Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008
6.8.2008 | 18:57
Nektarmyndir á netið...
Hún er hrædd um að nektarmyndir af sér fari að leka á netið...... ef að það myndu leka nektarmyndir af mér á netið, þá væri eitthvað að ske í mínu lífi. Mikið vildi ég að það væru finnandi nektarmyndir af mér á netinu NOT!!
Ætli þær myndu ekki líta svona út ??
![]() |
Óttast að djarfar myndir af sér leki á netið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
6.8.2008 | 08:20
dótarí dótara.....
Það eru nú held ég ekki það mikið af börnum á Íslandi að það sé grundvöllur fyrir þrjár stórar leikfangaverslanir.
það er nú ekki langt síðan að það var nú bara nóg að hafa Leikbæ og svo Liverpool á Laugaveginum.
Allt í einu er svo allt fullt af þessum búðum og allar berjast fyrir því að fá sem flesta viðskiptavini. Og auðvitað rjúka allir íslendingar af stað í búðirnar og kaupa eins og brjálæðingjar. En þú kaupir bara ekkert endalaust af leikföngum.
Ég verð nú samt að viðurkenna það, að ég sé á eftir Leikbæ.... Mér finnst það svekkjandi að leikfangaverslun sem er búin að vera öll þessi ár verði að lúta fyrir erlendri leikfangaverslun ein og Toys´R´us. Hef reyndar heyrt að hún sé með langódýrasta dótið, en verður það áfram ódýrast þegar þeta er orðið eina verslunin ??
Jæja, við Kormákur erum a.m.k. á leiðinni þangað á eftir. En hann fór með systur sinni í Nóatún um helgina og sá þar Transformers úr sem að hann langaði í og það kostaði rúmar 2000 krónur, en María sagði honum að það væri á 500 krónur í Toys´R´us, þannig að hann ætlaði að geyma peninginn sinn fyrir því.
Nóg komið af dótabúðarelling..... gúddbæ for a væl.
![]() |
Leikfangakeðja úr sögunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.8.2008 | 13:43
Skálað í lok verslunarmannahelgar.
Í síðustu færslun minni minntinst ég á árásina í miðbænum síðasta föstudag. En strákurinn sem varð fyrir árásinni hann leigði íbúðina mína á Helu fyrir einhverjum árum. Ég er að vinna með frænda hans og hans sagði að hann hefði farið í aðgerð á hendinni, en hann var bæði stunginn í bakið og lungun rétt sluppu en svo fékk hann líka stóran skurð á hendina, en læknarnir voru einmitt að reyna að tjasla saman sinum og vöðvum skilst mér. En hann slapp samt ótrúlega vel og ég held að hann eigi að fá að fara heim í vikunni, býst við að hann komi á Hellu, en þar er megnið af fjölskyldu hans, hann er frá Chile.
Jæja, en við mæðginin komum til Reykjavíkur í morgun með rútunni. Kormákur eyddi helginni með systur sinni og fjölskyldu og átti hann alveg frábæra helgi. hann sagði að þessi helgi hefði verið miklu skemmtilegri en helgar með mér he he he Guð minn eini hvað ég hlýt að vera leiðinleg.
Ég pantaði mér bók á netinu um daginn og hún kom með póstinum í dag. Þetta er bókin "BURT MEÐ DRASLIÐ" ég tek hana með mér í rúmið í kvöld. Ég kannski drullast til þess að taka til í skápunum, skúffunum og hillunum á heimilinu og henda einhverju af þessu drasli sem ég er alltaf að sanka að mér. Skil ekki hvað ég er alltaf mikill safnari, samt finnst mér ég alltaf vera að henda einhverju. Alveg er þetta ótrúlegt.
Við skáluðum í vinnunni eftir lokun í gær, það var reyndar ekki skálað í áfengi. Nei, þetta var óáfengt vín og það var bara nokkuð gott. Kormákur fékk að vera með og setti upp heldur skrítinn svip þegar að honum var rétt staup...... hann leit á glasið og svo mig hehehe og auðvitað mátti hann vera með. Jæja, en þetta var síðasti dagurinn hjá Hafdísi. Hún er að fara til Póllands á miðvikudaginn með kærastanum, það verður örugglega æðislegt hjá þeim.
Þessa mynd tók ég af liðinu sem var þarna eftir lokun. Starfsfólk, ættingjar og kúnnar.
Svo tók Kormákur aðra, þar sem að ég fékk að vera með á myndinni.
Og svo pósuðu "pæjurnar" í afgreiðslunni fyrir mig. Hafdís og Vigga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
1.8.2008 | 14:20
Helgin gengin í garð...... góða helgi og BLESS.
Það er ekki óhætt að vera í göngutúr í Reykjavík á nóttinni það er alveg ljóst, held að það sé alveg sama hvar er í borginni. Ég myndi a.m.k. ekki fyrir mitt litla líf þora út seint á kvöldin eða á nóttinni. Vonandi finnast þessir þrír menn sem tengjast árásinni.
Annars er þetta bara kveðjublogg hjá mér, núna erum við mæðginin að yfirgefa höfuðborgina og skella okkur austur fyrir fjall. Kormákur ætlar að eyða verslunarmannahelginni með systur sinni og fjölskyldu, en ég ætla að eyða henni í Kanslaranum á Hellu.
Segi bara góða helgi elskurnar og farið varlega þið sem ætlið að fara eitthvað, passið ykkur í umferðinni. Reynum að eiga slysalausa helgi.
![]() |
Árásarmanna enn leitað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
1.8.2008 | 11:37
Elizabeth Taylor, börn og barnabarn.
Talið er að frú Elizabeth Taylor eigi ekki langt eftir. En hún er búin að vera í öndunarvél síðan á miðvikudag eftir að henni hrakaði, en hún var greind með slæma lungnabólgu í síðustu viku. Hvað ætli hún sé annars gömul kjéllingin ?? Ég efast ekkert um það að Michael Jackson verður alveg ónýtur þegar Elizabeth deyr.
Annars er bara lítið að frétta af okkur Kormáki. María, Rúnar og Hjörleifur Máni komu í heimsókn í gær og auðvitað var alveg yndislegt að sjá litla ömmustrákinn sem er reyndar ekkert svo lítill lengur.
Maður er náttla langsætastur.
Frændurnir eru miklir vinir.
Krúttlegu mæðginin.
Og í lokin, fjórfætlingarnir mínir eru alveg búnir að fá nóg af þessari hitabylgju. Þeir fengu ís með rjóma í gær í boði hússins í tilefni hitans. Þeir eru hreinlega að kafna úr hita þessir elskulegu loðboltar mínir.
![]() |
Elizabeth Taylor hætt komin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.8.2008 | 00:29
Veit þetta einhver ?? Komið með svarið..
Fyrirsögnin greip mig "4000 ára gamall brandari", ég er mikill húmorist, alltaf hlæjandi og hef MJÖG gaman af bröndurum og eru 5 aura brandarar það sem að ég hlæ mest af. En þessir gömlu brandarar sem eru taldir allt að 4000 ára gamlir...... úfff hvað ég er fegin að hafa ekki verið uppi þá. Þá væri ég ekki þessi gleðipinni og hláturmaskína sem ég er í dag.
Ekta fyndinn fimmaurabrandari að mínu mati hljóðar svona:
Hvað er með 8 fætur, 2 hendur, 3 hausa og 2 vængi ??
Giskið og skrifið svarið í kommentið hjá mér..... þið fáið svo svarið síðar ef að þið eruð dugleg að giska.
![]() |
4000 ára gamall brandari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
bifrastarblondinan
-
doramaggy
-
halkatla
-
annabjo
-
diddan
-
ragjo
-
greenbrown
-
ingunnjg
-
katja
-
gullaeinars
-
siggathora
-
loathor
-
komaso
-
addabaldurs
-
raggafg
-
ollana
-
gelgjan
-
kruttina
-
arijosepsson
-
asthildurcesil
-
beggita
-
biddam
-
brandurj
-
brybba
-
skordalsbrynja
-
tungirtankar
-
jyderupdrottningin
-
rannug
-
topplistinn
-
gydadrofn
-
osland
-
hronnsig
-
hugarafl
-
danjensen
-
kliddi
-
ijt
-
keli
-
jonaa
-
ktomm
-
markusth
-
rebekkarut
-
roslin
-
sisvet
-
bogatun8
-
sikklida
-
scorpio
-
svala-svala
-
svetlana
-
taraji
-
skog3