleypa hann,kynnast honum á rólegum nótum,kannski er hann sá rétti,en við látum sjá,þú leifir okkur kannski að fylgjast með...knússsss......  alltaf gaman að lesa bloggið þitt

Dóra Maggý, 31.5.2008 kl. 22:54

6 Smámynd: Svetlana

þú veist að það er faraldur á meðal ungra karlmanna? Að komast í kynni við ''eldri'' konu

Svetlana, 1.6.2008 kl. 01:43

7 Smámynd: Linda litla

Nákvæmlega.... þessum ungu langar alltaf að vera með "eldri konu" kommon.... ég þoli ekki þetta orð "eldri". Ég er nú ekki svo gömul.

EN drengurinn er 25 ára.... hann er 5 árum YNGRI en tengdasonur minn. En hann kom a.m.k. að horfa á handboltann í dag og koma svo aftur í kvöld.... hitti hann svo kannski eftir hálfan mánuð þegar ég kem næst

Linda litla, 1.6.2008 kl. 02:46

8 Smámynd: Dísaskvísa

Go for it!!!

Ég gerði það og það er bara fínt - verðum að yngja þetta upp til að sjá fyrir okkur í ellinni hehe!!

Dísaskvísa, 2.6.2008 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband