Leita í fréttum mbl.is

Tilfinningar......

Mínar nýjustu vangaveltur núna eru "tilfinningar". Ég hef verið að pæla í því undanfarið að það er einhver tilfinningasveifla í gangi hjá mér þessa dagana, en af hverju það veit ég ekki.

Ég er farin að fylgjast aðeins með sjónvarpi, sem er gott mál. Þá er ég ekki alltaf hangandi í tölvunni. Nema síðustu daga þegar ég horfi á imbann og það kemur eitthvað sorglegt eða fallegt..... kommon, þá þarf ég að berjast við tárin. Hvað ætli sé að ske með mig ??

Eitt dæmi..... ok, og þið fáið kast. Ég er aðeins farin að fylgjast með Glæstum vonum á morgnana á stöð 2 (okei, núna fá þeir sem þekkja mig alveg örugglega kast) . Ég fylgdist með þessum þáttum árið 2000 þegar ég var kasólétt og einnig eftir að ég átti Kormák. Þannig að ég man eftir flestum af þessum persónum. T.d. Stefanie... hún hefur alltaf farið í taugarnar á mér kerlingabeyglan, þarf að skipta sér af öllu, hefur alltaf rétt fyrir sér og ræður yfir öllum.

Núna er sú gamla komin sála (auðvitað Taylors) út af vandræðum í hjónabandi...... Taylor ráðleggur henni að hitta móður sína sem að hún hefur ekki hitt í 30 ár...... kommon, þetta er of erfitt fyrir mig að horfa á, ég verð að líta undan og kyngja. Ég er ekki að höndla svona.

15182__flannery_l

Hvað ætli málið sé með mig ??

Þekkið þið svona tilfinningar ??

Er ég kannski að verða mannleg loksins ??

Finnst ykkur það eðlilegt að ég sé gráti nær þegar ég horfi á glæstar vonir ??

úffff..... ég er farin að væla, sí jú leiter.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Eru tilfinningarnar að bera þig ofurliði mín kæra,ja ég hef skælt yfir bíómyndum en hver hefur ekki gert það

Guðný Einarsdóttir, 17.9.2008 kl. 19:28

2 Smámynd: Hulla Dan

Ertu ekki bara á þessu fokking fyrirbæri sem við fáum einu sinni í mánuði??? Þegar þannig stendur á hjá mér á ég nefnilega erfitt með að horfa á auglýsingar.

Hulla Dan, 17.9.2008 kl. 20:03

3 Smámynd: Sporðdrekinn

Elsku krúttið mitt vældu bara

Nei svona í alvörunni, hér er tvennt nei þrennt sem hefur svona áhrif á mig. Þú mátt velja :

Blæðingar, egglos og þunglyndi.

Við getum ekkert gert við þessu hormóna dæmi en ef að það er  þunglyndið þá getum við gert smá. Ég hef reyndar fundið tvennt sem hjálpar mér með allt þrennt svona þegar að ég fer að hugsa um það. Það er að hreyfa mig reglulega og taka á, ekkert svona labba hægt í 20 mín dæmi. Þó að það sé góð byrjun. Heldur virkilega taka á. Svo er það vorrósar olían, ég varð bara hissa hvað hún hjálpar mikið við þessum mánaðar kvillum. Meira að segja skapið verður betra

Knús

Sporðdrekinn, 17.9.2008 kl. 20:20

4 Smámynd: Anna Guðný

Blessuð vertu, skæli yfir mörgu. Verð að prófa að horfa á Glæstar vonir og sjá hvort það virkar þar.Fylgdist, eins og þú, með þessu áður en hef svo bara lesið bloggið hennar Gurrýjar. Og mér finnst þetta orðið svo flókið að ég veit ekkert hver er undan hverjum eða hver er að sofa hjá hverjum.

Hafðu það gott ljúfan

Anna Guðný , 17.9.2008 kl. 20:26

5 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

snökt snöktknús knús

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 17.9.2008 kl. 20:34

6 Smámynd: Brynja skordal

Brynja skordal, 17.9.2008 kl. 22:06

7 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Sem stórunnandi rómantískra gamanmynda þá þekki ég dæmið ágætlega. Var að horfa á lokaatriðið á Music and Lyrics í hundraðasta sinn og vottaði fyrir tárum enn og aftur.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 17.9.2008 kl. 23:05

8 Smámynd: Rannveig H

 Vantar í þig töffaragenið stelpa,drífa sig á mótorhjól

Rannveig H, 17.9.2008 kl. 23:06

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ertu ólétt? Það er allt í lagi að skæla! Tár eru góð!!

Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 23:08

10 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ég spyr bara eins og Hrönn, ertu ólétt? eða hvað

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 18.9.2008 kl. 01:25

11 Smámynd: Linda litla

Anna Guðný: Ég er alveg sammála þér með glæstar vonir, ég veit ekkert hver á hvern eða hvað, hef bara tekið eftir því að það er mikið um makaskipti þar.

Varðandi þetta með tárin og væmnina þá er ég EKKI ólétt, EKKI á blæðingum, EKKI þunlynd(held að andlega hliðin sé ágæt núna), Veit reyndar ekkert um egglos..... veit bara að ég verð að snúa mér undan ef eitthvað fallegt, sorglegt eða eitthvað kemur í sjónvarpinu.

Rannveig: Það er spurning um töffaragenið.... það er örugglega bráðnað. Verð að taka mótorhjólapróf og vera kúl eins þú.

Linda litla, 18.9.2008 kl. 08:37

12 identicon

tíðahringurinn er svo frábær...er þetta ekki bara hann að dansa...

alva (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 08:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband