Leita í fréttum mbl.is

Dagur að kveldi kominn og nóttin skellur á .

Ég var komin á fætur um klukkan 7 í morgun, ég er allt önnur eftir að ég fór að nota súrefnistækið mitt aftur. Ég er amk farin að vakna á morgnana og hætt að leggja mig á daginn. Það munar örugglega líka um það að ég er alveg hætt á solian (þunglyndislyf) og er búin að minnka skammtinn af cymbalta (þunglyndislyf) um helming. Enda líðanin orðin frábær, ég er síkát og hamingjusöm og þannig á það að vera, ég á ekki að þurfa að vera á lyfjum til þess að geta glottað út í annað.

María og Hjörleifur komu í dag, þau eru voða dugleg að koma til mín. Ég er mjög ánægð með það, það er alltaf gaman að fá þau, fékk að passa prinsinn í dag á meðan María fór ða versla.

31 mars 2008 047

Ég er búin að vera að þvo síðustu daga, ég er ekki frá því að ég sé búin að þvo eins og 150 stk af sokkum síðustu daga, skil ekki hvað það er til mikið af sokkum á þessu heimili. Seinni partinn fórum við í bíltúr og skelltum okkur í heimsókn til Magga og Guðbjargar. Maggi er pabbi hans Rúnars (tengdasonar míns) Það var auðvitað vel tekið á móti okkur eins og alltaf.

Litlu prinsessurnar á heimilinu eru svooooo mikið krútt, ég fékk nú aðeins að halda á henni Sóleyu en hún var ekki alveg sátt við mig og var ekekrt að fela það blessunin, þannig að ég ákvað bara að rétta Maríu hana hehehe

Maggi og Guðbjörg 011

Kristín var feimin, en lagaðist nú þegar leið á heimsóknina og var farin að spjalla aðeins.

Maggi og Guðbjörg 008

Guðbjörg galdraði fram kaffi, köku, rjóma, skyrtertu, pepsi og súkkulaði handa okkur (ekki veitti af þar sem að við mæðginin erum öll að hrynja í sundur úr hor, lítum út fyrir að vera mjÖg vannærð)

Maggi og Guðbjörg 012

Á meðan Maggi hélt okkur félagsskap inni í stofu.

Maggi og Guðbjörg 013

Þau voru að kaupa sér sófa, hann er æðislegur. Ég þurfti auðvitað að máta hann mjög vel og lagði mig aðeins í hann og fann þá út að þetta væri draumasófinnm minn, ég ætti alveg örugglega ekkert erfitt með að sofna í honum.

Maggi og Guðbjörg 010

Svo í kvöld kom Bína í heimsókn til mín og auðvitað eins og vanalega var spjallað, við fórum inn í herbergi að reykja þar sem að ég reyki ekki frammi þegar að Hjörleifur er hérna. Alltaf finn ég myndavélina tilbúna þegar að hún kemur, en alltaf skal ég gleyma að mynda hana. Þannig að þangað til að ég man eftir að taka af henni mynd þá verðið þið bara að reyna að ímynda ykkur hvernig hún lítur út.

Jæja, segjum þetta gott í kvöld, enda klukkan aðverða hálf 12 og ég fer í rúmið í síðasta lagi 12. Hafið það gott elskurnar mínar og sofið vel. Ekki gleyma að fara með bænirnar ykkar. Góða nótt kv. Linda litla.

grqg3q4


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Mikið að gera hjá þér, ég sá einmitt þessi hjón um daginn í fyrstu skrefunum og dáðist að þeim.

Gaman að lesa hjá þér

Ragnheiður , 3.4.2008 kl. 23:33

2 Smámynd: Dóra Maggý

Það er brjálað að gera hjæa þér kona og þér ætti sko ekki að leiðast,það er svoooo gott fyrir þig að geta knúsað lítinn fallegan kút,hann Hjörleif,rosalega er þetta fljótt að líða hehehe..... en égsá þessi hjón einmitt í fyrstu skrefunum og ég dáðist að þeim, þau eru sannkallaðar hetjur finnst mér,ég vona að þau hafi það gott,og þú og þín fjölskylda dúllan mín... knússs.....

Dóra Maggý, 3.4.2008 kl. 23:44

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Aldeilis fjör hjá minni. Segi eins og Ragga sá þessi hjón í TV um daginn, svaka dugleg.  Skemmtileg færsla. 

Ásdís Sigurðardóttir, 3.4.2008 kl. 23:57

4 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Þú hefur alltaf eitthvað að gera, æðislegt
Góða nótt!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 3.4.2008 kl. 23:58

5 Smámynd: Linda litla

Já þetta passar alveg, þau eru búin að koma í "fyrstu skrefin" tivsvar sinnum, í fyrra skiptið þegar að þau ættleiddu Kristínu Ósk og svo í seinna skiptið til að sjá hvað það gekk vel með hana. En þá var einmitt Sóley fædd og Guðbjörg búin að ganga í gegnum öll veikindin. Það er alveg yndislegt að sjá hvað henni Guðbjörgu hefur gengið vel og er búin að vera dugleg að ná sér, kona sem var hreinlega nær dauða en lífi.

Þetta er alveg yndisleg fjölskylda.

Linda litla, 4.4.2008 kl. 00:13

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndisleg börn

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.4.2008 kl. 10:05

7 Smámynd: halkatla

gott að heyra að þú ert að hressast - myndirnar eru bara æði

halkatla, 4.4.2008 kl. 10:06

8 identicon

Skemmtileg færsla - gleður mig hvað allt er hressandi hjá þér þessa dagana - mjög ánægjulegt

Berglind Elva (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 10:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband