Leita í fréttum mbl.is

Bónus..... fokið.... horfið ??

Ég skaust austur fyrir fjall með Maríu og Hjörleifi í dag. Það var alveg klikkað rok, við máttum þakka fyrir það að fjúka ekki út af veginum. Rétt austan við Kögunarhól lá flutningabíll á hliðinni fyrir utan veginn, eitthvað hefur rokið verið fyrst að rokinu tókst að feykja honum út af og á hliðina.

apríl 083

Dagsetningin he he he náttla ekki rétt. En þetta er nú léleg mynd af flutningabílnum, vonum að bílstjórinn hafi ekki slasast.

apríl 084

Þetta er svo í Hveragerði, þarna eru Bónus fánarnir foknir næstum út á þjóðveg.

Nú í sveitinni hjá Rúnu var sama leiðindarokið líka. Nú Hjörleifur var mikið kátur þegar hann sá og hitti ömmu Rúnu, hann alveg elskar að hitta hana.

María kom svo við hjá sýslumanni á Selfossi og kaus áður en við renndum í bæinn aftur. Bara búið að vera rólegheit síðan við komum heim, Hjörleifur jú tók nokkur skref fyrir okkur og vá.... hann var að springa úr montni elsku strákurinn.

Bína kíkti aðeins á okkur í kvöld, annars horfðum við Kormákur bara á dvd "cable guy" mér fannst hún heldur leiðinleg en Kormákur hló að henni.

Jæja segjum þetta þá bara gott í bili. Hafið það gott elskurnar og munið eftir því að kjósa rétt á morgun. Setjið x-ið á réttan stað.

Kv. Linda litla sem ætlar að kjósa rétt.

Smá myndasyrpa í lokin af ömmustrák.

apríl 002

apríl 003

apríl 004

apríl 005

apríl 006

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Sætur gutti hann dóttursonur þinn.  Greinilega hress gaur.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 25.4.2009 kl. 01:38

2 identicon

vá sæti músi! hann er svo líkur pabba sínum en með mikinn munnsvip frá ömmu sinni og svei mér þá hann er bara ferlega líkur kormáki á síðustu myndinni held ég bara !

Björk (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 01:42

3 Smámynd: Aprílrós

Mér finst hann svo líkur Kornáki ;)

Aprílrós, 25.4.2009 kl. 02:05

4 Smámynd: Sporðdrekinn

Knús

Sporðdrekinn, 25.4.2009 kl. 17:52

5 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Krúttudrengur litli ömmustrákurinn

Ragnhildur Jónsdóttir, 26.4.2009 kl. 22:30

6 identicon

Ég tók einmitt eftir fánunum hjá Bónus....alveg í takt við tíðarandann!

Knús á ykkur krúttlingana

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 13:23

7 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Vááá hvað þessi prakkari er orðin myndó og stór,stækkar í hverju spori hoho...

Kannski veið eigum eftir að hittast um helgina,ef ég verð ekki í brúðkaupsferðinni minni

Guðný Einarsdóttir, 28.4.2009 kl. 14:03

8 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ sæta, langaði bara að kíkja á þig.Fallegur hann dóttursonur þinn. Kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 2.5.2009 kl. 14:04

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Yndislegar krúttmyndir.  Já það var ansi hvasst um daginn, þegar við hjónin ókum meðfram Hafnarfjallinu frá Borgarnesi ókum við fram á flutningabíl sem hafði fokið út af, og mættum þremur sjúkrabílum á fleygiferð.  Enda var hvasst með afbrigðum. Knús á þig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.5.2009 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband