Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
28.5.2008 | 13:14
En jólasveinninn ?? Er hann kannski með leyninúmer ??
Það er eins gott að litlu börnin séu þæg, annars hringja bara pabbi og mamma í jólaköttinn....... Var annars ekki alltaf sagt að ef maðru fengi ekki nýja flík fyrir jólin, þá færi maður í jólaköttinn ???
Ég ætti kannski að skella Tuma og Patta í símaskránna, það er aldrei að vita nema að einvherjum langi að hringja í þá, t.d. fyrri eigendum.
Og Grýla, Leppalúði og jólasveinarnir 13 ?? Veit einhver númerið hjá þeim ??
Jólakötturinn í símaskránni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.5.2008 | 10:12
Brennan á röngum stað á föngum tíma.
Er brennan ekki á röngum stað á röngum tíma í Eyjum þetta árið ?? Var hún inni í þetta skiptið og í Mai en ekki Ágúst.
Ætli Árni Johnsen hafi misst af þessari ? Enginn brekkusöngur í þetta skiptið ?
Það er náttla alveg rosalegt þegar svona bruni verður, vona bara að vestmanneyjingar hafi náð að bjarga sem flestu, eldurinn er hættulegur og fljótur að dreyfa sér.
Eldsvoði í Vestmannaeyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.5.2008 | 00:32
Löggan-hleranir-pólitík-flugvöllur-eldhúsdagsumræðan-Obama og fleira.
Alveg ótrúlegt.... þetta er sýnishorn af því sem að ég nenni ekki að blogga um. Allra síst PÓLITÍK..... skil hana ekki, veit ekkert um hana, get ekki fylgst með, þoli hana bara ekki. En samt er Guðni Minn Ágústson
og Jóhanna SIgurðardóttir mínir uppáhalds-stjórnmálamenn.
Ekki spyrja mig af hverju, vegna þess að þegar stórt er spurt er lítið um svör eins og þið vitið. Fréttir af hlerunum fyrir einvherjum tugi ára, flugvöllurinn..... hvert á hann að fara, á hann að fara, hvenær á hann að fara..... Halló, látið hann bara vera þar sem hann er. Eldhúsdagsumræðan... bla bla bla Obama og forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Úfffff... Nei, takk þetta er það eina sem að ég kem til með að blogga um þessi málefni. Ræði annars ekki svona hluti.
Er hreinlega ekki alltaf að fatta af hverju fólk nennir að lesa bloggið mitt, þar sem að það virðist vera eitthvað innantómt og óspennandi. Ég skammast yfir því hvað það er mikið af ómannlegu fólki í heiminum, hvað það er mikið af barnaníðingum, nauðgunum, misnotkunum o.þ.h. argast yfir því hér og verð alltaf reið yfir því.
Nú ég bulla yfir fræga fólkinu, annað hvort er ég hneiksluð á því eða ég finn til með því. Nú ég tala um vini mína og fjölskyldu, dýrin mín og meira að segja kynlífð mitt, núna veit nokkuð stór hluti af íslendingum að ég er með kynlíf á heilanum af því að ég hef ekkert stundað það svo lengi.
Það er ekki öll vitleysan eins.....
Elsku lesendur, hvað finnst ykkur um bloggið mitt... ÁN GRÍNS, tek öllu í þetta skiptið. Er eitthvað sem að má betrumbæta hér ?? Endielga setjið út á mig...
Skiljið efitr komment.... það er spennandi að sjá hverjir eru að fylgjast með mér. Það er allt í lagi að kvitta eins og einu sinni kommon....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
27.5.2008 | 17:36
Ófrískum unglingsstúlkum hefur fækkað.
Það er vonandi að fræðsla og umræða í skólum og á heimilum sé eitthvað að breytast.
þá er ég að tala um að ég eignast fyrra barnið mitt nýorðin 15 ára, svona lagað er ekki grín. 15 ára barn hefur ekki þroska til að eignast barn. Þegar ég var krakki þá var engin fræðsla í skólanum, engin kynfræðsla ekki neitt. Og heima fyrir var ekkert sagt, man meira að segja þegar að ég byrjaði á blæðingum 12 ára gömul að ég varð hrædd, vissi ekki hvað var að ske. Ég henti nærbuxunum mínum. Mín börn alast ekki upp í svona fávisku um okkur sjálf.
Það þarf meiri fræðslu, líka hjá ungum karlmönnum. Þeir ættu t.d. líka að ganga um með smokk í rassvasanum eða í veskinu.
Það er allt of mikið af einstæðum mæðrum hérna. Af einstæðum ungum mæðrum.
Færri ungar óléttar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
27.5.2008 | 15:30
Og hvað ? Er það dauðadómur að vera gay ?
Þó svo að Lindsay Lohan sé skotin í Samönthu Ronsons, er það dauðadómur ? Þó að hún sé þekkt má hún þá ekki girnast aðra konu ?
Ég sé ekki að það breyti nokkru hvort að við séum gagnkynhneigð eða samkynhneigð, við erum samt alltaf sömu manneskjurnar. persónuleikinn breytist ekkert við það að koma út úr skápnum.
Ég á gay vini og gay ættingja, það skiptir mig engu máli.
Við tengjumst þeim sem við elskum. Þessi mynd snertir færsluna ekkert, mér fannst hún bara svo krúttleg.
Lindsay Lohan komin með kærustu? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.5.2008 | 12:16
Hún er vöknuð.... en vildi hún vakna ?
Kerstin Fritzl er vöknuð úr dáinu, hún lá í dái í mánuð. Hvað tekur við núna ? Líf hennar hefur snarbreyst. Þegar hún var vakandi síðast var hún lokuð inni í kjallaraholu ásamt fjölskyldu sinni og aldrei komið út undir beran himinn. Skildi hún ekki vera hrædd við allt hjúkrunarfólkið, hún veit ekkert hvar hún er. Heimildarmaðurinn segir að Kerstin hafi ekki talað enn en bregðist við snertingu. Ekki er ljóst af hvaða sjúkdómi hún þjáist. Er þetta ekki frekar spurning um að ekki sé ljóst af hvaða sjúkdómUM hún þjáist ?? Það er búið að eyðileggja líf hennar, það er víst alveg öruggt að það er ekki eitthvað eitt sem hrjáir hana.
Kerstin Fritzl vöknuð úr dái | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.5.2008 | 08:31
Meiri viðbjóður í þessum heimi.
Fólkið sem sent er á vettvang til að aðstoða börn í löndum þar sem styrjöldum er nýlega lokið er að misnota þau, segja hjálparsamtökin Save the Children.
Fólk sem á að vera að hjálpa...... og eiga börnin að geta treyst þessu fólki ? Halda þau ekki að þeta sé gott fólk ?
Hvers vegna er öll þessi mannvonska í þessum heimi ? Hvers eiga þessi saklausu börn að gjalda, lífið hefur ekki verið dans á rósum hjá þeim og ekki er þetta að bæta eitt né neitt.
Ég þoli ekki svona fréttir...... hvers vegna er öll þessi mannvonska í heiminum ??
Börn kynferðislega misnotuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.5.2008 | 00:19
óprúttnir þjófar á ferð....
Jæja, hverju eigum við að stela ? Veit það ekki, sérðu eitthvað ?? Nei, en þú ?? Já nokkra kaffipoka og G-mjólk. Frábært, stelum því til að stela einhverju. Hvað er að ?? Er öllu stolið ?? Fær ekki eitthvað kaffi í einhverjum vinnuskúr að vera í friði ? Það hefur kannski verið búið að stela því úr vinnuskúrnum hjá pólverjunum mínum í síðustu viku, þess vegna voru þeir svo glaðir þegar ég bauð þeim upp á kaffi og kex.....
Þetta er einmitt einn pólverjinn sem er að vinna í blokkinni, hann var svo almennilegur og kammó og pósaði fyrir mig svo að ég gæti leyft ykkur bloggvinum mínum að sjá hvað hann væri flottur.
Jæja, góða nótt krúttin mín og ekki drekka kaffi fyrir nóttina. Það gæti haldið fyrir ykkur vöku.
Kaffiþyrstir þjófar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
26.5.2008 | 22:24
Dabbi og bensínstuldurinn.
Það er búið að vera svolítið um bensínstuld, ég las það um daginn að það væri verið að stela bensíni hjá Olís. Að þegar fólk væri búið að fylla á bílinn, þá brunaði það burt án þess að borga. Hvað er málið ?? Er þetta af því að bensínið er orðið svona hátt eða er þetta bara einvher bensínstuldarbóla ??
Hvað haldið þið annars..... ætli Dabbi standi fyrir þessu ??
Alveg örugglega ekki, varð bara að finna einhverja ástæðu til þess að geta sett þessa mynd hérna inn af honum. Mér finnst hún SVOOOOOO fyndin.
Gúdd bæ
Eldsneytisstuldur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.5.2008 | 14:02
Hei þið kláru bloggarar, hjálpið mér.
Málið er það að ég ég keypti mér 2 blóm um helgina. Annað var drekatré, en ég hef ekki hugmynd um hvað hitt er, ég keypti þetta ekki í blómabúð svo það var ekki merkt. Það er erlendur starfskraftur sem afgreiðir mig og hún hafði ekki hugmynd um hvað þetta héti.
Ekki væri líka verra ef að ég gæti fengið að vita eitthvað um þetta blóm eins og t.d.
blómstrar það ?
Fælir það í burtu flugur ?
Verður það stórt ?
Á að vökva það mikið eða lítið ?
Einhverjar uppl. takk ef að þið vitið eitthvað um það.
þeink jú....over and out.
EINHVER......plís....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 232138
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- bifrastarblondinan
- doramaggy
- halkatla
- annabjo
- diddan
- ragjo
- greenbrown
- ingunnjg
- katja
- gullaeinars
- siggathora
- loathor
- komaso
- addabaldurs
- raggafg
- ollana
- gelgjan
- kruttina
- arijosepsson
- asthildurcesil
- beggita
- biddam
- brandurj
- brybba
- skordalsbrynja
- tungirtankar
- jyderupdrottningin
- rannug
- topplistinn
- gydadrofn
- osland
- hronnsig
- hugarafl
- danjensen
- kliddi
- ijt
- keli
- jonaa
- ktomm
- markusth
- rebekkarut
- roslin
- sisvet
- bogatun8
- sikklida
- scorpio
- svala-svala
- svetlana
- taraji
- skog3
Af mbl.is
Innlent
- Hlíta niðurstöðu um hleðsluáskrift
- Sorglegt athæfi sem á ekki að endurtaka sig
- Flutningaskip tók niðri í Fáskrúðsfirði
- Sala á Íslandsbanka geti skilað 100 milljörðum
- Þrítugsafmælið ákveðin endurkoma
- Björgunarsveitir aðstoða mann í sjálfheldu
- Passíusálmarnir lesnir í 16. sinn
- Hraunið rennur lengra en það ætti að gera