Færsluflokkur: Bloggar
5.9.2008 | 10:08
Allt of mikið álag á starfsfólkið.....
Níu börn hafa fæðst á fæðingadeild Landspítalans i dag......... ljósmæður í verkfalli !?!?!??!
Hvernig væri að fara að gera eitthvað fyrir ljósmæður ?? Þeirra starf er mjög mikilvægt og nauðsynlegt fyrir okkur að hafa ljósmæður að störfum.
Tveggja sólarhringa verkfall ljósmæðra hófst á miðnætti í nótt. Ekki draga þetta, semjið við þær !!
Það góða er að það standa allir með ljósmæðrum, enda verða þær að vera staðar fyrir ófrískar konur. Hvað er málið ??
Af hverju að vera að draga að semja ?? Þetta er bara aukið álag á starfsfólk spítalana að draga þetta svona.
Áfram ljósmæður, ég vil að þið fáið ykkar. Hvað sem það kostar.
Við þurfum á ykkur að halda.
Til hvers að draga það að semja ?
Til hvers að leggja slíkt álag á aðra svo hægt sé að draga samninga á langinn.
Við stöndum öll með ykkur ljósmæður....
Við gefumst ekki upp..... keep on going !!!!
![]() |
Mikið álag á starfsfólki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2008 | 09:01
Beina leið á ólympíuleikana...
Jæja núna er kominn nýr dagur, ég er aðeins skárri í bakinu í dag en í gær. Skelfilegt þegar ég fer svona. Ég verð samt vonandi betri um helgina, þar sem að ég er að fara austur.
En varðandi daginn í gær..... judoið sko. Vá Kormákur byrjaði að tala um það um leið og hann vaknaði í morgun, hann er svoooo glaður. Mér finnst það alveg yndislegt.
Það góða við judoið er að upphitunin er púl fyrir gaurinn minn, hann er nokkuð þéttur og hann er í rauninni að læra að fara í almennilegan kollhnís og gera armbeygjur og hlaupa áfram og aftur á bak, hoppa á einum fæti, þetta er allt erfitt fyrir hann og hann svitnar og svitnar.... en hann elskar þetta og mér finnst það frábært.
Hann er strax búinn að eignast félaga þarna, en hann einmitt með honum á þessari mynd.
Elsku Kormákur minn var búinn að fara í einn prufutíma þegar hann var svo spenntur að hann er ákveðinn í að fara á ólympíuleikana seinna.
Alla vega...... nóg í bili, hafið það gott elskurnar.
Kv. Linda litla judomamma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.9.2008 | 22:54
Er að farast i bakinu.
Hæ hæ allir.
Þetta er búið að vera erfiður dagur hjá mér í dag. Ég er hreinlega búin að vera alveg frá í bakinu. Ætli ég sé ekki búin að liggja of mikið fyrir undanfarið, alla vega er þetta búið að vera slæmur dagur.
María og Hjörleifur kíktu á okkur en þau voru farin aftur austur um klukkan 8 í kvöld. Við fórum í judofélag Reykjavíkur, Kormákur átti að mæta þar í prufutíma klukkan 16.30. Honum fannst það æðislegt. Ég er ekkert smá fegin, þar með erum við búin að finna íþrótt fyrir hann. Hann verður á æfingum í vetur alla þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 17:30.
Læt þetta stutta blogg duga. Er að fara austur á morgun, sé til hvernig ég verð, hvort að ég bloggi áður en ég fer.
Hafið það gott elskurnar.
Kv. Linda litla bakveika.
p.s.
Gleymdi að segja ykkur að ég sótti um fjarnám á netinu í dag. Sótti um ensku og íþróttir. Varð að drífa mig í þetta, umsóknarfresturinn rennur út 7 sept og ég ætlaði sko ekki að vera of sein.
Ok... gúdd næt þið sem eruð að skríða í ból. Ég ætla að liggja hérna upp í sófa eitthvað áfram, er að horfa á einvherja ógeðsmynd á bíórásinni.
bæjó beibs.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.9.2008 | 20:10
Krúttí sexý leikari (HOT).
Hugh Grant að reyna að hössla eina gellu sem er 20 árum yngri, hann ætti nú ekki að vera í neinum vandræðum með að ná sér í kærustu. Hugh Grant er flottur, hann er líka eitthvað svo vandræðalegur alltaf og það gerir hann svo mikið krútt.
Mér finnst hann svo mikill krútt leikari, ég svona "ohhhhhhhhhh......." þegar ég sé hann. Ó mæ god, hvað ég er eitthvað væmin núna.
I need help...... right NOW.
![]() |
Með grasið í skónum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.9.2008 | 11:09
Í skottinu í 3 sólarhringa.
Kallgreyjið, ég er ekki hissa á þvi að hann hafi þurft að fara í "þrifabað" eftir dvölina í þrjá sólarhringa í skottinu á bílnum sínum. Ekki öfunda ég hann af þessari dvöl.
Jæja, út í allt annað. Heimilishjálpin kom og lét ég hana ekki gera mikið í fyrsta skiptið, við töluðum ansi mikið. Það kom í ljós að auðvitað þekkjum við sama fólkið. Ég þekki hennar fyrrverandi, það var bara fyndið þegar það kom í ljós. En mér líst vel á hana, held að hún sé dugleg, og hún virkar bara mjög vel á mig. Hlakka bara til að fá hana til mín aftur.
Annars er ég að spá í að leggja mig aftur, skríða undir feld þangað til Kormákur kemur heim úr skólanum.
Góða nótt þangað til ég vakna hehehehehe
kv. Linda litla sybbna.
![]() |
Lokaður í skottinu á bíl sínum í þrjá sólarhringa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.9.2008 | 08:01
Heppinn að hafa verið lífgaður við.
Það eru daglegar fréttir af Pete Doherty, ég er nýbúin að lesa um þar sem að hann missti af einhverju flugi og svo miður sín að hann fór að gráta. Ég er ánægð með það, hann er greinilega ekki á því að karlmenn gráta ekki. Það er einmitt mannlegt að gráta.
Núna er hann í fréttunum þar sem sagt er að hann hafi verið lífgaður við eftir að hafa neytt og mikils fíkniefna. Það er alveg sorglegt að sjá hvernig sumir fara illa með sig, það er vonandi að drengurinn fari að leita sér hjálpar við þessum sjúkdóm sínum. Batnandi fólki er best að lifa, það er alveg ljóst.
Jæja, annars byrjaði dagurinn hjá okkur Kormáki klukkan 7, þá fórum við á fætur. Ég smurði rúgbrauð og orkubrauð á fat og svo kom Skjöldur rétt um hálf átta, en hann kemur til okkar á morgnana þegar Sædís (mamma hans) er á morgunvakt í vinnunni sinni. Núna eru þeir búnir að borða og eru að gera sig klára fyrir skóladaginn.
Heimilishjálpin kemur klukkan 9 til mín. Ég er eiginlega að vona að hún sé íslensk, þó að ég telji ekki miklar líkur á því. Hálf kvíður fyrir því ef að hún er Asíubúi og talar lélega íslensku eða ensku. En það kemur allt í ljós eftir klukkutíma.
María og Hjörleifur koma i dag en ég veit ekki hver lengi þau stoppa. Það verður gaman að fá þau mæðginin.
Jæja, ágætt í bili. Gangið varlega inn í nýjan dag, en njótið hans samt, veðrið er fallegt.
Kv . Linda litla lipurtá.
![]() |
Doherty dó en var lífgaður við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.9.2008 | 23:16
Svefninn sækir á mig endalaust, hvað er til ráða ??
Jæja gott kvöldið félagar. Þetta er búinn að vera frekar mikill letidagur hjá mér, fyrir það fyrsta þá drullaðist ég ekki á fætur fyrr en rúmlega hálf 3. Mikið var samt gott að sofa og vera latur he he he. Eyddi smá tíma í tiltekt, en samt allt of litlum. Án alls gríns, ég er að drepast úr leti og syfju, veit ekki hvað er með mig, ég virðist þurfa að sofa í 12-18 tíma. Þetta er eiginlega óþolandi. Jæja, við Kormákur fórum í hjólreiðatúr seinni partinn og VÁ !!!! ég var að springa, ég hélt hreinlega að ég myndi ganga frá mér endanlega. Ég var svoooo móð og svitinn vá, hann spratt á mér á ofsahraða. Guð minn eini hvað ég var fegin þegar við komum heim aftur og þá var ég búinn að ganga alveg fram að fótunum í hjólreiðatúrnum, ég hélt að ég kæmist ekki heim...... ég var næstum farin að gráta þegar ég kom í stigann og hugsaði "kommon, af hverju bý ég uppi á 3 hæð, af hverju er ég ekki á jarðhæð".
Annars er dagurinn bara búinn að vera fínn, þetta litla sem ég hef verið vakandi. Kormákur var duglegur að læra eftir kvöldmat, svo horfði hann smástund á imbann og fór svo inn að sofa.... Nákvæmlega HANN fór inn að sofa. Þetta hefur ekki skeð í ár og aldir, hann vill alltaf að ég komi með sér inn og við lesum saman´, hann er eitthvað smeykur við nóttina. Nema núna fór hann inn þegjandi og hljóðalaust og ég heyrði bara allt í einu að hann var inni í herbergi að lesa, hann var örugglega að lesa fyrir kettina, því að aldrei þess vant þá fóru þeir inn með honum.
María og Hjörleifur koma á morgun, býst við því að þau komi fyrir hádegið. Veit ekki alveg hve lengi þau ætla að stoppa, en það kemur bara í ljós.
Jæja, segjum þetta gott í bili. Hafið það gott elsku vinir og takk fyrir lesninguna ef að þið nenntuð að lesa þetta. Góða nótt og farið varlega inn í nóttina.
Kv. Linda litla svefnpurrka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.9.2008 | 15:14
Ég var klukkuð.
Fjögur störf sem ég hef unnið um Ævina
0 Kjötvinnsla SS
0 Reykjagarður
0 Vörufell
0 Skagfirðingabúð
Fjórar Bíómyndir sem ég held upp á
0 Pretty woman
0 Top secret
0 Borat
0 Robin hood, man in tights
Fjórir staðir sem ég hef búið á
0 Hvolsvöllur
0 Hella
0 Sauðárkrókur
0 Reykjavík
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar
0 America´s funniest home videos
0 Pet rescue
0 Planet´s Funniest animals
0 Sexual healing
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríium
0 Spánn
0 Kúba
0 England
0 U.S.A.
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg
0 mbl.is
0 facebook.com
0 barnaland.is
0 myspace.com
Fernt sem ég held upp á matarkyns
0 Kjúklingur
0 Kjúklingur
0 Fiskur
0 Fiskur
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft
0 Secret
0 Símaskráin
0 Varstu að freta Fróði
0 Kökubók Hagkaups he he he
Fjórir bloggara sem ég klukka
0 Bifrastarblondínan (Vigga)
0 Lilja Loga
0 Beggita (Begga)
O Hross (Ragga)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.9.2008 | 20:44
Í fangelsi fyrir samkynhneigð.
Þótt Sameinuðu arabísku furstadæmin leggi nú mikla áherslu á alþjóðlega ferðaþjónustu er stjórnskipunum afar íhaldssöm og samkynhneigð og vændi eru ekki liðin. A.T.H. samkynhneigð og vændi ekki liðið......?!?!?!?!? Hvað er sameiginlegt með samkynhneigð og vændi ??
Þoli ekki svona, hvað eru samkynhneigðir öðruvísi en gagnkynhneigðir ?? Eini munurinn er að þeir kjósa eigið kyn, hef aldrei þolað fordóma gagnvart hommum og lebbum, á eiginlega erfitt með að þola fordóma.
En alla vega, fyrsti dagurinn í Bónus búinn og hann gekk bara alveg gríðarlega vel og mér MJÖG vel tekið. Mikið um að fólk talaði um hvað það væri gott að fá íslending í afgreiðsluna og enn skemmtilegra að íslendingurinn skuli vera fullorðinn. Þetta var bara gaman, bíð spennt núna eftir fyrstu vinnuhelginni minni.
Segi þetta gott í bili, eigið þið gott kvöld með ykkar nánustu, það ætla ég að gera. Góða nótt.
Kv. Linda litla íslenska bónus-stelpan.
![]() |
Ósiðleg framkoma í Dubai |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
1.9.2008 | 12:30
Aðlögunardagurinn stóri.
Það er kominn 1. september. Mér finnst sumarið rétt að byrja og það er kominn 1. september, ég er ekki alveg að átta mig á þessu.
Kormákur og Bergur komu heim úr sveitinni í gær og voru held ég báðir ánægðir með helgina, hitti Berg ekki en mér skilst að honum hafi þótt gaman, sá það á síðunni hjá mömmu hans. Kormákur var a.m.k. ofsalega ánægður með helgina. Hann fór í skólann í morgun á sínum tíma auðvitað og þegar hann kem urheim þá verður enginn heima.
Ég er að fara í aðlögun í Bónus á eftir klukkan 14:00 og verð til lokunar. Ég er búin að tala við Unni þannig að ef að eitthvað kemur upp á hjá honum þá hringir hann bara í ömmu sína. Það verður víst ekkert sem kemur upp á, en gott að hafa einhvern á bak við til öryggis.
Síðasta vika er búin að vera mjög róleg hjá mér, ég er búin að gera ótrúlega mikið af því að sofa. Ég hef ekki einu sinni sett í þvottavél..... ég lýg því, ég er einmitt búin að setja í þvottavél og gleyma því aftur og aftur og er þess vegna búin að þvo þennan þvott ansi oft...... og hann hefur ekki þornað ennþá. Skil ekki þessa endalausu leti í mér.
Hjörleifur litli ömmustrákurinn minn kom í heimsókn í gær auðvitað með pabba sínum og mömmu þegar þau skiluðu Kormáki, og ég er ekki frá því að ég hafi séð tvær tennur en ekki eina. Þvílíki töffarinn sem hann var í snjáðum gallabuxum og gul köflóttri skyrtu skyrtu með uppbrettar ermar og hvítri peysu innanundir. Er bara ekki búin að tæma kubbinn í tölvuna, fáið að sjá myndir seinna.
Jæja, segi þetta gott í bili, þarf að fara að snáfast í einhver föt og koma mér í "vinnuna" æðislegt, mikið hlakka ég til að fara að vinna.
Takk fyrir að lesa, ef að þú gerðir það.
K v. Linda litla bónusstelpa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
bifrastarblondinan
-
doramaggy
-
halkatla
-
annabjo
-
diddan
-
ragjo
-
greenbrown
-
ingunnjg
-
katja
-
gullaeinars
-
siggathora
-
loathor
-
komaso
-
addabaldurs
-
raggafg
-
ollana
-
gelgjan
-
kruttina
-
arijosepsson
-
asthildurcesil
-
beggita
-
biddam
-
brandurj
-
brybba
-
skordalsbrynja
-
tungirtankar
-
jyderupdrottningin
-
rannug
-
topplistinn
-
gydadrofn
-
osland
-
hronnsig
-
hugarafl
-
danjensen
-
kliddi
-
ijt
-
keli
-
jonaa
-
ktomm
-
markusth
-
rebekkarut
-
roslin
-
sisvet
-
bogatun8
-
sikklida
-
scorpio
-
svala-svala
-
svetlana
-
taraji
-
skog3