Leita í fréttum mbl.is

9 september, hver gleymir honum ??

Klæddu þig fallega hvert sme þú ferð, lífið er of stutt til að hverfa í fjöldann..... Paris Hilton hehehe

Föstudagur enn einu sinni, ég er farin að halda að það sé föstudagur í hverri viku bara. Annars á þetta bara að vera fín helgi hjá mér, ætla nú að reyna að myndast eitthvað með þessi húsgögn sem ég er búin að vera á leiðinni að færa ansi lengi, þvo þvott og gera eitthvað skemmtilegt. Ég býst við því að ég fari í smá hóf á laugardagskvöldið, en það er ekki alveg komið á hreint ennþá.

Ég er voðalega eitthvað bloggdauð..... veit ekkert hvað ég get skrifað um, en ég get samt alltaf talað endalaust hahaha aldrei skortur á umræðuefni hjá mér. 

Þegar ég hugsa um þennan dag 11 september, þá man ég hann mjög vel eins og örugglega flestir. Ég var nýbyrjuð að vinna í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki.... sá að fólk hópaðist inn í raftækjadeildina, og auðvitað fór ég að forvitnast eins og allir hinir. Þar fylgdumst við með þessum hræðilegu hryðjuverkum. Á hverju ári finn ég fyrir einhverri hræðslu um að það skei eitthvað, eins og þetta tilheyri deginum, eins og það eigi eftir að gera eitthvað meira. Auðvitað þarf maður að hafa áhyggjur af því, allt tek ég inn á mig...

Jæja, segjum þetta gott. Er með einhverja bloggstíflu. Hafið það gott elskurnar og eigið góða helgi.

Kv. Linda litla taugaveiklaða...


mbl.is Heimskulegustu ummæli Paris
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

9 september???

Maja (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 15:00

2 Smámynd: Aprílrós

En hvað er með 9 september ???

Aprílrós, 12.9.2009 kl. 07:24

3 Smámynd: Linda litla

Þetta átti að vera 11 september, María gerði nú ekki lítið grín að mér ;o)

Linda litla, 12.9.2009 kl. 09:06

4 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Sniðugt haha...............Þú mannst svo að mæta í réttirnar með hinum gimbrunum:)

Guðný Einarsdóttir, 13.9.2009 kl. 15:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband