Leita í fréttum mbl.is

Samhjálp í Stangarhyl

Sæl verið þið elskurnar mínar.

Gærdagurinn var góður hjá mér, ég skellti mér með hinum fjöryrkjunum á stefnumót við Jóhönnu eins og ég var búin að minnast á hér í gær. Að því löknu hentumst við í IKEA ég,Vigga og María. Skemmtum okkur mjög vel þar, en þar var spreðað í kommóðu, myndaramma, klósettbursta, sallattöng og ýmislegt fleira og að sjálfsögðu var prófað að "acta" í IKEA eldhúsi þar sem að ég var auðvitað með myndavélina góðu á mér eins og alltaf. 100_0651

Dagurinn í dag var líka fínn, hann byrjaði klukkan hálf 8 þegar Kormáki var komið í skólann. Við María hentumst í JUST 4 KIDS eftir að vera búnar að snæða morgunmat í bakaríinu í Fellunum. Þar voru verslaðar nokkrar jólagjafir, svo kíktum við líka í Dýraríkið við hliðina og það er nokkuð ljóst að það er staður sem að ég gæti ekki unnið, þvílíku lætin í þessum fiðurfénaði þarna VÁ....... Við kíktum líka í MAX raftækjabúðina, það hitti ég Fanný og Írisi en það er orðið ansi langt síðan ég hitti þær systur. Tókum svo rúnt í miðbæinn, fengum okkur svakalega dýrt sykursjokk þar og var það svo væmið að ég var farin að kúgast þegar ég kyngdi síðustu bitunum. Röltum í Skífuna að skoða og tókum svo einn rúnt á Laugarveginum.

Við sóttum Berg Snorra í Fossvogsskóla og fórum með hann heim, svo að strákarnir gætu leikið sér saman. Björk kom svo um hálf 5 að sækja hann. Eftir steiktar fiskibollur og franskar skelltum við okkur svo á samkomu hjá Samhjálp í Stangarhylnum, það var æðislegt að koma þangað. Alltaf jafn gaman. Hitti Heiðu þar, en það er orðið ansa langt síðan ég hef hitt hana. Ætlum að mæla okkur mót, hún hringir í mig á morgun. En það er gott að vera komin heim. HEIMA ER BEST það er víst nokkuð ljóst.

Ætli ég sé ekki búin að rausa nóg í bili, hella mér yfir ykkur, gráta á öxlina á ykkur.... bla bla bla bla

Hafið það gott elskurnar mínar þangað til næst.

Kv. Linda litla.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Þú ert alltaf á útopnu út um allan bæ,dulleg kjéllingin

Og heyrðu ég er ekkert að svíkjast um,það er bara hann Kári veðurguð sem er að stríða mér

Guðný Einarsdóttir, 30.11.2007 kl. 00:31

2 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Svo fer þetta ekkert má alveg bíða common Linda litla

Guðný Einarsdóttir, 30.11.2007 kl. 00:32

3 identicon

Heyrðu elskan, ekki eyða öllum 8 milljónunum þínum á einum degi

Hafðu það gott krúttalína

Kveðja, Arna fjöryrki

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 30.11.2007 kl. 02:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband