Leita í fréttum mbl.is

Upp og niður út á hlið.......

Vá þið haldið örugglega að ég hafi farið til útlanda eða væri dauð...... ekki búin að blogga í sólarhring, það skeður ekki nema ég fari til útlanda. Málið er að ég veiktist svo svakalega af magapest seinni partinn í gær að ég hélt hreinlega að ég væri að drepast, það er ekki það skemmtilegasta sem ég geri að sitja á klósettinu með vaskafat í fanginu. En þetta er sem betur fer að ganga yfir, ekkert eftir nema svimaköst öðru hvoru.

Ég skrapp í Mjóddina í gærmorgun með Unni og Stínu, við fórum í bakaríið og fengum okkur góðgæti þar, ég verslaði í Nettó og Stína fór til læknis. Ég fór líka inn í Eymundsson, en bókabúðir freista mín mjög gjarnan. Í þetta sktið var það bókin "minnisstæðar tilvitnanir" eftir Norman Vincent Peale sem varð fyrir valinu og ég stóðst ekki freistinguna og keypti bókina.

Treystu þeim manni ekki fyrir leyndarmálum þínum, sem laumast í blöðin á borðinu þínu. JOHANN KASPAR LAVATER (1741-1801)

Þetta var svona smá sýnishorn ú bókinni. Tilvitnanir, málshættir, orðatiltæki, speki..... allt er þetta eitthvað sem að ég hef mikinn áhuga á og hef gaman af því að lesa.

María mín fór í skoðun í dag, það er ekkert að ske hjá stelpupjásunni og stefna þeir á sjúkrahúsinu á Selfossi að setja hana af stað á sunnudagskvöldið 20 janúar, þannig að það lýtur ekki út fyrir að barnið komi í fyrsta lagi 21 janúar, en þá er hún komin 17 daga fram yfir settan tíma. Ég vona bara að það eigi eftir að ganga vel hjá henni að koma blessaða barninu í heiminn.

Segjum þetta ágætt í bili, kem inn með eitthvað á morgun það er nokkuð ljóst, hafið það gott elskurnar minar þangað til.

Kv. Linda litla


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

ÓJJJJ magapest,skil að þér hafi liðið illa..En gott að þú ert að braggast,ég verð að segja það að ég hafði áhyggjur því þú varst ekkert að blogga..

Guðný Einarsdóttir, 16.1.2008 kl. 23:18

2 Smámynd: Dísaskvísa

Aumingja María mín ......örugglega orðin þreytt  og aumingja Linda mín búin að skila öllu innvolsinu .....ojjjjjjjj

Annars var ég bara búin að kíkja hérna inn svona 500 sinnum að athuga hvort það væri ekkert að ske og fékk áfall þegar þú sendir mér sms um að koma á msn að spk....djók -varð bara að setja fleiri skammstafarnir.  Sjáumst um helgina skvís

Dísaskvísa, 16.1.2008 kl. 23:33

3 Smámynd: Ingunn Jóna Gísladóttir

'Eg er eins og Heiða hélt að allt væri farið í gang og ömmubarnið væri loksins að koma, svo liggur þú bara með æluna Láttu þér batna. Kær kveðja Ingunn

Ingunn Jóna Gísladóttir, 16.1.2008 kl. 23:50

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elskið mitt, bara búin að vera lasin.  Litli þrjóskupúkinn er ekkert á útleið.  Náðu nú heilsunni áður en þú ferð að ömmast.  Knús til þín.

Ásdís Sigurðardóttir, 17.1.2008 kl. 00:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband