Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

samdráttaverkir............

Fyndið, ég lá uppi í rúmi með Kormáki áðan og við vorum að kúrast og spjalla saman.

Ég: Komdu krúttið mitt. Ég elska þig.

Kormákur: Mamma þú ert alltaf að segja þetta....... mamma, þú ert besta mamma í heimi.

Ég: Takk dúllan mín og takk fyrir að vera til.

Kormákur: Þökk sé pabba og þér fyrir það mamma.

Hann er svo yndislegur innilegur stundum og alltaf að gefa mér knús og kossa í tíma og ótíma svo að ég fari nú ekki úr rúminu frá honum, hann er svo séður.

prufa

María hringdi í mig áðan og hún segist vera með reglulega samdráttaverki..... ætli það sé eitthvað að ske, eða er þetta bara fyrirvaraverkir áður en ég kem til hennar á morgun ?? Alla vega vona ég að það komi ekkert í nótt, nenni ómögulega að vera að þvælast þarna austur fyrir fjall í nótt. Það kemur a.m.k. í ljós fljótlega ef að svo er.

100_0507


Ég ætla að sækja barnið í heiminn á morgun.

Jæja, það varð ekkert úr því að færi á féló í dag, drullaðist á fætur um hálf 3, hellti á könnuna fyrir mig og tengdó og svo skammaði ég hana fyrir að hafa ekki komið fyrr og rifið mig á fætur. Þegar hún var farin settist ég auðvitað við besta vin minn (tölvuna) og það eina sem ég hef gert síðan er að hanga í henni og spjalla við Maríu og mömmu í símann. Ekkert bólar á barni ennþá, en ég ætla austur á morgun og segja barninu að koma út. Það er eitthvað sem segir mér að barnið komi á morgun og ekki nóg með það þá var mamma að segja að pabbi sé líka viss um að það komi á morgun.

Mér fannst gaman að setja inn myndir hérna í gær, en ég kann ekki að stækka þær, þannig að ef að einhver kann það, væru ráðleggingar mjög vel þegnar. Ætla einmitt að skella inn einhverjum myndir hérna í lokin. Stutt blogg núna, á örugglega eftir að setja eitthvað meira inn seinna í dag......bæjó í biló hehe Grin

jytdrjHérna er ein gömul af mér, ætli ég sé ekki 4 ára þarna. hgjf

Þetta eru foreldrar mínir, Jón og Guðrún Birna. Þau búa á Hellu, ég hitti þau á morgun.


þunglyndi,svefn....... ok, ég reyni að rífa mig upp.

Óþolandi dagar alve3g, ég er að flippa yfir úr leti eða þunglyndi, veit ekki alveg undir hvaða flokki þetta stendur. Ég geri a.m.k. ekkert annað en að sofa, ég fer yfirleitt í rúmið fyrir miðnætti og fer á fætur kl. 3 seinni partinn. Mig vantar svo eitthvað til að rífa mig upp á rasshárunum. Ég afrekaði það þó í dag að henda þessu blessaða jólatré út á svalir hjá mér, Kormákur og Vilborg voru svo dugleg að týna af því jólaskrautið annars hefði ég sjálfsagt hent því bara með út á svalir. Ég er búin að vera á leiðinni á féló alla vikuna, en hef ekki haft mig út ennþá. Samt veit ég að ég verð að drullast þangað ef að ég ætla mér að komast í Grettistakið. Kannski ætti ég að kíkja á doksann minn og biðja hana um að breyta þessum þunglyndislyfjum mínum, held að þau séu ekkert að virka neitt fyrir mig. Reyna að fá eitthvað örvandi í staðinn, það hlýtur að vera eitthvað til fyrir mig sem ekki er ávanabindandi.

Ekkert bólar á barni ennþá, ég ætla að skella mér austur um helgina og fara út að skokka með Maríu, það gengur ekki að þetta barn láti bíða svona eftir sér. Nei, ég segi svona. Ég ætla samt að fara austur um helgina þegar Kormákur er farinn til pabba síns og eyða helginni á Hellu, það er orðið ansi langt síðan ég hef komið þar. Mig langar líka að komast aðeins úr borginni, held að ég hafi gott af þvi að komast aðeins í ferska sveitaloftið í 2-3 daga, kannski hressist ég eitthvað við það og næ að rífa mig upp.

Ég er búin að vera að fikta aðeins í myndum í dag, bæði í tölvunni og í albúminu hans Kormáks Atla á barnalandi og ég fann eina mynd af Kormáki, ætli hann sé ekki kannski 2 vikna á þessari mynd. Hann er svo mikið krútt þessi drengur minn, ég verð bara að leyfa ykkur að sjá eina gamla mynd af honum.

kormakur 

Jesus minn, er maður ekki sætastur ?? Fallegur eins og mamma sín he he he Verð að henda inn einni mynd af henni Maríu minni líka, stóra litla barninu mínu sem er að verða mamma he he

yjtrtyj

Það er ekkert smá gaman að leita að myndum og henda hérna inn, bæði fyrir mig og ykkur hin sem ég þekki. Þau hafa allta verið miklir vinir börnin mín, María að verða 21 árs og hún elskar bróður sinn út af lífinu og kemur oft til Reykjavíkur til að heimsækja hann en ekki mig hehehe

fjhfj

Hérna eru þau árið 2003 þegar við áttum heima á Sauðárkróki, það eru til margar myndir í kringum þessa mynd, alve heil sería. Og svona í lokin ætla ég að henda inn einni mynd af mér og mínum systkynum, ég er yngst í systkynahópnum þannig að ég ætti að vera auðþekkjanleg á myndini, enda stend ég upp úr hópnum, alveg grútskítug og sæt.

hrwtr

Þið sem ekki þekkið mig eða mína fjölskyldu, takið eftir tvíburabræðrum mínum, þeir voru svo líkir að annar þeirra var með merki í barminum svo að þeir þekktust í sundur.

Jæja, þetta litla bloggbull mitt núna, gladdi mig aðeins, núna get ég farið í rúmið sæl, glaðari og aðeins brosandi meira að segja. Það er aldrei að vita nema ég eigi eftir að setja inn einhverjar fleiri myndir hérna við tækifæri. Annars hafið það bara gott þangað til næst, elskurnar.

Kv. Linda litla.


Sparkið í mig.......

Smá innlegg hérna, ég er að reyna að gera eitthvað gagn á þessu blessaða heimili mínu en er samt ekki að nenna því. Mig vantar smá spark í rassinn elsku bloggvinir og vinir. Rekið endilega á eftir mér svo ég haldi áfram og hætti að hanga í tölvunni.

Langar líka að henda inn einni mynd að sætasta frænda mínum honum Brynjari Inga, hann er svo mikið krútt.

lkok


Stórt hús til leigu án endurgjalds......

Einmitt, ég hef tekið þá ákvörðun að flytja inn í IKEA til að spara húsaleigu. Spurning hvort að IKEA á Íslandi myndi gera svona fyrir mig ef að ég væri að eitra fyrir silfurskottum ??
mbl.is Grínisti flutti inn í Ikea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jórufell.......

Vá þetta er stressandi, það er alls staðar að brenna í Breiðholtinu. Ég er stressuð að sjá og heyra svona fréttir. Mig langar mest að flytja úr fellunum núna.
mbl.is Grunur um íkveikju í Jórufelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tölvudrasl, bumbubúi, Grettistak og Tryggingastofnun.

Halló, ég er ekki frá því að ég hafi bara saknað ykkar allra hérna, hreinlega bara búin að vera í fráhvörfum frá tölvunni, en þessi blessaða gamla tölva mín var með einhverja stæla og ég hef ekkert getað notað hana, en hún er a.m.k. að gefa mér séns núna. hehehehe vonandi gefur hún ekki upp öndina, þá fer ég nú að gráta.

Jæja, helgin var fín. Kormákur gisti hjá Berg á föstudag og kom heim á laugardag, það var etin pizza um kvöldið og svo hentum við okkur í rúmið hans Kormáks og horfðum á dvd og fórum svo að sofa. Á sunnudaginn skelltum við okkur í Kolaportið með tengdó og svo í Laugarásbíó að sjá Alvin og íkornana, og auðvitað var ég svo skemmtileg að ég byrjaði að hrjóta í bíóinu, en náði nú samt að halda mér vakandi eftir hlé he he he

Við fórum austur í dag, þegar skólinn var búinn þá var brunað austur fyrir fjall og skellt sér í sveitina í Súluholt. Ég held að þetta barnabarn mitt sé strax komið á eitthvað mótþróaskeið, það ætlar sér ekkert að koma í heiminn. Ég hef smá áhyggjur af því að það verði einhver þverhaus....... nei ljótt að segja og það er engin hætta á því, það er úr svo góðum ættum, ég meina ekki er ég þver eða þrjósk....... er það nokkuð ??? Nei nei, þetta elsku ömmubarn mitt kemur bara þegar það er tilbúið, kannski er það bara að gefa ömmu sinni tækifæri á því að verða 37 ára hehehehe Það var gaman að koma í sveitina og ég hefði víst alveg viljað vera lengur en það er ekki hægt, það er skóli á morgun og húsið ekki alveg tilbúið. Þannig að við mæðginin förum bara og stoppum lengur þegar allt er orðið klárt. Þau vita það krakkarnir að ég kem og hjálpa þeim þegar það á að fara að flytja inn, hvort sem það verður komið barn eða ekki þá veitir þeim víst ekki af hjálpinni.

Ég er að fara á félagsþjónustuna í fyrramálið og skrifa undir umsóknina í Grettistakið, en það byrjar einmitt í febrúar og ég ætla að vona að ég komist þangað inn. Ef að ég kemst þar, þá fer ég nú að geta komið mínu andlega lífi á réttann kjöl. hef eithvað að gera á milli 8 og 14 á daginn. Emilía vinkona er í Grettistakinu og henni líkar það mjög vel og það gengur vel hjá henni.

Ég fór á Tryggingastofnun á föstudaginn og þá kom í ljós að ég hef ekki fengið heimilisuppbót síðan 2006, þarna kom nú einhver ástæða fyrir því af hverju ég er svona tekjulág. En ég er búin að sækja um hana og líka aftur í tímann og ég vona bara að þetta verði lagfært hjá mér sem fyrst.

Jæja, elskurnar. Þetta er orðið ágætt í bili, ég ætla að fara að koma mér í bólið. Nenni ekki að taka bloggrúnt núna, er hálfþreytt. Tek bloggrúntinn á morgun, þegar ég kem heim. Þangað til, hafið það gott.

kv. Linda litla.


Nú árið er liðið......

Er ekki rétt að henda inn einhverju nokkrum orðum í tilefni nýja árssins. Fyrstu dagarnir eru bara búnir að vera rólegir. Kormákur kom heim í gær frá pabba sínum og fórum við beint í fjölskyldumatarboð heim til Helga bróður, þar mættum við mæðginin með dýrindis reyktan hátíðarkjúkling. Þetta var auðvitað stórfínt matarboð eins og alltaf. Þarna voru mætt Pabbi og mamma, Garðar og Guðrún, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí og auðvitað Helgi og fjölskylda og við mæðginin. Við vorum þarna til klukkan ca. half tíu í gærkvöldi, að boðinu loknu skutlaði Garðar bróðir okkur heim.

Vigga og Florin eru enn hjá okkur og verða a.m.k. til morguns, en þau eru búin að vera hjá okkur síðan í fyrra hehhehehe

Við Kormákur skruppum í bæinn í dag, það er langt síðan ég hef skroppið í bæinn. Við fórum á café Paris og fengum okkur að borða og svo fékk ég að sjálfsögðu latte í eftirmat. So röltum við Laugarveginn, ég keypti blek í nýja prentarann minn sem að María og Rúnar gáfu mér í jólagjöf. Svo fórum með strætó í mjóddina og skruppum í nettó og þaðan heim, komum heim um hálf sex. Þetta var bara ágætis dagur hjá okkur.

Skólinn byrjar ekki fyrr en á föstudaginn hjá gormi, þannig að við þvælumst eitthvað á morgun líka. Ég á að hitta sálfræðinginn hans í fyrramálið, fara á féló og sækja um húsaleigubætur og hringja á tryggingastofnum, þar sem ég var að fatta að ég fæ enga heimilisuppbót. Ég talaði við eina vinkonu mína í dag sem er á örorkubótum og hún er með um 170.000 á mánuði mér brá að heyra það, þar sem að ég er bara með 114.000 og mér finnst það ansi mikill munur á tekjum þar sem við erum báðar einstæðar mæður með 7 ára barn. Þetta er eitthvað sem verður að skoða.

Ég held bara að þetta ár leggist vel í mig, byrjunuin lofar góðu. Ég er ákveðin í að vinna mikið í mér og mínum málum á árinu, og ætla að gera mitt besta til þess að bæta bæði mína andlegu og líkamlegu hlið. Helst af öllu myndi ég vilja að geta unnið svo mikið í mér að ég yrði lyfjalaus og vinnufær, ég held að ég þrái ekkert meira en að geta farið að vinna og farið að lifa eðlilegu lífi eins og annað fólk. En þetta á allt eftir að breytast vonandi í árinu, þegar Kormákur byrjar í skólanum á föstudaginn þá ætla ég að byrja að fara á fætur með honum og labba í Breiðholtslaug og synda. Ég er viss um að þegar maður byrjar þá verður það ómissandi.

Jæja, bullerý bull nóg komið af því. Læt þetta gott heita í bili. Hafið það gott elskurnar og farið vel með ykkur.

Kv. Linda litla

p.s. Ekkert bólar á barni ennþá, kannski ætti ég að fara austur og fara með Maríu út að skokka eða senda Rúnar bara með hana í bíltúr í þúfum hehehehehe

 


Ólafur Ragnar áfram forseti.

Mér líst vel á Ólaf Ragnar, ég kem alveg örugglega til með að kjósa manninn. Skrítið vegna þess að égar að hann var kosinn Forseti þá var ég þvílíkt á móti manninum. Man samt ekki alveg hvern ég kaus á þeim tíma. En alla vega núna á styð ég hann 100 %.
mbl.is Býður sig fram til endurkjörs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband