Leita í fréttum mbl.is

Fagnar fríinu með syninum.

Nelson Mandela er níræður, ég myndi halda að það væri hár aldur fyrir blökkumann.

6a00d83451f25369e200e54f0c830c8833-800wi

Annars var það fyrirsögnin á fréttinni "fagnar afmæli með fjölskyldunni" sem að ég greip. Ég er svo fegin að vera komin heim að ég sá fyrir mér fyrirsögnina "fagnar fríinu með syninum" hehehhe

Það sem af er degi er búið að vera fínt. Ég vaknaði við það eftir hádegi að Vigga var að vekja mig og ath. hvort að hún ætti ekki að skutla mér í Bónus áður en að þau Florin færu í bústað. Það var sko vel þegið, þá get ég verslað inn allt í einu heldur en að hjóla kannski tvær ferðir í Bónus. Ég keypti í einn poka af kattamat og í tvo poka eiginlega bara grænmeti og ávexti, við ætlum að skella okkur í hollustuna við Kormákur.

Við Vigga kíktum líka aðeins á útsöluna í PIER og það eru geggjaðar vörur til þar, væri til í að henda öllu mínu innbúi og endurnýja allt þarna úr búðinni, en ég hef víst ekki efni á því, get það kannski þegar ég verð milljónamæringur, ef að það verður einhver tímann hehehe

Brynja kemur í mat í kvöld og ég ætla að hafa kjúklingabringur og ferskt salat og hvítlauksbrauð. Svo er ætlunin að fara í húsdýragarðinn um helgina og ég á von á Maríu og Hjörleifi í heimsókn, vorum að spá í að kíkja í Kolaportið. En við mæðginin erum líka búin að ákveða það að við ætlum að fara daglega í sund.

Það er æðislegt að vera komin í frí, ég hef ekkert smá saknað hans Kormáks míns. Við höfum vorum hreinlega komin með fráhvörf frá hvort öðru.

jæja, segjum þetta gott í bili... þangað til næst hehehe

gúddbæ beibs.

 


mbl.is Fagnar afmæli með fjölskyldunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er alltaf svo gaman hvað maður er glaður að hitta börnin eins og það er oft gaman að fá smá frí.  Hafðu það gott elskuleg og njóttu frísins 

Ásdís Sigurðardóttir, 18.7.2008 kl. 19:03

2 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Já þið hafið nú ekki verið mikið nálægt hvort öðru þennan mánuðinn myndi ég segja...Hafið það gott

Guðný Einarsdóttir, 18.7.2008 kl. 19:49

3 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Kíktu aðeins á bloggið mitt.....Ekki verða reið

Guðný Einarsdóttir, 18.7.2008 kl. 21:52

4 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

Gaman að lesa loksins frá þér Linda Litla Superkvendi! Þú ert þá komin í frí, til hamingju með það. Það er eins með þig og mig, mig vantar svo kattarmat en þarf að hafa svolítið fyrir því af sérstökum ástæðum og svo er ég komin í hollustuna líka líkt og þú og Kormákur  Það vill svo vel til að það ætti ekki að líða meira en vika í að ég verð komin á litla sæta Yarisinn minn. Er það ekki draumur?! Ekki bókstaflega meint, þetta er staðreynd  Þá hætti ég nú að vera löt að fara í leikfimi niðri í bæ!! Samt óþolandi að geta ekki haft stöð í þessu fyrirmyndarhverfi okkar Breiðholtinu. Kannski hugmynd að atvinnu? Tökum okkur nokkrar saman og opnum líkamsræktarstöð og rekum hana með sóma

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 20.7.2008 kl. 11:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband