Leita í fréttum mbl.is

Meira af villtu kynlífi...

Þetta er búið að vera hinn furðulegasti dagur..... ég hékk á netinu og í símanum í nánast allan morgun, og eyddi svo megninu af eftir hádeginu í bælinu í letikasti. Ég er búin að vera að hringja út um allt í morgun, og fæ svar með hús á Hellu um helgina. Ég vona svo innilega að ég fái þetta hús.... ég er nefnilega með einbýlishússasýki núna þessa dagana. Mig langar að búa í stóru einbýlishúsi með bílskúr og garði, og vera með snúrur í garðinum til að þurrka rúmfötin mín. En þetta kemur víst allt í ljós um helgina, og þegar ég kem heim að austan á mánudaginn þá segi ég ykkur hverngi helgin fór og vonandi fylgja þá myndir af húsinu.

5

Ég bara varð að hafa þessa fyrirsögn HA HA HA HA Það er einvher púki í mér í dag. Annars er ég eiginlega bara hálf þreytt eftir daginn, ég er búin að gera svo mikið af engu hehehe þannig að ég þyrfti eiginlega að leggja mig í dágóða stund eftir það. Kormákur kom heim úr skólanum með vini sínum og stoppuðu þeir stutt inni, fóru út að leika sér, svo hringdi Kormákur um klukkan 7 og spurði hvað hann mætti vera lengi... ég sagði honum að koma heim að borða en NEI.... hann var ekki svangur, það er svo gaman á svona góðum dögum, það er bara leikið sér út í eitt. En hann kemur nún um 8 leytið, og þá hendi ég honum í bað, við lærum og skríðum svo í rúmið og knúsumst..... myndir 224

Segjum þetta ágætt, ætla að snáfast fram í eldhús og vaska upp og gefa loðnu strákunum mínum eitthvað að borða.

Hafið það gott snúllurnar mínar..... og ekki gera neitt sem að ég myndi ekki gera..... sem sagt ALLT LEYFILEGT.!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Flott hús

Gunnar Helgi Eysteinsson, 15.5.2008 kl. 20:05

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Kynlífsfíkill ertu í dag, hvað varstu að gera í rúminu??  varstu ein??

Ásdís Sigurðardóttir, 15.5.2008 kl. 20:07

3 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Linda Kaldarholtsdóttir

Guðný Einarsdóttir, 15.5.2008 kl. 21:35

4 Smámynd: Linda litla

ha ha ha nei... ég var ekki ein. Ég er PERRI, kettirnir lágu hjá mér

Linda litla, 15.5.2008 kl. 21:38

5 Smámynd: Linda litla

Já, ég fékk þessa hugmynd hjá henni Jenný bloggvinkonu.

Heyrðu ég er búin að vera að leita að húsnæði á Hellu í allan vetur, og kannski er eitthvað að ske núna. Fæ að vita það um helgina.... bíð mjög spennt.

Linda litla, 15.5.2008 kl. 23:27

6 identicon

Ég sé strax hvaða hús þetta er á Hellu  Gamli kofinn minn.  Hafðu það gott dúllan mín

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband