Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Kræstur... er þetta ég ???

Varð að henda inn einni 10 mínótna gamalli mynd.... djö... er ég orðin gömul og ellileg.

bull 008


Hann er fundinn.

Pólverjinn sem leitað hefur verið af er fundinn, hann gaf sig fram við lögregluna.
mbl.is Eftirlýstur Pólverji fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilsan batnar ekki.

Ég fór til læknis í gær og æltaði að fá hana til að trappa mig niður á þunlyndislyfjunum þar sem mér finnst ég orðin svo andlega hress. það var minnsta málið og henni leist vel á það, þar sem að hljóðið í mér væri allt annað en að það hefur verið. Afur á móti vildi ég fá bjúgtöflur þar sem að ég er búin að vera mjög slæm af bjúg undanfarnar vikur, þá vildi hún mæla blóðþrýstinginn og var hann allt of hár og var mér því skellt á lyf við því. Henni leist heldur ekki á þetta kvef sem búið er að krauma í mér síðan í byrjun febrúar og vildi því gefa mér sýklalyf..... ég fer til læknis til að minnka við mig lyfin........ en það er bara bætt við þau. Fyrsti tíminn í sjúkraþjálfun á þessu ári er í dag, ég byrja í Gáska í Bolholti eftir hádegið og ég er svolítið spennt fyrir því, ég var alltaf í sjúkraþjálfun í Mjóddinni í fyrra, en mér líkaði það ekki, fann aldrei neinn mun þar. Ég fór líka í við tal hjá Írisi í félagsþjónustunni í gær og var að sækja um heimilishjálp (þó fyrr hefði verið) ég er því miður ekki manneskja til að geta þrifið hjá mér heimilið nema að liggja í rúminu einhverja daga á eftir. En ég fæ fljótlega heimsókn frá þeim til að meta og ræða við mig, hvað ég get ekki gert.

Ég passaði elsku ömmustrákinn minn í gær han Hjörleif Mána ámeðan María bauð Kormáki í bíó.

skirnarmyndir 024 Það var auðvitað yndislegt, ég nýt hverrar stundar með honum sem að ég fæ. Kormákur talaði endalaust þegar að hann kom heim, myndin var svo frábær og skemmtileg. Honum finnst líka svo gaman að fara í bíó.

skirnarmyndir 043

Ætla að láta þetta duga núna, og skríða aðeins undir sæng aftur. Hafið það gott elskurnar og njótið dagsins. Kv. Linda litla hamingjusama.


Hauskúpan er af Kleppi.

SverrirÞetta er hann Sverrir Ólafsson listamaður á Hellu.

Sverrir Ólafsson myndlistarmaður fékk beinagrind Björns Grillis, vistmanns af Kleppi, frá föður sínum, Ólafi Páli Jónssyni lækni. Listamaðurinn geymdi beinin um árabil undir rúmi sínu og vill fá kúpuskelina aftur. 

Allt um hina dularfullu hauskúpu sem fannst á Kjalarnesi í DV í dag.

 


Hræðilegt líf.

Ég hef komið að þessu hérna áður, heimilislaust fólk...... mér finnst þetta alveg hræðilega sorglegt, þetta á ekki að finnast hérna á Íslandi. Það verður að gera eitthvað í þessum málum.
mbl.is Búa í gámi í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert gengur.

Það gengur ekkert hjá mér að finna leiguhúsnæði á Hellu, nú er ég búin að tala við örugglega 10 manns sem eiga tómar íbúðir eða hús á Hellu og allir vilja selja en ekki leigja. Málið er bara að það er ekkert að seljast núna, það er engin hreyfing á fasteignamarkaðnum þarna fyrir austan.

Páskarnir voru ágætir þarna fyrir austan, en það var gott að koma heim og enn betra að fá Kormák heim en hann var pabba sínum yfir páskana. Í gær fór ég í kringluna og keypti afmælisgjöf handa Brynju en hún verður fertug 28 mars, keypti fermingagjöf handa Svölu og hún verður tilbúin 4 apríl, gaf Björk 5000 krónur í afmælisgjöf en hún var þrítug um daginn. Svo á ég eftir að kaupa fermingagjafir handa Þóri Freyr og Aroni Nökkva og auðvitað afmælisgjafir fyrir Börnin mín, en þau iega bæði afmæli í apríl. Þetta er mikill útgjaldamánuður hjá mér. En skemmtilegur mánuðuður á móti. Margrét Birna frænka átti afmæli 24 mars, og ég á reyndar eftir að kaupa eitthvað handa henni, en geri það ara þegar afmælið verður, en því var frestað í gær vegna veikinda.

Segjum þetta ágætt í bili, ég nákvæmlega ekkert að tala um núna.

Hafið það gott elskurnar og njótið dagsins hann er fallegur.


Dáleiðarinn kunnuglegur.

Já þetta er örugglega þessi sem segir mér að borða meira og meira, það er honum að kenna að ég er svona feit !!!!!
mbl.is Ræninginn beitti dáleiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sá dauði lifnaði við.

Það var eins gott að þeir voru ekki búnir að tæta úr honum líffærin. Núna 4 mánuðum eftir slysið er hann bara eldsprækur.
mbl.is Maður sem lýstur var látinn segist nokkuð hress
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkur léttir.

Konunni hlýtur að hafa létt við að fá þær fréttir að það var ekki krabbamein að henni heldur var hún þá ófrísk. Þetta er alveg ótrúlegt.
mbl.is Ekki með krabbamein heldur ólétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband