9.2.2008 | 14:08
Okkur tókst að eyða 25.000 krónum
Það er ljóta veðrið búið að vera, og svo kingir endalaust niður snjó hérna í borginni núna. Vigga kom í gærkvöldi og gisti hérna í nótt, en hún er einmitt að vinna þessa helgi hérna í Reykjavík. Við fórum út um 11 leytið í morgun og fórum með Viggu í vinnuna á Prikið og svo kíktum við í Skólaavörubúðina og Litir og Föndur í Kópavogi og tókst okkur mæðgum að eyða heilum 25.000 krónum í þessum tveimur búðum. Það er eins gott að við eigum eftir að standa okkur í föndrinu.
Við ætlum bara að hafa það rólegt í dag, okkur finnst ekkert ferðaveður núna. Það er ekkert að borga sig að rjúka af stað austur fyrir fjall með lítið barn.
Það er svolítið skondið með Tuma og Patta, þeim er í rauninni alveg sama um banrið, nema þeir eru ekki að koma of nálægt því samt. Ef að þeir voga sér nálægt þá eru þeir ekki lengi að hlaupa í burtu ef að eitthvað heyrist í litlu músinni minni.
Ég gleymdi að segja ykkur að ég keypti mér tölvu í fyrradag og við tengdum hana í gær, það sést reyndar þar sem að ég er greinilega með nýtt lyklaborð, það er komma á þessu. Loksins, það er þreytandi að hafa kommulaust lyklaborð.
Jæja, stutt í dag.... á örugglega eftir að henda inn einhverjum línum hérna aftur í dag, njótið dagsins. Kv. Linda litla stolta amman.
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 232815
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- bifrastarblondinan
- doramaggy
- halkatla
- annabjo
- diddan
- ragjo
- greenbrown
- ingunnjg
- katja
- gullaeinars
- siggathora
- loathor
- komaso
- addabaldurs
- raggafg
- ollana
- gelgjan
- kruttina
- arijosepsson
- asthildurcesil
- beggita
- biddam
- brandurj
- brybba
- skordalsbrynja
- tungirtankar
- jyderupdrottningin
- rannug
- topplistinn
- gydadrofn
- osland
- hronnsig
- hugarafl
- danjensen
- kliddi
- ijt
- keli
- jonaa
- ktomm
- markusth
- rebekkarut
- roslin
- sisvet
- bogatun8
- sikklida
- scorpio
- svala-svala
- svetlana
- taraji
- skog3
Athugasemdir
Jæja vinkona á nú að fara að hella sér út í föndrið,?? Líst vel á það hjá þér,ég skil kisurnar að þær séu hræddar við þessa stóru MÚS hahahaNei í guðana bænum ekki fara að þvælast austur það er spáð aftur einhverjum leiðindum í veðrinu
Guðný Einarsdóttir, 9.2.2008 kl. 14:16
Hvaða eyðsla er í ykkur stelpurófur Til hamingju með nýju tölvuna þína Linda mín Ótrúlegar sætar kisur Og svo bara að nýta kommuna ,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Katrín Ósk Adamsdóttir, 9.2.2008 kl. 14:17
Linda mín, þessar föndurbúðir geta verið stórhættulegar að fara í, þekki það af eigin reynslu Til hamingju með nýju tölvuna. Eigðu yndislega helgi, kær kveðja Ingunn
Ingunn Jóna Gísladóttir, 9.2.2008 kl. 15:01
ég kannast við það að vera með lyklaborð sem vantar ýmsa takka á, það er algjört hell!! rosalega sætir kisar, Kassí er heilluð
halkatla, 10.2.2008 kl. 11:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.