Leita í fréttum mbl.is

Góðar batafréttir..

Búin hjá doksa.... og ég á bataleið. Lyfin eru að gera kraftaverk, en ég má ekki vera á þeim lengi út af sykursýkinni. Á að taka þær í 7-10 daga í viðbót og þá vonast hann að ég verði orðin eðlileg, eða eins eðlileg og ég get orðið hehehe ef ekki þa verð ég að taka þau áfram þar til ég næ að verða eins og ég á að vera...... og þá erum við að tala um grímulausa :/

 Þá kemur að því að trappa mig niður af öðru geðlyfinu mínu. nóg að gerast framunadn hjá mér... úfff. En ég má a.m.k. ekki fara að vinna fyrr en ég er búin að klára þessa 7-10 daga, þá fer ég aftur til hans og metur mig upp á nýtt, svo er aldrei að vita hvernit niðurtröppunii gengur, verð að viðurkenna það að ég fæ smá kvíða að hugsa til þess sem framundan er.

Ég verð að vera dugleg og reyna að virkja mig eitthvað meira, fara í heimsóknir, út að labba, í sund.... bara virkja mig. Ég ætla líka að kíkja reglulega í vinnuna á félaga mína þar, verð að viðurkenna að ég sakna þeirra. Býst við að rölta þangað á  morgun :)

Ég gleymdi að segja ykkur að ég fékk úr langtíma blóðsykursmælingu á föstudag og hún kom fullkomnlega út, sem segir það alveg staðfest að samheita lyfin voru EKKERT að gera fyrir mig og það virkar 100 % eftir að ég fór að sprauta mig. Er ekkert smá áægð með það. Talandi um það.... er hvorki búin að sprauta mig né taka lyfin í  morgun :/  Ætti að skella mér í þetta núna, nóg skrifiútrás hjá mér í bili.

Farið vel með ykkur lovjús..
Kv. klikkaða kjéllingin :/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott að heyra Linda mín til hamingju með þetta.  Það veit enginn hvað átt hefur fyrr en misst hefur og enginn er glaðari en sá sem hefur farið heljarferðina niður og komist upp aftur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2012 kl. 11:48

2 Smámynd: Linda litla

Þú ert alltaf jafn yndisleg elsku Ásthildur :o)

Linda litla, 30.8.2012 kl. 02:00

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.8.2012 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband