19.11.2007 | 22:36
Hornskápur til sölu, kostar meira en tölu.
ÉG vil byrja á því að segja ykkur að þessi fallegi furu hornskápur er til sölu á litlar 15.000 krónur, hafi einhver áhuga er honum bent á að hafa samband við Unni í síma 8465210 en hún er einmitt nýflutt í nýtt húsnæði og það er ekki pláss fyrir skápinn.
Það er búið að vera mikill þvælingur á mér í dag, ég er búin að fara í BYKO með tengdó að kaupa baðkar og ljós, svo kíktum við í Mjóddina, Rúmfatalagerinn í Smáranum og svo sóttum við Berg, en hann verður einmitt hjá okkur Kormáki á mánudögum og þriðjudögum í vetur. Þegar Björk kom að sækja hann, þá reddaði hún sjónvarpinu fyrir mig. Það var eitthvað rugl á því eftir að ég fékk sjónvarpsskápinn, eitthvað vitlaust tengt hjá mér, en ég er einmitt ekki mikill tækja og tóla gúrú. Verð alltaf að fá hjálp við svona lagað, enda búin að vera sjónvarpslaus í næstum viku það er reyndar ekkert að bögga mig þar sem að ég horfi nánast ekkert á sjónvarp, en Kormákur vill sjá barnatímann á daginn.
Ég spjallaði við Maríu mína í dag og hún býst við að koma suður á fimmtudaginn, en hún kemur nú yfirleitt til mín a.m.k. einu sinni í viku. Ég keypti einmitt barnastóla sessu í Rúmfó handa tilvonandi ömmubarni í dag, sem kostaði litlar 99 krónur. Við erum mæðgurnar erum orðnar miklu tengdari eftir að hún varð ófrísk, sem er náttúrulega bara gott mál.
Þetta er víst ágætt í bili, held að ég komi mér snemma í rúmið í kvöld. Takk fyrir lesturinn og hafið það gott. Kv. Lindalitla.Það er eins gott að það fór ekki svona þegar ég var nærrum búin að kveikja í um daginn. Ég býst við að ég myndi frekar brenna inni heldur en að sjást svona á almannafæri, ég er svo roooooosalega feimin.
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 232881
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- bifrastarblondinan
- doramaggy
- halkatla
- annabjo
- diddan
- ragjo
- greenbrown
- ingunnjg
- katja
- gullaeinars
- siggathora
- loathor
- komaso
- addabaldurs
- raggafg
- ollana
- gelgjan
- kruttina
- arijosepsson
- asthildurcesil
- beggita
- biddam
- brandurj
- brybba
- skordalsbrynja
- tungirtankar
- jyderupdrottningin
- rannug
- topplistinn
- gydadrofn
- osland
- hronnsig
- hugarafl
- danjensen
- kliddi
- ijt
- keli
- jonaa
- ktomm
- markusth
- rebekkarut
- roslin
- sisvet
- bogatun8
- sikklida
- scorpio
- svala-svala
- svetlana
- taraji
- skog3
Athugasemdir
Jáhá-þú hefðir kannski hent "klossum" í slökkviliðskallinn ef hann hefðir reynt að aðstoða þig við að komast út, dáið svo drottni þínum við að koma þér í föt hehehe
Ég er fegin að ekki fór svona - því heimurinn væri svo mikið einmanalegur án þín í honum elsku vinkonan mín.
Knúsur
Dísaskvísan
Dísaskvísa (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 23:05
Sammála Dísu
Gulla (IP-tala skráð) 20.11.2007 kl. 01:33
æi.... sætt en... haldið þið í alvöru að heimurinn yrði einmannalegur án mín
Linda litla, 20.11.2007 kl. 16:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.