Leita í fréttum mbl.is

416 forræðismál.

Undarlegt, var einmitt að tala við vinkonu mína í morgun og þar sem við vorum að ræða þennan sértrúarsöfnuð. Ég segi einmitt að það hafi komið mér á óvart að trúarsöfnuður skuli gera svona, ég sem á svo erfitt með að trúa að þeir sem eru trúaðir geti gert slæma hluti. En vinkona mín á allt öðrum nótum, og vill meina að þetta sé sko mjög algengt hjá svona ofsatrúarfólki. Þetta er amk alveg hræðilegt, 416 börn sem voru fjarlægð af búgarðinum.

Hvað er málið ?? Er fólkið heilaþvegið. ??


mbl.is 416 forræðismál í einu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

þetta er því miður svo algengt. Hvað veldur? heimska, kúgun, hver veit? Ég á líka erfitt með að trúa því samt að fólk sé svona vitlaust og geti verið svona sama um allt, en líklega er það heilaþvegið og venst þessu.

halkatla, 18.4.2008 kl. 10:15

2 Smámynd: Linda litla

Harpa ertu að segja að þetta viðgangist á Íslandi líka ? Er ofsatrúarfólk á Íslandi ? Er ég virkilega svona græn fyrir öllu ?

Linda litla, 18.4.2008 kl. 10:33

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Það er því miður ansi algengt að í sértrúarsöfnuðum grasseri ofbeldi, sifjaspell og allskyns öfuguggaháttur.  Því miður er allt ofstæki vont, sama hvaðan það kemur.

Kveðja inn í daginn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.4.2008 kl. 11:20

4 Smámynd: Ragnheiður

Já þetta hefur komið fyrir hérna en þá er meira um að ræða einn og einn sem fer illa út úr söfnuðinum. Þetta þarna sem þú tengir í er alger hryllingur. Mannstu eftir David Koresh og Waco í Texas. Prufaðu að gúggla það að gamni, þá geturðu sér hversu sjúkir svona sértrúarsöfnuðir geta orðið.

Eins og ég segi, allar öfgar eru hættulegar.

Ragnheiður , 18.4.2008 kl. 11:20

5 Smámynd: Linda litla

Ég er svo léleg í enskunni, en ég gúgglaði samt og las það sem ég gat, þá rifjast þetta upp. Ég man eftir þessum manni. Og þegar maður fer að hugsa aðeins miera en vanalega, þá er þetta alveg rétt. Það er oft rosaleg bilun í þessu fólki.

Linda litla, 18.4.2008 kl. 12:04

6 Smámynd: Púkinn

Þú átt erfitt með að trúa því að þeir sem eru trúaðir geti gert slæma hluti????

Halló - opnaðu augun og skoðaðu mannkynssöguna.   Þar má finna endalausa lista af "slæmum hlutum" sem eru ýmist gerðir af trúuðum mönnum eða í "nafni trúarinnar".

Eða lestu bara Bibluna - þjóðarmorð og gendarlaust kynbundið ofbeldi Ísraelsmanna þegar þeir voru að stela "fyrirheitna landinu" ... allt gert með velþóknun guðs þeirra.

Púkinn, 18.4.2008 kl. 12:05

7 Smámynd: Linda litla

Auðvitað á mín hugsun ekki að vera svona, veit ekki af hverju ég hef haldið þessu fram.... (er búin að vera að hugsa þetta soldið núna).

En það er gott að fá svona komment frá ykkur, það vekur hugsanir manns fram og maður fer að spá meira í hlutina, spá meira í lífið.

Takk fyrir þetta allt, tek endilega á móti fleirum kommentum sem að ýta undir réttar hugsanir hjá manni.

Linda litla, 18.4.2008 kl. 12:08

8 Smámynd: Linda litla

Kommon.... núna er ég farin að hugsa svo mikið að ég held að e´g eigi eftir að brenna yfir. Prestar !!! þeir hafa nú ekki verið bestir (ekki alhæfing) man að ég hef heyrt um fréttir þar sem að þeir misnoti börn. Af hverju er ég að fara út í þessar umræður, ég verða alltaf svo reið !

Linda litla, 18.4.2008 kl. 12:15

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innlitskvitt og eigðu góða helgi yndið mitt  Heart Glasses

Ásdís Sigurðardóttir, 18.4.2008 kl. 21:20

10 Smámynd: TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.

 Já það er ótrúlegt hvað hægt er að spila með okkur mannfólkið

TARA ÓLA/GUÐMUNDSD., 18.4.2008 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband