Leita í fréttum mbl.is

Ég sá gíraffa !!!!!

Ísbirnir ísbirnir ísbirnir ísbirnir....... fólk sér ekkert orðið annað nema ísbirni. Er fólk svona hrætt, eða hvað er málið ? Heldur fólk sem er á þvælingi inn á fjöllum að hvítt sé ísbjörn ? Eitthvað hlýtur þetta að kosta, landhelgisgæslan og lögreglan gerir ekkert annað en að leita af ísbjörnum út um allt land. Heldur fólk að það sé eins með mýsnar og ísbirnina, ef að þú sérð eina mús þá eru þær 100, þá ef að þú sérð einn ísbjörn þá er hann út um allt að kanna landið ??? Er orðin frekar þreytt á þessum ísbjarna fréttum. Hvernig væri að fólk myndi tilkynna að það hafi séð gíraffa á Þverárfjalli eða á Hornströndum ??

untitled

Jæja, annars er helgin sem af er henni búin að vera fín. Ég ætla að vera myndarleg á heimilinu í dag og taka svolítið til og svo meiri þvott. En ég er einmitt búin að vera að þvo síðan ég kom heim. Við fórum í IKEA í gær ég María, Hjörleifur, Kormákur og Skjöldur. En þar fjárfesti ég í heilsukodda sem kostaði vel á fimmta þúsund, mig hefur langað lengi í þennan kodda og lét það eftir mér í gær í að kaupa hann til að fullkomna hjá mér nóttina. Núna sef ég með æðislegan heilsukodda, stóra pulsu undir hnésbótunum og með súrefnistækið..... getur ekki verið betra.

Jæja.... best að hendast í að gera eitthvað gagn hérna. Þangað til næst, hafið það gott elskurnar mínar.

Kv. Linda litla hamingjusama í helgarfríi.


mbl.is Ísbirnir á Hornströndum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Hafðu góðan daga Linda mín.

Kveðja Guðrún INg

Aprílrós, 20.7.2008 kl. 12:16

2 Smámynd: halkatla

þetta er hinn myndarlegasti gíraffi

halkatla, 20.7.2008 kl. 12:36

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég hélt kannski að þú hefðir farið á Stokkseyri, þegar ég sá fyrirsögnina.  Vertu dugleg að hvíla þig  Kisses

Ásdís Sigurðardóttir, 20.7.2008 kl. 15:16

4 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

Gamann að þú skyldir sjá gíraffa Linda mín

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 20.7.2008 kl. 18:01

5 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

Já já .

Gunnar Gunnarsson, 20.7.2008 kl. 21:00

6 identicon

HAHAHAHA vá hvað ég er sammála þér!! svo alltof mikið með þessa ísbirni fram og aftur.. ég var farin að dreyma martraðir um þá

en jámm hafðu það gott og gangi ykkur Kormáki vel í hollustunni;*

Harpa Steinarsdóttir (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 21:08

7 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Og hvar sást þú þennan giraffa humm niður í bæ??? það er svosem margt skrýtið í henni Reykjavík

Ég sá fullt af villidýrum á laugardagskvöldið upp á Brekkum

Guðný Einarsdóttir, 20.7.2008 kl. 21:31

8 Smámynd: Sigríður Þóra Magnúsdóttir

Það er fullt af skrítnum hlutum á Íslandi

Sigríður Þóra Magnúsdóttir, 20.7.2008 kl. 22:04

9 identicon

Gíraffar ??? Man ekki betur en þið Iða Brá hafið einhver samskipti átt við gíraffana á Þinganesi hér á árum áður, hmm ....

Takk annars fyrir stelpuna. B.kv. Sigurbjörg

Sys (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 22:19

10 Smámynd: Linda litla

SKO !!! Það var ekki ég !!!! Það var Iða Brá sem að vaknaði svo snemma, ég svaf á mínu græna.

Linda litla, 20.7.2008 kl. 22:59

11 identicon

Mikið vildi ég að það færu að sjást gíraffar hérna, hin vænstu og skemmtilegustu dýr  :)

alva (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 23:51

12 Smámynd: Anna Guðný

Ég keyrði ísbjarnarheiðina í kvöld og horfði vel í kringum mig. Sá bara nokkrar rollur. Var fegin því En börnunum mínum fannst það mjög spennandi þegar ég sagði þeim að þarna hefði annar björninn fundist um daginn.

Anna Guðný , 21.7.2008 kl. 00:49

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er gúrka, en ég sá villisvín.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.7.2008 kl. 14:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband