Leita í fréttum mbl.is

Síðasta blómið...

Í morgun þegar við mæðginin erum komin fram, fer ég að hella á könnuna og bið Kormák um að ná í nestisboxið í töskuna síðan í gær, og segi honum að setja peru og vínber í það, að það verði það sama í nesti aftur í dag. Allt í lagi með það, hann opnar boxið og setur nestið í og segir svo Kormákur: mamma, ég borðaði ekki eitt vínber í gær. Ég: nú ? Var eitt skemmt ? Kormákur: það var eiginlega linara en "lundur". Ég: Linara en lundur ?? Hvað áttu við ? Kormákur: Æi, þetta er bara svona orðatiltæki mamma. hahahaha ég myndi segja að maður væri alltaf að læra eitthvað nýtt  hehe

bvsc01

Nú.. í dag er flottur dagur, 09 09 09 það er alltaf gaman af svona dagsetningum, ætli það séu einhverjir sem ætla að gifta sig í dag ? Nei, örugglega ekki. Enginn nennir að standa í því þessa dagana held ég. Talandi um þennan dag, þá dettur mér í hug Bubbi Morthens 06 06 06. Ég var einmitt að hugsa um hann í gær.... mér fannst Bubbi alltaf góður söngvari í  Das Kapital og Utangarðsmönnum sérstaklega. Hann á mörg góð lög bæði með þessum böndum og öðrum, en síðustu ár hefur tónlistin eitthvað farið í taugarnar á mér. Finnst hann verða lélegri með árunum, en þetta er auðvitað bara það sem mér finnst. Kannski fílaði ég betur "sukk"tímabilið hjá honum, þ.e.a.s þegar hann var í neyslunni. Það er reyndar eitt lag sem alltaf stendur upp úr með honum, það er "síðasta blómið". Mér finnst það alveg æðislegt lag, en þetta er lag sem aldrei er spilað í útvarpi, eða ekki að mér vitandi. Á hvaða útvarpsstöð væri helst að heyra lagið ? Rás 2 ? Þarf að reyna að redda mér þessu lagi, ef að einhver á þetta lag, þá myndi ég alveg þiggja að viðkomandi myndi kannski senda mér það í gegnum msn eða eitthvað.

Segi þetta gott í dag, enda færsluna á einni gamalli mynd af mér hehehe tekin á fermingardaginn ;o)

scannedimage-47_907388.jpg

Eigið góðan dag, það ætla ég að gera.

Kv. Linda litla með síðasta blómið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég hélt nú bara að þetta væri mynd af Kormáki, hefði bara verið gerð svona gömul.  Bubbi er oft mjög góður, sammála því. Hafðu það gott og fáðu þér nú eitthvað sem er "lundur" kannski ís.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.9.2009 kl. 15:26

2 Smámynd: Aprílrós

Hey, ég fekk hringingu frá syni mínum í Danmörku og hann var að tilkynna mér það að þau giftu sig í morgun. 09 09 09. Giftu sig í ráðhúsinu í DK.

Aprílrós, 9.9.2009 kl. 19:10

3 Smámynd: Linda litla

Æðislegt Guðrún, til hamingju með þau ;o)

Linda litla, 9.9.2009 kl. 21:41

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flott mynd af þér kona.  Svo glaðleg og geislandi.  Bubbi á mörg flott lög, en börnin okkar eru alltaf að koma okkur á óvart með skemmtilegum tilgátum og spakmælum.  Knús á þig

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.9.2009 kl. 08:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband