Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Sjálfsmorðstilraun.

Hvað er að fólki, ekki nóg með það að hann ætlaði að bæta met pabba síns, heldur var fyrra metið 14 rútur og bætti það í 24 rútur. Þetta er stórhættulegt og hefði maður getað stórslasast á þessu og jafnvel drepið sig.

motorhjol

fann þessa fínu mynd á netinu, þetta gæti sko alveg verið gaurinn.

Farið varlega í lífinu og ekki taka svona áhættur. SKAMM SKAMM


mbl.is Bætti met föður síns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plánetan Mars.... eða Yankee ??

Ég verð nú eiginlega að viðurkenna það að þessi mynd sem tekin er á Mars.... mér finnst hún einmitt minna á þetta góða í Mars-súkkulaðinu, þetta sem er undir karamellunni.

461237A

Nammi namm... það er svona líka í Yankee súkkulaðinu. slef slef Ég fæ nú bara vatn í munninn þegar ég skoða myndina.

Ég er farin að kaupa mér súkkulaði bæjó....


mbl.is Fyrstu myndirnar frá Mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öhhh..... veit ekki, bara .... FYRIRSÖGN.

Þetta er nú búið að vera meiri letidagurinn í dag. Ég snáfaðist í buxur um hálf átta leytið þegar að Vigga kom heim úr vinnunni, annars var ég búin að plana að vera dugleg að taka til og þvo þvott í dag.... NOT. Gerði ekki rassgat fyrr en eftir að Vigga og Bína voru farnar, þá vaskaði ég aðeins upp og henti í vél..... sko mig, þetta er alveg að koma hjá mér.

24 mai 060

Nú Bína kom líka í heimsókn og sátum við þrjár hérna að blaðra um utanlandsferðir frá okkur Viggu, þar sem að ég geri mig alltaf af fífli, en samt ekki málið er bara það að ég er ekki feiminn og læt allt vaða. Jæja, svo var rætt um tilvonandi kjéllingaferð í bústaðinn á Snæfellsnesinu... við erum orðnar soldið heitar fyrir henni, ágætt að ræða aðeins hvað þarf að hafa með, hvernig skal versla inn og hvort að ekki væri gaman að fá lánuð spil til að fara með eins og pictonary eða eitthvað álíka.... þetta verður ógeðslega gaman hjá okkur, ég er alveg viss um það.

Nú Hjörleifur minn var lasinn í síðustu viku og hafa þau ekkert komið í heimsókn vegna þess, ég er nú farin að sakna litlu ömmumúsarinnar minnar. Skelli inn einni mynd sem að ég tók á föstudag fyrir rúmri viku af honum heima hjá pa og ma á Hellu.

24 mai 061

Þarna er litli prinsinn minn nýrakaður og fínn. Hann breyttist ansi mikið þegar að María rakaði hann, hann varð nánast alveg eins og pabbi sinn.

Nú það gegnur bara nokkuð vel hjá pólsku strákunum mínum að byggja yfir svalirnar hérna hjá okkur. Ramminn er kominn utan um og glerin í, það styttist í þetta. Það verður alveg æðislegt þegar þetta er búið, þá verða svalirnar uppáhaldsstaðurinn minn í íbúðinni, þar ætla ég að vera með minn stól, mitt borð, kaffikönnu og öskubakka... aldrei að vita nema ég flytji rúmið mitt þarna fram líka.

24 mai 069

Ég ætlaði að henda inn einni skemmtilegri mynd af honum Kormáki sem var tekin um daginn þegar hann var í heimsókn í sveitinni hjá Maríu systur sinni, hann elskar sveitina og segist vilja búa í sveit. En hann er einmitt að fara þangað í viku þegar að skólinn er búinn. En skólaslitin hjá honum er 4 júní, á miðvikudegi. Nema.... mér bara tókst ekki að setja hana inn, þannig að ég skelli henni inn seinna.

Hafið það gott elskurnar, það ætla ég að gera og MUNIÐ að vera góð við hvert annað.

Kv. Linda litla lata.

24 mai 045

Taka 3849... það tókst, hér er myndin af Kormáki Atla í sveitinni. Krúttið mitt.


Skal vi SNAKK ????

Þetta er bara eins og á jólunum nema þá er salan svo mikil í hamborgarhrygg..... hehehehe Ég er ein af þeim sem að eyddi peningum í snakk fyrir kvöldið, hefði samt ekki verið nær að fara í "maður lifandi" og versla sér hollt snakk það fyrir júrókvöldið ???

snakk

Ég veit greinilega ekkert hvað ég á að blogga um, þetta er sú hallærislegasta bloggfærsla mín frá upphafi held ég HA HA HA HA


mbl.is Margföld sala í snakki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

10 stig fyrir krúttleika.

það sem liðið er af helginni er bara búið að vera fínt. Vigga kom á föstudaginn og lágum við yfir sjónvarpinu fram að miðnætti eða svo, þá tók alvaran við og ég réðist á höfuðleðrið á henni og plokkaði það upp í gegnum hettu.

24 mai 081

Já, það kostar að vera fallegur, hún var nú engin gella með þessa hetttu og brúskana upp úr götunum á henni. En þegar þetta var búið þá var nú lagst undir feld,  var það um 3 leytið held ég. Nú Svo í morgun lá hennar leið í vinnuna, alveg glænjúv leidý sko allt annað að sjá hana. Nú um 12 leytið ákvað ég að skella mér í bæinn og kíkja á Prikið og fá mér kaffi hjá henni, Kormákur var ekki á því að koma með, nennti því ekki þar sem að Vilborg vinkona hans var mætt á svæðið. Ég tók strætó og henti mér út á Hverfisgötunni, rölti upp á Laugarveg og ákvað að kíkja í TIGER og sjá hvort að ég gæti ekki keypt mér þar, er sko byrjuð að safna mér einvherju til að setja á flottu yfirbyggðu svalirnar mínar, sem eiga að verða tilbúnar í sumar. En að var ekkert merkilegt til í TIGER. Rölti þá yfir á Prik til Viggu, sem að leit út eins tvítug stúlka, nýskriðin af sviðinu í Ungfrú Ísland..... vá hvað hún var flott !!! Það var greinilegt að ég hafði aðstoðað við að gera hana svona fallega. Ég er ótrúlegur snillingur í því. Skil ekkert í því að ég skuli ekki vera að vinna við þetta, og fatta ekki heldur af hverju ég er ekki svona mikil bjútína.... kannski er þetta ekki að virka á mig.

24 mai 085

Ég reyndi að eltast við Svövu áður en ég kom í bæinn og reyndi að ná í Brynju líka og Emelíu... enginn svaraði mér. Mig langaði svo að einhver myndi hitta mig á kaffihúsinu. Enginn svaraði mér.... ég heppin, þegar ég kem inn á Prik, þá situr Tara mín þar.....

24 mai 084

frábært, þarna var kaffikona sem nennti að kjafta. Nú þarna sátum við til hálf sex og Vigga alltaf hjá okkur öðru hvoru. Það var yndislegt að komast út.

JÚRÓVÍSJÖN

Regína Ósk og Friðrik Ómar stóðu sig rosalega vel í kvöld, það skein af þeim sjálfsöryggið og ekki var að sjá neitt stress á þeim, OK... við lentum í 14 sæti, við urðum ekki neðst. Ég er mjög ánægð með árangur okkar. Rússarnir voru flottir og ég er ánægð með sigurlagið (þ.e.a.s. ef að ég horfi ekki á það). Það var fullt af góðum lögum, Króatar voru góðir, Portúgalar voru líka flottir, Danmörk.... eins og ég var búiin að segja þá fékk hann 10 stig frá mér fyrir krúttleika. Svíþjóð var flott ef að ég horfi ekki, Noregur voru góðir, Grikkland var flott, Serbía var flott.... eins og ég segi það var fullt af góðum lögum og ég er ánægð með keppnina.

lengilifieurovision

Jæja, ágætt í dag. Ég er þreytt eftir daginn og við mæðginin ætlum að fara að kúra okkur niður. ÁFRAM ÍSLAND !!!!!!


Skræpa dauðans.

Skræpa, skræpi, skræpó.... what ever, fannst þetta flott setning "skræpa dauðans". Þá er ég að tala um þennan umrædda jakka sem að Pétur Óli ætlar að gefa Páli Óskari ef að íslendingar lenda í fyrsta sætinu. Páll Óskar hefur jú alltaf verið mjög skrautlegur í klæðaburði en þessi jakki finnst mér aðeins of skræpóttur, held að hann færi Kalla Bjarna betur.

689179-965574

Á þessari mynd er Palli í spes jakkafötum, hann kann að klæða sig áberandi drengurinn. Það vantar ekki, og yfirleitt finnst mér hann soldið töff týpa.

 

Hvar skyldum við annars lenda í kvöld.... þetta verður spennandi.,


mbl.is Páll Óskar fær jakka í bónusvinning með sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alnæmis-uppboð í Cannes.

Meðal muna Madonnu sem seldust á uppboðinu er spegill, hárspenna, blautklútur og varagljái auk handtöskunnar sem er frá Chanel. Munir Madonnu seldust á 300 þúsund evrur, 34 milljónir króna.  Spáið í það, er hægt að vera svo frægur að maður getur selt hárspennuna sína ??

Það er frábært þegar að fræga fólkið tejur sig til og tekur þátt í svona löguðu, það komu a.m.k. miklir peningar fyrir það sem var í veskinu hjá Madonnu.

ukyol

Þetta er ekkert smá flott kona, er hún ekki einvhers staðar á milli fimmtugsog sextugs ?? Pælið í því ....


mbl.is Fjör á uppboði stjarnanna í Cannes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er sjónvarpið þitt bilað ????? fáviti !!!

Ég snáfaðist á fætur um klukkan 7 í morgun með Kormáki, kom honum í skólann og settist svo hjá viðhaldinu mínu (tölvunni) með djús og sígó. Var bara vel vöknuð og ætlaði að kíkja smá a´netið áður en ég færi að þvo þvott og taka eitthvað til hérna fyrir helgina. Ég hringdi í Örnu mína www.arnastjarna.blog.is heyrði aðeins í henni hljóðið, það er orðið langt síðan við höfum heyrst. Gott að frétta hjá henni sem betur fer er það nú. Nema, ég ákvað að skríða aðeins í rúmið aftur og hlýja mér á tánum.... hehehe geri það allt of oft, skrítið hvað þessar tær verða alltaf kaldar. Nema, ég er alveg að festa svefn þá hringir helv.. dyrabjallan. Það var einhver gaur sem spurði út úi sjónvarpið af því að það væri bilað. Ég sagði honum að það væri ekkert að imbanum hjá mér, en ef að hann vildi kíkja á inntakið skyldi hann bíða augnablik þarna frammi á meðan ég henti mér í brók. Helv.... kallinn kom ekkert aftur og ég var komin á fætur, ég varð sótill útí hann.

Vigga www.bifrastarblondinan.blog.is kemur um helgina, en hún er einmitt að vinna aukahelgi, þannig að við hittumst loksins. Ætlum að hafa það næs hérna 3 annað kvöld ég, hún og Kormákur og horfa á júróvísjön. Ég á von á Gullu www.gullaeinars.blog.is líka í dag, en hún er að fara í útskrift í borginni og ætlar að byrja á því að koma vð hjá okkur.

Annrs er eitthvað lítið að skrifa held ég. Það styttist í að skólinn klárist og þá taka við góðir dagar, við ætlum að vera dugleg að hreyfa okkur í sumar við mæðginin og vera lítið heima. Ætlum að hjóla mikið og vera mikið í heimsóknum, bara svona rétt að vara ykkur við...skellið í lás here we come.

Ég heyrði í Hrafnhildi systir í gær www.osland.blog.is það er nóg að gera hjá henni eins og alltaf, þau skemmtu sér vel í útlöndum hún og Guðjón, Guðjón er að klára 10 bekk í Árskóla á Sauðárkróki, en hann er einhverfur strákur.... flottur strákur.

Segi þetta gott í bili, veit ekkert hvað ég er að bulla, en fyndið samt.... allt fólkið sem að ég er búin að tala um hérna, allir eiga bloggsíðu. Þetta er Ísland í dag.


Fíkniefnameðferð bíður hans.

Ég væri sko alveg til í að skella mér í meðferð þessa dagana, bara svona til upprifjunar hehehhe Nei, ástæðan er sú að Steven Tyler er að fara að skella sér í meðferð og mig langar líka bara til að vera með honum LOL HOW SICK IS THAT ?? Er hægt að vera meiri fan ?

hver er hann

Steven Tyler er nú sá flottasti sem uppi hefur verið. Hann er mitt GOÐ, og það breytist seint ef ekki aldrei. Við Vinkonurnar ég og www.bifrastarblondinan.blog.is fórum á tónleika með þeim í Aerosmith fyrir nokkrum á Wembley í London....... það var geggjað. Við vorum á geggjuðum stað, mjög framarlega. Vigga fór einu sinni á tónleikunum að sækja handa okkur að drekka og var það alveg ótrúelgt að hún rataði aftur til mín og ekki nóg með það, þá var hún með eitt kókglas fyrir sig og bjórglas fyrir mig sem að hún komst með í gegnum þvöguna án þess, ég endurtek ÁN ÞESS að það hafi farið dropi til spillis hjá henni. Ég aftur á móti, hefði pissað á mig þanra og skrælnað til dauða í hitanum frekar en að fara frá góða staðnum.

jota_leal_caricatures_16

EN gangi honum bara vel í meðferð.... og vonandi eiga þeir eftir að koma hingað til lands og leyfa mér/okkur að njóta þess að hlusta á þá.

Það er talað um það í fréttinni að á níunda áratugnum hafi hann veri nær dauða en lífi eftir margra ára sukklíferni...... hvaða rokkari hefur ekki staðið í þessu líferni ?? Ég bara spyr ?


mbl.is Steven Tyler farinn í meðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá dómar á lögin fyrir úrslit.

Litháar: Lagið var flott en söngvarinn, guð minn almáttugur minn eini, Jósef, María og allir lærisveinarnir.... söngvarinn var skelfilegur og rammfalskur.

Danmörk: Vá hvað söngvarin var sætur, hann fær alveg 10 stig fyrir það. Lagið var allt í lagi, minnti soldið á lag úr einhvejrum framhaldsþætti.

Georgia: Söngkonan þurfti a.m.k. ekki að vera stressuð þar sem að hún sá enga í salnum, enda blind blessuð konan. Lagið allt í lagi, þetta var einhver friðarsöngur.

Malta: Oft hefur mér þótt lögin frá þeim ágæt, núna...... ég á eiginlega bara ekki til orð yfir það hvað það var hræðilegt.

Portúgal: Það var ekki slæmt, bara nokkuð gott.

Svíþjóð: Lagið slapp, en söngkonan..... sú er búin að láta strekkja sig marr. vá... oj

Lettland: Ég beið eftir að sjá Gilzenegger á sviðinu, en hann mætti ekki.

Króatía: Létt og bara nokkuð skemmtilegt.

Ungverjaland: Ágætis ballaða.

Ísland: Ekki spurning, langskemmtilegsta lagið, þau voru æðisleg á sviðinu. Glaðleg og ánægð með sig.

Hin löndin sem ekki fengu dóm hér..... hafa greinilega ekki verið nóg og áhrifamikil.

Jæja, núna ætla ég að sjá hvernig þetta fer....

Áfram Ísland Wizard

EUROBAND_jpg-RESIZE-257-172

Og auðvitað komumst við áfram, hvernig er annað hægt með þessa frábæru söngvara ??


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband