9.1.2008 | 22:40
þunglyndi,svefn....... ok, ég reyni að rífa mig upp.
Óþolandi dagar alve3g, ég er að flippa yfir úr leti eða þunglyndi, veit ekki alveg undir hvaða flokki þetta stendur. Ég geri a.m.k. ekkert annað en að sofa, ég fer yfirleitt í rúmið fyrir miðnætti og fer á fætur kl. 3 seinni partinn. Mig vantar svo eitthvað til að rífa mig upp á rasshárunum. Ég afrekaði það þó í dag að henda þessu blessaða jólatré út á svalir hjá mér, Kormákur og Vilborg voru svo dugleg að týna af því jólaskrautið annars hefði ég sjálfsagt hent því bara með út á svalir. Ég er búin að vera á leiðinni á féló alla vikuna, en hef ekki haft mig út ennþá. Samt veit ég að ég verð að drullast þangað ef að ég ætla mér að komast í Grettistakið. Kannski ætti ég að kíkja á doksann minn og biðja hana um að breyta þessum þunglyndislyfjum mínum, held að þau séu ekkert að virka neitt fyrir mig. Reyna að fá eitthvað örvandi í staðinn, það hlýtur að vera eitthvað til fyrir mig sem ekki er ávanabindandi.
Ekkert bólar á barni ennþá, ég ætla að skella mér austur um helgina og fara út að skokka með Maríu, það gengur ekki að þetta barn láti bíða svona eftir sér. Nei, ég segi svona. Ég ætla samt að fara austur um helgina þegar Kormákur er farinn til pabba síns og eyða helginni á Hellu, það er orðið ansi langt síðan ég hef komið þar. Mig langar líka að komast aðeins úr borginni, held að ég hafi gott af þvi að komast aðeins í ferska sveitaloftið í 2-3 daga, kannski hressist ég eitthvað við það og næ að rífa mig upp.
Ég er búin að vera að fikta aðeins í myndum í dag, bæði í tölvunni og í albúminu hans Kormáks Atla á barnalandi og ég fann eina mynd af Kormáki, ætli hann sé ekki kannski 2 vikna á þessari mynd. Hann er svo mikið krútt þessi drengur minn, ég verð bara að leyfa ykkur að sjá eina gamla mynd af honum.
Jesus minn, er maður ekki sætastur ?? Fallegur eins og mamma sín he he he Verð að henda inn einni mynd af henni Maríu minni líka, stóra litla barninu mínu sem er að verða mamma he he
Það er ekkert smá gaman að leita að myndum og henda hérna inn, bæði fyrir mig og ykkur hin sem ég þekki. Þau hafa allta verið miklir vinir börnin mín, María að verða 21 árs og hún elskar bróður sinn út af lífinu og kemur oft til Reykjavíkur til að heimsækja hann en ekki mig hehehe
Hérna eru þau árið 2003 þegar við áttum heima á Sauðárkróki, það eru til margar myndir í kringum þessa mynd, alve heil sería. Og svona í lokin ætla ég að henda inn einni mynd af mér og mínum systkynum, ég er yngst í systkynahópnum þannig að ég ætti að vera auðþekkjanleg á myndini, enda stend ég upp úr hópnum, alveg grútskítug og sæt.
Þið sem ekki þekkið mig eða mína fjölskyldu, takið eftir tvíburabræðrum mínum, þeir voru svo líkir að annar þeirra var með merki í barminum svo að þeir þekktust í sundur.
Jæja, þetta litla bloggbull mitt núna, gladdi mig aðeins, núna get ég farið í rúmið sæl, glaðari og aðeins brosandi meira að segja. Það er aldrei að vita nema ég eigi eftir að setja inn einhverjar fleiri myndir hérna við tækifæri. Annars hafið það bara gott þangað til næst, elskurnar.
Kv. Linda litla.
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 232815
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- bifrastarblondinan
- doramaggy
- halkatla
- annabjo
- diddan
- ragjo
- greenbrown
- ingunnjg
- katja
- gullaeinars
- siggathora
- loathor
- komaso
- addabaldurs
- raggafg
- ollana
- gelgjan
- kruttina
- arijosepsson
- asthildurcesil
- beggita
- biddam
- brandurj
- brybba
- skordalsbrynja
- tungirtankar
- jyderupdrottningin
- rannug
- topplistinn
- gydadrofn
- osland
- hronnsig
- hugarafl
- danjensen
- kliddi
- ijt
- keli
- jonaa
- ktomm
- markusth
- rebekkarut
- roslin
- sisvet
- bogatun8
- sikklida
- scorpio
- svala-svala
- svetlana
- taraji
- skog3
Athugasemdir
Gamlar myndir og minningar gleðja mann ótrúlega oft. Vertu nú brött á morgun elskið mitt, út með jólatréð og rakaðu svo rasshárin ):) Myndirnar eru æðislegar og Kormákur bara krútt.
Ásdís Sigurðardóttir, 9.1.2008 kl. 22:51
Tek undir með Ásdísi, UPP MEÐ SKÖFUNA!
Verð að fara að hitta þig snúllan mín, þetta gengur ekki. Þarf að faðma þig og spjalla. En þangað til....fullt af knúsum til þín
Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 23:06
Svona svona elsku krúttið mitt-Þú rífur þig upp!!!!!
Ég skal hringja í þig á 10 mínútna fresti frá kl 8 til 13:30 en þá fer ég í próf.....Ég sit sem sagt enn upp í skóla að læra he he he
Þú veist að mér þykir þú bestust og að ég sendi þér knúsur í bak og fyrir.
Dísanskvísan
Dísaskvísa (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 23:43
hvaða rugl er í gangi með this skvísa einn tveir og ... á lappir og gera eitthvað.... lýst ekkert á thetta tal í thér.. mailaðu á mig númerinu thínu kleopatra@siam.is
Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 00:00
Það er æðislegt að skoða gamlar myndir og fá að sjá þær, sérstaklega af öðrum, ekki manni sjálfum Taka lýsi og út í ferska loftið á morgunn, þú verður bara að skipta út, fá þér hund sem dregur þig út í staðinn fyrir kettina, þeir vilja bara liggja í leti og það er smitandi Kær kveðja Ingunn
Ingunn Jóna Gísladóttir, 10.1.2008 kl. 00:17
Drífðu þig í sveitina það gerir þér bara gott . Börnin eru yndisleg .
Njóttu helgarinnar
kv
Sigga
Sigríður Þóra Magnúsdóttir, 10.1.2008 kl. 12:13
Ekkert smá sætar myndir haJá farðu að koma þér austur kelli mín
Guðný Einarsdóttir, 10.1.2008 kl. 18:01
Ásdís: Ég er búin að raka rasshárin og henda út jólatrénu.
Arna: Já við verðum að fara að hittast, ég er í endalausum fráhvörfum af því að hafa þig ekki í næstu blokk.
Vigga: þú ert líka bestust og ég vona að þér hafi gengið vel í prófinu.
Kleó: ég drullaðist á fætur, en það er ekki til neins að maila á þig númerinu, sími er eitthvað sem að ég hef phóbíu á núna.
Ingunn: Glætan, lýsi fer aldrei inn fyrir minn munn, en takk samt fyrir hugmyndina.
Sigga: Já, ég er að fara í sveitina eftir hádegi á morgun.
Gulla: Slakaðu á, ég kem til þín á morgun.
Heiða: Það er aldrei að vita nema ég taki þig af orðinu og kíki í kaffi á morgun.
Linda litla, 10.1.2008 kl. 20:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.