Leita í fréttum mbl.is

Allt og ekkert.

Þetta er nú búið að vera þokkalegur dagur í dag, hef dundað mér við að þvo þvott, skúra, vaska upp og ýmisleg heimilisstörf. Ég finn að andlega hliðin mín er svo mikið betri eftir að ég fór að vinna um helgar. Það er bara allt annað líf að vera farin að hitta fólk, ég hefði ekki trúað þessu. Skil ekkert í mér að hafa ekki fengið mér eitthvað að gera fyrr. Reyndar er þetta of mikið fyrir minn veika líkama, en þegar eigendur staðarins koma heim frá Kanarí, þá ætla ég að halda mig bara við aðra hverja helgi. Bara að vinna pabbahelgarnar. Ég er að jafna mig í skrokknum langt fram á viku alltaf.

Ég gleymdi myndavélinni minni austan um helgina, en Unnur fór austur í dag og ætlar að koma með hana til mín á morgun (ef hún man eftir henni). Ég tók nefnilega mynd af vinnunni minni og vinnufélaga um helgina, vil endilega sýna ykkur hvar ég vinn.

Ég fór í litun í gær, loksins.... gráu hárin voru orðin ansi áberandi, mér veitti sko ekkert af lituninni, svo fór ég með Kormák í klippingu og núna sé ég framan í hann. Þetta er bara bráðmyndarlegur drengur sá ég. Jæja, ég hitti Emilíu, en það er orðið nokkuð síðan ég hitti hana, hún er búin að fá vinnu aðra hverja helgi í Þrastalundi og byrjar næstu helgi.

Brynja mín kom í heimsókn í dag og borðaði með okkur pasta og sallat og við sátum að blaðri langt fram eftir, ákváðum að stofna saumaklúbb, hringdum í Iðu Brá, þannig að við erum orðnar a.m.k. 3 en værum samt til í að vera kannski 5 í allt. Unnur kíkti líka í dag og Björk, það var mikið helt á könnuna og mikið talað, skrítið hvað maður fær aldrei gesti, en svo þegar það koma gestir þá koma allir sama daginn.

María og Músi minn koma á morgun og verða hjá mér fram á föstudag. Þá fer Kormákur með Maríu í sveitina á meðan ég er að vinna um helgina.

Þetta er orðið ágætt í bili, hafið það gott elskurnar þangað til næst.

Kv. Linda litla, sem bíður spennt eftir ömmuMúsinnni sinni.

trqggh

Eigið góða nótt með fallegum draumum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband