12.3.2008 | 08:29
Alkohólistar götunnar.
Þar sem að ég er alkohólisti þá er ég stundum að velta fyrir mérþeim sem eru á ráfi í miðbænum allan daginn. Þeim sem hanga fyrir utan ÁTVR í Austurstræti, standa og reykja fyrir utan Monakó og jafnvel sitja á bekk fyrir utan Bónus Laugavegi. Hefur þetta blessaða fólk ekki í nein hús að venda á daginn ? Er þetta fólk sem gistir í skýlinu Þingholststræti og í konukoti og fær ekki þar inn á daginn ? Svo fær þetta fólk ekki að vera inn á búllunum á daginn nema að vera að kaupa sér eitthvað, þetta fólk á ekki alltaf pening, ekkert frekar en ég. Samt er ég ekki að klára mínar tekjur í bjór og brennivín alla daga.
Það var kaffistofa á vegum Samhjálpar á Hverfisgötunni, núna er búið að loka henni og ég held að hún hafi verið færð í Stangarhylinn í samkomuhús Samhjálpar (án þess að vera samt 100% á því). Hvernig á þetta fólk að komast þangað ? Ég veit það ekki alveg, en ég veit þó að í mínum augum þá er þetta fólk ekkert öðruvísi en við. Það er með langt genginn sjúkdóm og verður fyrir andalausu aðkasti og fordómum fólks á förnum vegi, það er eins og almenningur flýji það og forðist. Ef að þú ert með annan sjúkdóm s.s. krabbamein, gigt, hjartasjúkdóm eða hvaða sjúkdóm sem er, erum við þá ekki alltaf að öllum vilja gerð til að gera hvað sem er fyir þá ??
Ég þekki mikið af alkohólistum bæði virkum og óvirkum og þetta fólk er innilegasta og yndislegasta fólk sem ég veit um þegar það er ekki í neyslu. Þegar það fellur, þá loka allir á það í staðin fyrir að standa þeim nær og hjálpa þeim. Ég veit að í neyslu gengur allt út að lygar og svik, en það bætir upp ýmislegt eða vill gera það þegar það rennur af því.
Ég vil meiri hjálp fyrir fólk á götunni, ég vil meiri hjálp fyrir heimilislausa, ég vil meiri hjálp fyrir geðfatlaða, ég er tilbúin að hjálpa þeim sem minna mega sín í þessu þjóðfélagi í alla staði nema fjárhagslega þar sem ég hef ekki tök á því.
Hver er ykkar skoðun á þessu fólki ? Endilega komið með comment og leyfiðmér að heyra.
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- bifrastarblondinan
- doramaggy
- halkatla
- annabjo
- diddan
- ragjo
- greenbrown
- ingunnjg
- katja
- gullaeinars
- siggathora
- loathor
- komaso
- addabaldurs
- raggafg
- ollana
- gelgjan
- kruttina
- arijosepsson
- asthildurcesil
- beggita
- biddam
- brandurj
- brybba
- skordalsbrynja
- tungirtankar
- jyderupdrottningin
- rannug
- topplistinn
- gydadrofn
- osland
- hronnsig
- hugarafl
- danjensen
- kliddi
- ijt
- keli
- jonaa
- ktomm
- markusth
- rebekkarut
- roslin
- sisvet
- bogatun8
- sikklida
- scorpio
- svala-svala
- svetlana
- taraji
- skog3
Athugasemdir
Að vera alki, er sama og að vera veikur. Nær er að hjálpa þessu fólki, en að kasta skít í það. Oft er þetta fólk sem að hefur orðið fyrir ýmsum áföllum í lífinu, sem að það hefur ekki getað unnið úr. Allir eru ekki ofurmanneskjur.
Heiður Helgadóttir, 12.3.2008 kl. 08:49
Fólk þarf á samverustað að halda, til að hittast og peppa hvert annað upp, borgin og aðrir bæjir ættu að hafa samastað fyrir alka og aðra fíkla.
Ásdís Sigurðardóttir, 12.3.2008 kl. 11:24
Ekki bara samastað til að hittast á, það vantar líka heimili fyrir þessa einstaklinga. Það var opnað nýtt heimili í fyrra fyrir heimilislausa, 8 manns tekur það. Það eru ennþá 111 manns á götunni, það nánast tók því ekki að skjóta þaki yfir þess átta, það er bara eins og dropi í hafið.
Linda litla, 12.3.2008 kl. 12:04
Hef ekki reynslu af þessu en þekki nú aðeins til,það þyrfti auðvitað að vera til húsaskjól handa þessu fólki jafnt að degi sem nóttu,er bara ekki hægt að bygga stórt hótel eða húsnæði fyrir blessað fólkið?? Ja veit ekki svei mér þá annað eins er nú eytt í af þessum ráðamönnum íslands
Guðný Einarsdóttir, 12.3.2008 kl. 13:59
Nákvæmlega Gulla, það er eytt í marga vitleysuna sem ekki er jafn áríðandi og þetta.
Sjáðu til´, núna er Rauði Krossinn í átaki fyrri fátæka á Íslandi....... af hverju rauði krossinn ?? Af hverju gera stjórnvöld ekkert í þessum málum ?? Það breytist ekkert í þessu landi ef ekkert er gert.
Linda litla, 12.3.2008 kl. 16:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.