Leita í fréttum mbl.is

Komin og farin.

corida8

Kannski er ég bara þessi vonda manneskja, en mér finnst þetta bara gott á þá. 9 manns slösuðust í þessu nautahlaupi, ég hef aldrei skilið þetta. Mér finnst að dýravernd ætti að gera eitthvað í þessu, vil ekki að það sé farið svona með dýr. Eins og nautaat..... mér finnst það ógeðslegt.

 

Jæja...... frá nautum yfir í steingeit...sem sagt mig Smile Ég kom heim í gærkvöldi einhver tímann á milli hálf 7 og 7. Ég fór beint undir sæng og svaf til 10 í gærkvöldi, fór þá fram og spjallaði við leigandann og ætlaði að vaka eftir Viggu, en ég fór í rúmið um hálf eitt, henni seinkaði út af því að nýji bíllinn bilaði hjá Hveragerði á leiðinni suður. Það á ekki af henni að ganga elsku Viggu minni, nýbúiin að losa sog við fratinn sem var alltaf bilaður, fær sér svo nýjann bíl og hann virðist ekkert skárri. Jæja... ég fór í bælið upp úr hálf eitt, á klóið hálf 8 í morgun og vaknaði svo þegar að Vigga vakti mig klukkan 10 í morgun, vá hvað ég þurfti á þessu að halda. Jæja, svo er ég að fara að sækja Kormák á rútuna, hann er aðkoma úr sumarbúðum. Og svo förum við austur seinni partinn og ég fer að vinna aftur á morgun og verð að vinna fram yfir helgi. Það er búið að vera mikið að gera og þetta er mikil vinna fyrir aumingjann mig, en ég hef svo restina af sumrinu að jafna mig. Skrokkurinn á mér er lurkum laminn eftir síðustu 10 daga. Og ég er hreinlega búin að lifa á bólgueyðandi og verkjatöflum, en þetta er alveg að verða búið.

Fyndið, þegar að ég sest í tölvuna núna, þá finn ég að ég er búin að sakna bæði tölvunnar og bloggvina minna, mér finnst eins og ég hafi verið að svíkja ykkur með því að vinna svona mikið og ekki sinna ykkur.... kræst hvað maður getur verið klikkaður. hehehehe

Jæja.... farin í bloggpásu aftur þangað til eftir helgi. Hafið það gott elskurnar þangað til þá. Bestu kveðjur til ykkar krúttin mín.

kv. Linda litla lúna.


mbl.is Níu slösuðust í nautahlaupi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Djísess kerlingin mín! Þú ert alveg að ganga fram af þér þessa dagana.  Ég bara knúsa þig í huganum og vona það besta

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 12:19

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Auðvitað saknarðu okkar og við þín að sama skapi. Ertu ekki að vinna yfir þig stelpa??  take care

Ásdís Sigurðardóttir, 8.7.2008 kl. 12:29

3 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Linda!!!!!!!,,,bara minna þig á það hvernig Bragi er hann vann yfir sig

Guðný Einarsdóttir, 8.7.2008 kl. 12:40

4 Smámynd: Bergljót Hreinsdóttir

Bergljót Hreinsdóttir, 8.7.2008 kl. 13:50

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þessi bloggheimur er jú smá klikk - enn krúttalegri en veruleikinn.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 8.7.2008 kl. 13:52

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gaman að heyra frá þér og mikið er ég sammála um þessa nautahljaupandi vanvita.  Aular.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.7.2008 kl. 14:04

7 Smámynd: Hulla Dan

Já þeim er nær að vera að atast í þessum stóru dýrum.
Farðu vel með þig.

Hulla Dan, 8.7.2008 kl. 20:08

8 identicon

úff, já klikkað spior þetta nautahlaup!! Já, ég sakna þín líka bloggvinkona!!

alva (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 21:04

9 Smámynd: Sigríður Þóra Magnúsdóttir

Gangi þér vel

Sigríður Þóra Magnúsdóttir, 8.7.2008 kl. 21:33

10 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Linda mín það skín alltaf í gegn hvað þú ert ljúf og góð og allra vinur, það er dýrmætur eiginleiki. Þú ert búin að standa þig svo vel, ég er viss um að Kormákur er hreykinn af mömmu sinni þó hann sakni hennar kannski líka en þetta er nú að verða búið. En passaðu upp á magann í þér góða mín, bólgueyðandi töflur eins og td Ibufen eru eitur í maga og slæmt að taka svona mikið af þeim! Ég er alltaf svolítið afskiptasöm  Ég verð komin á bíl ekki seinna en í lok mánaðarins veistu? :) Sæki ykkur Kormák og förum í berjamó eða barasta ísbíltúr, ekki segja nei  Gangi þér nú svakalega vel þennan tíma sem eftir er í vinnunni Linda mín kæra

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 8.7.2008 kl. 22:03

11 Smámynd: Brynja skordal

innlitskvitt og hafðu það ljúft elskuleg

Brynja skordal, 10.7.2008 kl. 13:21

12 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Fardu vel med tig  ,tad verdur gott ad fá Kormák heim eftir sumarbúdirnar....Knús á tig inn í gódann og rólegan dag.

Gudrún Hauksdótttir, 11.7.2008 kl. 09:11

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála þér með það fólk sem leggur sig niður við að níðast á nautum, sem og öðrum dýrum.  Og velkomin heim elskuleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.7.2008 kl. 11:39

14 identicon

Hæhæ greinilega mikið að gera hjá þér.. :) bíð spennt eftir nýju bloggi..

Harpa Steinarsdóttir (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 20:52

15 Smámynd: Sporðdrekinn

Aldrei skilið nautaat!

Farðu vel með þig

Sporðdrekinn, 15.7.2008 kl. 00:32

16 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

Sakna þín, STÓRA sys

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 15.7.2008 kl. 22:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband