Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Prinsinn á hvíta hestinum.

Halló Halló Halló !!! Var að koma heim og klukkan er að verða 4, er búin að vera að vinna síðan klukkan 6. úfffff... svo fer ég aftur að vinna 11:45 á morgun.

Vitið þið hvað !?!???! Ég hitti draumaprinsinn minn í kvöld.... vá hann er svo sætur, skemmtilegur, kurteis, kammó.... bara name, hann er æði!! Hann kom sko á barinn og hann æltar að koma á morgun að horfa á landsleik Íslands á móti Pólverjum. Vá hvað maðurinn er mikill draumur, shit, ég verð að giftast honum. Hann kynnti sig og spurði hvað ég héti... svo spurði hann mig hvenær ég væri fædd og auðvitað sagði ég 1971 hann gapti og sagði nei í alvöru, hann hélt að ég væri "78 model...... ég varð audda að segja honum að ég væri amma, þá duttu augun í honum á gólfið og ég stökk af stað og tók þau upp og rétti honum. Kræsturinn, ég er ástfangin.. Samt er einn galli... nei, hann á ekki kærustu... ó mæ god.. hann er 25 ára!!!!

Ég gæti næstum verið mamma hans. Tengdasonur minn er 5 árum eldri en hann. Þar með fór draumurinn um riddarann á hvíta hestinum fyrir vísindin.

Jæja.... annars ætti ég ekki að sitja hérna við tölvuna, þarf að mæta í vinnu eftir 8 tíma. Verð að hendast í rúmið. Varð bara aðeins að losa um..... hann er svoooo mikið krútt.

Jæja.,... góða nótt. Dreymi ykkur vel, það ætla ég að gera og ég veit hvað mig dreymir hehehehehehehe

gúdd bæ and over and out.


Loksins samtök fyrir mig ;o)

Félagssamtök einhleypra á Íslandi. Frábært, ég er að spá í að ganga í þessi samtök, hvar ætli maður fái meiri upplýsingar um þau. Ég á líka fullt af vinkonum sem að ég get dregið með mér í þetta. Ætli það sé ekki eitthvað úrval af einhleypum karlmönnum þarna líka he he og je je Það er ball á skemmtistaðnum Primo í Keflavík á laugardaginn..... kemst ekki þangað, er að fara austur fyrir fjall.

Endilega einhver, ef að þið vitið eitthvað um þetta, látið mig vita.

Annars bara já, er að finna mig til fyrir Helluferð. Vona að það skjálfi ekki mikið um helgina, ég verð heima hjá Gullu en ég verð ein þar. Gulla er ennþá að dingla sér í Slóveníu, vonandi hefur hún það gott þar.

Góða helgi krúttin mín og farið varlega.

Kv. Linda litla einhleypa.

 


mbl.is Dansiball bara fyrir einhleypa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt lúkk, var að lita á mér hárið.

jarðskjalftadagur

Var að skola litinn úr, og María smellti af mynd...... Loksins orðin dökkhærð aftur Wizard


Ingibjörg og Geir hvað ???

Ég get ekki skilið til hvers í ands....... Geir og Ingnbjörg eru að fara austur..... ætla þau að slökkva á skjálftasvæðinu ?? Held að þeim væri nær að sinna sínum málum, ætli þau taki sér kannski einkaþotu á leigu á skjálftasvæðið ???

Arg..... hef aldrei skilið þegar að pólítíkusar eru að heimsækja svona.... segjast vera að sýna stuðning... get ekki ímyndað mér að það sé mikill stuðningur í því.

Langar að benda fólki á síðuna, www.123.is/gardar þar sem að hann talar um skjálftann í dag og þann fyir 8 árum. Þar sjáið þið mun á viðbrögðum  við hjálp í skjálftanum.

mynd48a

Þessi mynd er einmitt tekin eftir skjálftann á þjóðhátíðardeginum árið 2000.


mbl.is Geir og Ingibjörg Sólrún fara á skjálftasvæðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jarðskjálfti+Krónan+hauslaus maður........

Jæja, dagurinn byrjaði nú bara ansi vel, ég hentist á fætur um 10 skellti mér í sturtu og niður, það passaði María og ömmumús voru komin í bæinn og lent fyrir utan Unufellið. Þvílíka elsku krúttíbollan mín, það er held ég hálfur mánuður síðan ég sá hann Hjörleif síðast.

jarðskjalftadagur 002

Hann er orðinn eitthvað svo stór og mannalegur eftir að María rakaði á honum höfuðið. En alltaf sama krúttíbollan. Jæja, leiðin okkar lá í nýju Krónubúðina í Lindunum sem átti að opna klukkan 11, lentum þar rétt rúmleg og ætluðum sko aldeilis að nota þessi frábæru tilboð sem voru þar í gangi...... en NEI.. við hættum við, þetta var biðröðin fyrir utan þegar þangað var komið.

jarðskjalftadagur 003

Nú, við snérum við og ákváðum að kíkja bara í Smáralindina, geri reyndar ekki mikið af því að fara þangað., mér leiðist hún. En við kíktum m.a. í Söstrene Grene og þar keypti ég blómapotta fyrir nýju trén min og ég get sagt ykkur það að mér hefur alltaf fundist gaman að versla þana, ódýr og skemmtielg búð....... það eru breyttir tímar, ég ætlaði varla að tíma að kaupa þessa potta, þeir voru bara frekar dýrir og bara allt orðiðð dýrt þarna.

jarðskjalftadagur 004

Nú þarna var maður sem að lá greinilega svo mikið á, að hann gleymdi bara hausnum á sér í búðinni.

 Jæja, kíktum í Debenhams, Hagkaup, Vodafone, Tiger og eitthvað fleira. Eyddum bara ágætis tíma þarna. Nú svo prófuðum við nú aftur að fara í nýju Krónuna, það var allt annað. Það var jú heljarinnar biðröð en það var bara biðröð í pylsurnar sem verið var að grilla fyrir utan.

jarðskjalftadagur 005

Nú auðvitað var SÁÁ álfurinn keyptur, myndin bara frekar dökk.... æææ

Krónan er mjög flott og stór og úrvalið af grænmeti og ávöxtum er alveg til fyrirmyndar sérstaklega miðað við að þetta er lágvöruverslun og þeir hafa hingað til ekki verið að selja fallegasta grænmetið/ávextina. Það var allt fullt af tilboðum og fröken Króna gekk um og var að gefa fólki smakkerý.

jarðskjalftadagur 006

Þetta var hin myndarlegasta Króna og sú skemmtilegasta sem að ég hef hitt og var meira að segja svo almennileg að leyfa mér að taka mynd af sér. Geri aðrar Krónur betur hehehehe Nú á leiðinni úr Kóðavoginum fannst mér alveg tilvalið að taka mynd af stærstu byggingu á Íslandi, það eru jú ekki allir sem hafa séð hana.

jarðskjalftadagur 007

Byggingin minnir mig nú eiginlega svolítið á skakka turninn í Piza... ég var samt ekkert búin að drekka þegar ég tók myndina...... sver það.  Nú jæja.... núna lá leiðin heim í Breiðholt. Fórum upp með pakka og pyngjur og það var nóg af drasli til að bera upp. María fer að hræra graut fyrir Músa, hann borðar voða vel og svo bara drummmmmmmmm...... kom þessi jarðskjálfti. Ég fór aftur um 8 ár.... suðurlandsskjálftinn á Hellu þann 17 júní árið 2000. Þetta fannst mér heldur óþægilegt, en shit happens... þetta er jú bara jarðskjálfti, það er ekki eins og ég hafi ekki fundið hann áður.

Nú við fórum bara út og skruppum á rúntinn, þá lá leiðin til Brynju í Olís. Stoppuðum þar í dágóða stund að kjafta og hlusta á fréttirnar.

jarðskjalftadagur 011

Þegar ég heyrði um styrkleikann þá hugsaði ég austur fyrir fjall, og fann mikið til með fólkinu þar. Ég hef upplifað þetta og það vil ég ekki öðrum, því að það er gífurleg hræðsla og ótti sem að fylgir þessu. Elsku íbúar þarna fyrir austan, þið eigið alla mína samúð og ég sendi ykkur styrk. Ég veit hvernig ykkur liíður. Ég vildi eiginlega að ég gæti bara farið í Hveragerði og hjálpað til í áfallahjálpinni. Ég var svooooo þakklát fyrir það að María og Hjörleifur hefðu komið í bæinn, af því að María er svo hræðilega hrædd við þetta og þá var nú betra að hún var hérna heldur en fyrir austan og það hjá mömmu sinni.

Jæja.... það verður víst að halda áfram að gera það sem þarf að gera... ég eldaði lambalæri í kvöldmat og buðum við Björk í mat þar sem að hún er jú ein af því að Bergur er farin í sumarfrí til pabba síns í Danmörku. Lærið var geggjað og sósan bara snilld hjá henni Björk og bæði fyrir of eftir matinn var sko dekrað og dúllað við litla sköllótta ömmustrákinn.

jarðskjalftadagur 012

Þó að maður sé nú bara 4mánaða, þá er maður svo stór og duglegur og getur sko alveg setið og spjallað um lífið og tilveruna.

Elsku sunnlendingar.... ég sendi ykkur styrk og stuðning. Reynið að slaka á og þið sem sofið í tjöldum, fellihýsum, tjaldvögnum og þ.h. látið ykkur ekki verða kalt. LOV YA......

Linda litla.


Afmælisbarn dagssins.

afmæli Kormáks 036

Anna Bíbí frænka er afmælisbarn dagssins, hún er 4 ára í dag.


Hvar hafa þeir hægðir ?

Vá hehehe þetta er ekkert grín. Eina klósettið bilað. Það er víst alveg örugt að þeir stökkva eki út til að skreppa á kamarinn og enn síður út í runna. Hvað gera aumingja mennirnir ?? Mér finnst þetta eiginlega hálfhlægilegt en samt líka eiginelga hræðilegt..... ég vona a.m.k. þeirra vegna að þeir séu eins og ég..... ekki með lyktarskyn

everybodypoops


mbl.is Eina geimklósettið bilað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjóræningjar....

Ætli þessir sjóræningjar séu að koma frá Serbíu ?? Eru þetta þeir sömu og tóku þátt í Eurovision keppninni í Serbíu ?? Þeir eru örugglega styggir, enda gekk þeim heldur ekki of vel í keppninnni.

5206

HEY HEY HEY HO HO HO !!!


mbl.is Herliði sigað á sjóræningja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri að borga almennileg laun !?!?!?

Nei.. ekki samþykkja gagntilboð félags íslenskra hjuúkrunarfræðinga. Við skulum halda áfram þessu launamisrétti í landinu. Ég meina.... hjúkrunarfræðingar, hvað gera þeir ?? Hjálpa/bjarga þeir nokkuð veikum einstaklingum ? Gera þeir eitthvað gagn ?

Nei nei alls ekki. Ég  veit !! Hækkum frekar launin hans Davíðs Oddssonar hann er er bankastjóri og sjálfstæðismaður, það er miku meiri þörf á því

dabbi

Verð að bæta hérna við.... Sáuð þið fréttirnar ?? Laun bankastjóranna ?? Þá er ég nú ekki að tala um Davíð Oddsson, hann er bara hérna af því að myndin er svo fyndin.

En sáuð þið tekjurnar...... hvað var bankastjóri Glitnis með var hann ekki með því sem jafngilti 240 ævilaunum verkamannsins ??? Er það ekki rétt munað ?? HVAÐ ER AÐ ??

Á þetta að vera hægt ? Hvað finnst þessum manni um launakjör á Íslandi ?? Ætli honum finnist þetta í lagi ?

Sko.... núna þarf að taka alla saman, stokka spilin upp á nýtt og gefa aftur. Þetta fer ekki hægt,  þetta gengur ekki. Það verður að gefa upp á nýtt.


mbl.is Ríkið hafnaði gagntilboði hjúkrunarfræðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of mikið plast.... maðurinn hlýtur að bráðna í sól.

Án gríns... hann er bara plast... skildi hann taka þá áhættu að fara í sólbað ?? Öruglega ekki, hann myndi bráðna eins og smjör. Skil þetta ekki, eins og þetta var myndarlegur maður áður en hann fór í allar þessar lýtaaðgerðir, sjáið nefið á honum !?!??!?! Það er skelfilegt. Húðlitinn.... hann er ekki einu sinni hvítur eins og við hvíta fólkið. Maðurinn er bara MONSTER ekkert annað.

Ekki skrítið að hann sé kominn í hjólastól eftir allt það sem að hann hefur látið gera við sig.

micha

Þetta er nú bara fyndin mynd... ætli þetta hafi komið fyrir hann einhver tímann ?? Að nefið hafi bara runnið af ??  LoL

Aumingja maðurinn er eins og API.... sorry, þið þarna Jackson aðdáendur. Þ.e.a.s. ef að þeir eru til á Íslandi.


mbl.is Jackson í hjólastól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband