Leita í fréttum mbl.is

Vælublogg...

Halló og hæ hæ .

Vá það er sko langt síðan ég hef komið hingað inn og fyrirgefið mér elsku bloggvinir ég hef sko vanrækt ykkur.

Það er komið sumar það er alveg ljóst, Kormákur er búinn að vera 10 daga hjá pabba sínum og ég hef ekkert gert. Ég hef ekki farið úr höfuðborginni, veit ekki alveg hvað er sem hrjáir mig. Ég er búin að vera innilokuð þennan tíma, það er eins og mér finnist best að vera ein en það er eitthvað sem ég á ekki að gera. Ég hætti að vinna í vor að sökum verkja í baki, ég var alveg að fara með mig. Ég er þannig að ég kann ekki að róa mig eða minnka vinnu ég held áfram þangað til ég get ekki meira og ég fékk nóg fyrir rest. Ég gekk á verkjatöflum í vinnunni bruddi þær eins og smaries og lá svo bakk í einhverja daga á eftir. Nebb.. þetta gekk ekki lengur. En núna þegar ég er hætt að vinna (þessa litlu vinnu sem ég var í), þá reynir það á andlegu hliðina, ég leggst rúmið og fer ekki út. Þetta er skelfilegur sjúkdómur sem hrjáir mig, svo fæ ég auðvitað ekki laun ef að ég vinn ekki..... og fjárhagurinn reynir líka á andlegu hliðina. Ó mæ god... ég vil engum það svo illt að þurfa að vera svona. Þarf að rífa mig upp og fara austur og fá að vinna eitthvað smá, en kem mér bara ekki austur. Fullt af fólki þar sem vill að en ég er svo..... jú nó.

Jæja úr einu í annað. María, Rúnar og Hjörleifur minn koma heim á miðvikudaginn. Vá hvað ég hlakka til að hitta elsku ömmumúsina mína, sjá hann hvað hann hefur breyst og þroskast. Auðvitað hlakka ég líka til að hiotta Maríu og Rúnar, en ég veit að þau hafa ekkert breyst he he he he

Annars er ekkert að frétta hjá mér, það eina sem að ég tala um er vonleysi og peningaleysi, á aldrei pening fyrir neinnu, kemst aldrei neitt þar sema ð ég á aldrei pening og allt eitthvað ömurlegt. Samt er gott að setja niður þetta væl hérna, finn að það er einhver léttir.

Kannski ætti ég að fara að nota bloggið mitt til að létta á geðheilsunni ;o) Aldrei að vita, þið sleppið þá bara að kíkja hérna inn. Geri þetta ef að mér líður betur við það.

Ég hitti eina elsku vinkonu mína í júní. Hún kom til mín í heimsókn og það var æðislegt að fá hana, hún skilur þetta andlega þanna. Við sátum fram yfir miðnætti að kjafta, það var æðislegt. En svo hef ég ekki haft samband við hana aftur..... skil ekki af hverju ég geri svona, þegar ég finn hvað það var gott að tala við hana og hafa hana hjá mér. Svona get ég verið rugluð.... en úff sorry... ég veit að ég get vælt. Mundu bara að ef að þú þolir ekki vælið og kvartið og kveinið.... vertu þá bara ekkert að kíkja við ;o)

Elsku vinir mínir. Hafið það gott og njótið þess að vera til ;o)

p.s. ég hitti nú Gullu á laugardaginn hún sótti mig og ég gisti hjá henni í Kópavogi og það var sko góð tilbreyting. Matur og skemmtilegur félagsskapur :o)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: brahim

Sæl Linda. Las vælublogg þitt eins og þú kallar það. Það sem þú talar um í sambandi við geðheilsu þína en nefnir ekki á nafn, er nú einfaldlega Þunglyndi. Láttu mig þekkja það, ég hef verið svona í áratugi. Loka mig inni (hef t.d. ekki farið út síðan um áramót nema af nauðsyn, og þá til læknis og út í búð að kaupa brauð sem er uppistaðan í mínu fæði þar sem peninga skortir vegna mikilla skulda sem hafa hækkað gríðarlega eins og þú væntanlega veist að hefur gerst eftir bankahrunið. Þú ert þó heppin að því leiti að börn þín,fjölskylda og vinir hafa ekki snúið baki við þér, ólíkt því sem skeð hefur hjá mér.Þunglyndi getur orðið algert helvíti. Vona að þú náir þér sem fyrst og getir skroppið austur.

brahim, 6.7.2009 kl. 15:52

2 Smámynd: Linda litla

Ég veit að þetta heitir þunglyndi, hef staðið í þesu helv.. lengi.

Ekki gott að heyra hjá þér að þú hafir farið svona lítið út síðan um áramót. Það er mjög erfitt þegar fólk snýr baki við mann, en það er eitthvað sem að skeður þegar fólk veit ekkert um þennan sjúkdóm og skilur hann ekki. Það þyrfti að vera meiri fræðsla um hann, þar sem að það er mikið af fólki sem að þjáist og hefur ekki einu sinni nátengda sér til þess að leita til þar sem að þekkingin er svo lítil.

Linda litla, 6.7.2009 kl. 16:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband