Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2009

9 september, hver gleymir honum ??

Klæddu þig fallega hvert sme þú ferð, lífið er of stutt til að hverfa í fjöldann..... Paris Hilton hehehe

Föstudagur enn einu sinni, ég er farin að halda að það sé föstudagur í hverri viku bara. Annars á þetta bara að vera fín helgi hjá mér, ætla nú að reyna að myndast eitthvað með þessi húsgögn sem ég er búin að vera á leiðinni að færa ansi lengi, þvo þvott og gera eitthvað skemmtilegt. Ég býst við því að ég fari í smá hóf á laugardagskvöldið, en það er ekki alveg komið á hreint ennþá.

Ég er voðalega eitthvað bloggdauð..... veit ekkert hvað ég get skrifað um, en ég get samt alltaf talað endalaust hahaha aldrei skortur á umræðuefni hjá mér. 

Þegar ég hugsa um þennan dag 11 september, þá man ég hann mjög vel eins og örugglega flestir. Ég var nýbyrjuð að vinna í Skagfirðingabúð á Sauðárkróki.... sá að fólk hópaðist inn í raftækjadeildina, og auðvitað fór ég að forvitnast eins og allir hinir. Þar fylgdumst við með þessum hræðilegu hryðjuverkum. Á hverju ári finn ég fyrir einhverri hræðslu um að það skei eitthvað, eins og þetta tilheyri deginum, eins og það eigi eftir að gera eitthvað meira. Auðvitað þarf maður að hafa áhyggjur af því, allt tek ég inn á mig...

Jæja, segjum þetta gott. Er með einhverja bloggstíflu. Hafið það gott elskurnar og eigið góða helgi.

Kv. Linda litla taugaveiklaða...


mbl.is Heimskulegustu ummæli Paris
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðasta blómið...

Í morgun þegar við mæðginin erum komin fram, fer ég að hella á könnuna og bið Kormák um að ná í nestisboxið í töskuna síðan í gær, og segi honum að setja peru og vínber í það, að það verði það sama í nesti aftur í dag. Allt í lagi með það, hann opnar boxið og setur nestið í og segir svo Kormákur: mamma, ég borðaði ekki eitt vínber í gær. Ég: nú ? Var eitt skemmt ? Kormákur: það var eiginlega linara en "lundur". Ég: Linara en lundur ?? Hvað áttu við ? Kormákur: Æi, þetta er bara svona orðatiltæki mamma. hahahaha ég myndi segja að maður væri alltaf að læra eitthvað nýtt  hehe

bvsc01

Nú.. í dag er flottur dagur, 09 09 09 það er alltaf gaman af svona dagsetningum, ætli það séu einhverjir sem ætla að gifta sig í dag ? Nei, örugglega ekki. Enginn nennir að standa í því þessa dagana held ég. Talandi um þennan dag, þá dettur mér í hug Bubbi Morthens 06 06 06. Ég var einmitt að hugsa um hann í gær.... mér fannst Bubbi alltaf góður söngvari í  Das Kapital og Utangarðsmönnum sérstaklega. Hann á mörg góð lög bæði með þessum böndum og öðrum, en síðustu ár hefur tónlistin eitthvað farið í taugarnar á mér. Finnst hann verða lélegri með árunum, en þetta er auðvitað bara það sem mér finnst. Kannski fílaði ég betur "sukk"tímabilið hjá honum, þ.e.a.s þegar hann var í neyslunni. Það er reyndar eitt lag sem alltaf stendur upp úr með honum, það er "síðasta blómið". Mér finnst það alveg æðislegt lag, en þetta er lag sem aldrei er spilað í útvarpi, eða ekki að mér vitandi. Á hvaða útvarpsstöð væri helst að heyra lagið ? Rás 2 ? Þarf að reyna að redda mér þessu lagi, ef að einhver á þetta lag, þá myndi ég alveg þiggja að viðkomandi myndi kannski senda mér það í gegnum msn eða eitthvað.

Segi þetta gott í dag, enda færsluna á einni gamalli mynd af mér hehehe tekin á fermingardaginn ;o)

scannedimage-47_907388.jpg

Eigið góðan dag, það ætla ég að gera.

Kv. Linda litla með síðasta blómið.


uhh.... kynlíf ?!

 Frétt dagssins..... kynlíf fyrir heimilisfriðinn... !??!?!?!

Höfundar bókarinnar segja allt að 200 ástæður geta legið að baki því að konur vilji stunda kynlíf og að fæstar þeirra tengist ást eða líkamlegri löngun. Ástæðurnar séu mun frekar þær að konur vilji í raun tryggja sér eitthvað eða ná einhverju fram með kynlífi..... hvað finnst ykkur um þetta konur ?? Ætlið þið/við að láta einhvern alibaba segja hvers vegna þið/við viljum stunda kynlíf ??

Þú getur orðið í dag farið út í bókabúð og keypt bók um það sem að þú vilt heyra og greinilega líka eitthvað til að ergja þig.

Takk í dag..

Kv. Linda litla.....hummm...sem að þarf ekki að stunda kynlíf til að halda heimilisfriðinn ;o)


mbl.is Kynlíf fyrir heimilisfriðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1200 milljónir íslenskar takk fyrir, þjóðin gæti sko alveg notað það.

Já sæll..... 473 fuc**** kíló af heróíni..... það er enginn smá penginur í því, heilar 1200 milljónir íslenskar krónur. Vá..... myndi sko ekki neita þeirri summu hehehe við erum að tala um nærrum hálft tonn af dópi.... í okkar litla heimi hér á Íslandi var verið að stöðva kannabis ræktun, heilar 440 plöntur hehehehe mikið er nú gott að vera bara á þessu litla landi okkar. Þetta er ekkert smá magn... ég þarf bara að reyna að ná mér eftir þessa frétt hehehe

Ef að ég ætti þessa upphæð, þá þyrfti ég ekki að hafa neinar áhyggjur og ekki þeir sem eru í kringum mig. Myndi gefa dágóða summu á rétta staði.... en ég á víst ekki þennan pening þannig að ég hætti bara að láta mér dreyma um að kaupa mér nýjar nærbuxur í þetta skiptið.

Segjum þetta gott í bili.

Kv. Linda litla nærbuxnalausa ;o)


mbl.is Fundu tæplega hálft tonn af heróíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki binda þig fyrr en þú ert kominn í 12 ástarsambandið þitt !!

Ekki er öll vitleysan eins. Það nýjasta er að þú finnur ekki þinn rétta lífsfararnaut fyrir en í 12 ástarsambandi þínu. Sagt er "veldu einhvern sem þér líður vel með, sem þér finnst passa vel við þig og sem á svipuð áhugamál. Ekki einhvern sem þú þarft að eltast við"...... nema hvað ?? Ekki velur fólk þann sem því líður illa með eða finnst ekki passa við sig..... eða hvað ?? Held að þessi stærðfræðingur sem að reiknaði þetta út, hafi ekki fundið ástina sína fyrr en eftir 12 "ástarsamband".

Létt og laggott, þennan fimmtudaginn ;o) Hafið það gott, og hugsið áður en þið framkvæmið, þó að það þurfi að hugsa mikið, vel og lengi.

Kv. Linda litla sem hugsar mikið.


mbl.is Tólfta ástin sú rétta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hótar að flytja úr landi..... ?!?!?!

Jæja, góðan daginn hér :o)

Fréttin í dag er um Sir Michael Caine. Hann hótaði að flytja úr landi ef að skattahækkun yrði hjá hátekjufólki, en hann hætti vegna barnabarna. hehehehe trúi því ekki, held að öllum hafi bara verið sama þótt hann færi. Mér finnst þetta alveg einstaklega leiðinlegur leikari. Michael Caine... ég held að það sé rétt en ekki Michael "Cain" eins og stendur í blaðinu, en það skiptir ekki máli, mér fannst bara nafnið eitthvað öðruvísi....

Nú í gær var þvælst, það fór um 10.000 kall í strætómiða og lyf hjá mér. Gleymdi samt að leysa út ein lyf, verð að gera það í dag. Mikið djö... er allt orðið dýrt. Það lítur nú samt út fyrir að ég sé þokkalega vel stæð miðað við kvöldmatinn hjá okkur í gærkvöldi, ég var með reykta hamborgarhrygg í matinn, með brúnuðum kartöflum og meðlæti hehehehe Komákur sagði líka, "það mætti halda að það væru jól" hehe Iða Brá og Helga Brynja komu nefnilega um helgina og gáfu okkur mat í poka, þ.a.m. þessa sneiðar sem að hún tók úr kistunni, afgangur frá fermingunni hans Arnars Daníels. Mjög gott.. namminamm.

Næsta laugardag er Vigga að útskrifast sem viðskiptalögfræðingur og verður veisla á laugardagskvöldið, ég ætla að heyra í Mama Hranfhildi á morgun og kanna hvort að ég geti ekki eitthvað hjálpað henni við undirbúning veislunnar. Málið er að Vigga er í útlöndum og kemur ekki heim fyrr en á útskriftardaginn. Þar sem að Kormákur fer til pabba síns á föstudag gæti ég eitthvað hjálpað til. Annars er líka eitthvað að ske hjá Kormáki, það á að skíra bróður hans á sunnudaginn.

Jæja, segjum þetta nú gott í bili. Hafið það gott elskurnar.

Kv. Linda litla ekki aðdáandi Michaels Caine :o)


mbl.is Michael Cain dró hótun sína til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband