22.5.2008 | 08:45
Kynlíf enn og aftur....
Hún er ótrúleg hún Jennifer. Ég held að hún sé ennþá abbó, eða sjái ennþá eftir honum
Bradda sínum, fyrst að hún er koma með svona yfirlýsingar um kynlífið hjá sér.
Það er svo ótrúlegt hvað fræga fólkið er furðó stundum. En vonandi helst þetta samband hjá þeim eitthvað fyrst að kynlífið er svona gott.
Over and out... í bili.
![]() |
Betri í rúminu en Brad Pitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.5.2008 | 20:35
Fólk er að pirra mig....
Mér finnst alveg óþolandi þegar fólk er að kommenta og er með einvher leiðindi, eins og í síðustu færslu. Þar er ég kölluð bjáni af því að ég greinilega hoppaði yfir setningu..... þá er ég bjáni að kynna mér ekki málið betur.
Þeir sem eru skráðir á blog.is gera ekki svona, en aftur á móti eru það óhamingjusamir leiðindapúkar sem gera í því að koma með leiðindakomment og þora ekki að koma fram undir nafni.... skrifa frekar bara Jón-Kalli- Siggi-Gunnar- Helga Sigga.... eða bara einhver nöfn, sem að þau heita örugglega ekki.
Hvað fær fólk út úr þessu ??
Finnst fólki fyndið að koma með leiðindi ??
Er þetta án gríns ekki bara óhamingjusamt fólk, sem þolir ekki fólk sem líður vel ??
Hvers vegna er til fólk sem gerir ekkert annað en að vera neikvætt og kvarta ??
Í guðanna bænum, ef að þú getur ekki komið almennilega fram á bloggsíðunni minni, viltu þá gera mér þann greiða að sleppa því að kíkja á hana ?? Takk
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
21.5.2008 | 18:32
Enn af íslenskum dómum......
5 mánaða fangelsi og 185 þúsund krónur í sakarkostnað...... Maðurinn var svangur og stal sér súpu að borða og stal einnig matvöru sem kostaði 769 krónur úr annari verslun.
Ég má bara ekki sjá íslenska dóma. T.d. þessi maður fékk örugglega lengri dóm heldur en einhver sem barði annan í miðbænum um daginn......
þetta sýnir hvað fólk er fátækt, það er að stela sér að borða. Hann fékk sér súpu, borðaði hana og borgaði ekki.
GERUM EITTHVAÐ !!!!! það er allt of mikið af fólki á Íslandi sem á ekki fyrir mat ofan í sig og aðra í fjölskyldunni. Af hverju er ekkert gert til þess að hjálpa þessu fólki ?? Hvernig væri að yfirvöld á Íslnadi færu eitthvað að huga að íslendingum sem minna mega sín. Það er fullt... já fullt af fólki sem á ekki ofan í sig og leita til mæðrastyrksnefndar, fjölskylduhjálpar, kirkjunnar, samhjálpar og allra þessara staða sem vilja hjálpa til. Hvað með ríkið ?? Af hverju ekki að hjálpa meira til, viljum við að landið sé svona óréttlátt.
![]() |
Stal súpu og fer í fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
21.5.2008 | 08:21
Fíflagangur virkar ekki.
Ja, hérna hér. Ég er nú ekki mikið júróvísjón fan og er ekkert að fylgjast með þessari keppni í ár, frekar an fyrri ár. En samkvæmt þessari frétt þá keppti handbrúða fyrir Írlands hönd þetta og er dottin úr keppni.... ekki undrar mig það. Þetta er nú ekki leikskólaleikur eða hvað...... síðan hvenær hafa brúður geta sungið, mér finnst þetta hallærislegt. Hélt að júró keppendur hefðu nú eitthvað lært af fíflalátunum í henni Silvíu okkar Nótt á sínum tíma, ekki komust þau fíflalæti áfram. Hefði haldið að írarnir væru smekklegri en þetta, hafa oft verið með góð lög.
Þessari mynd skelli ég bara hérna inn fyrir hana Töru mína.
![]() |
Dustin: Við hefðum átt að hlusta á Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.5.2008 | 18:17
Kynlíf á netinu....
Papparassi leitar tilboða í kynlífsmyndband með henni og Adnan Ghalib (fyrrverandi kærasti) og ekki má gleyma að segja frá því að hún er með bleika hárkollu í kynlífssenunni..... HALLÓ !?!??!! SO FU***** WHAT !! Stundum við ekki öll kynlíf ?? (nema náttla ég, þar sem að ég á engan kærasta) en kommon.....
Þetta er bara alveg ótrúlegt, hvað ef að ég myndi auglýsa í mogganum eftir tilboði í kynlífsmyndband með mér og fyrrverandi ?? Fengi ég eitthvað fyrir það ? Ég meina, ég hef meira að sýna en Britney Spears......
Hvað mynduð þið bjóða í myndbandið með mér og Braga ??
![]() |
Nýtt kynlífsmyndband með Britneyju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
20.5.2008 | 12:30
Kannski var honum bara heitt...
Af hverju var hann dæmdur ?? Kannski var honum bara svo ógeðslega heitt. En ef að þetta hefðu verið 200 naktir karlmenn á hlaupum ?? Ætli þeir hefðu allir verið sektaðir ?? Djö.. ég missi alltaf af öllu, það eina sem að ég hef er fullorðins dónarásin á fjölvarpinu og það eru svo svakalega miklar fimleikaæfingar þar að ég fæ bara strengi á að horfa á það.
![]() |
Hjólreiðamaður í steininn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.5.2008 | 01:33
Kæru bloggvinir.
Jæja, komin í tölvu. Það er nú ágætt að taka sér svona bloggfrí, hef ekkert farið í tölvu síðan á föstudaginn. Ég settist niður um hálf tólf í kvöld og ætlaði blogghring og kíkja á bloggvini mína.... ég er búin að vera TVO TÍMA í tölvunni og náði ekki að klára bloghringinn, sorry, klára ykkur á morgun. Ætla að henda inn nokkrum línum áður en ég skríðundir feld... í langþráða rúmið mitt.
Er komin heim í heiðardalinn, það er yndislegt eins og það er gaman að fara austur þá er alltaf gamanara að koma heim.
Húsafréttir eru engar komnar. Ég hefði viljað fá svar um helgina áður en ég færi heim, en það var ekki í boði, núna verð ég bara að bíða eftir svari. Óþolandi, annars er ég svo þreytt eftir helgina að mér verður óglatt við tilhugsunuina að pakka niður.
Stutt, létt og laggott og nóg í bili. Er farin að sofa. Góða nótt krúttin mín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.5.2008 | 10:56
Ég er hætt og farin.
Klukkan er 10:50 og ég er ekki alveg að standa mig í heimilisverkunum í dag, ætlaði að gera svo mikið a´ður en ég færi austur. Rútan fer frá BSÍ klukkan 12:30 og ég fer með henni, verð að vera komin þangað tímalega, þoli ekki að taka strætó, þeir eru svo lengi á leiðinni að maður verður að fara að heima 11:30 til að missa örugglega ekki af henni.
En alla vega... ég er hætt að blogga í dag og ég er farin að gera gagn.
Vonandi verður þetta góð helgi hjá ykkur. Sjáumst á blogginu á mánudaginn, ég er farin í blogg helgarfrí, færi ykkur svo fyrstu fréttir að húsamálum þegar ég lendi í Unufellinu á Mánudag.
ENn og aftur góða helgi og ekkert vesen núna, reynið að haga ykkur sómasamlega þessa helgina. Gúdddd bææææææ
Kv. Linda litla sem dreymir um stórt einbýlishús og garði...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
16.5.2008 | 09:19
Enn einn viðbjóðurinn.
það er ekki bara viðbjóður í Austurríki, í þetta sinn er um að ræða Svíþjóð. Svía á fimmtugsaldri sem hefur haldið 19 ára þroskaheftri konu sinni í kynlífsþrælkun og selt hena a.m.k. 100 karlmönnum, auglýsti hana á netinu.
Hvað getur fólk verið viðbjóðslegt ?
Hvað fær karlmenn til að borga fyrir kynlíf með þroskaheftum eintstaklingi ?
Hvar var fjölskylda konunnar ?
Hvað er þetta viðbjóðslegt, ég er ekki alveg að höndla þennan heim í dag. Það er svo mikið af kynferðisglæpum, þetta er viðbjóður. Það komst upp um þennan viðbjóðslega mann þegar barnaklám fannst í tölvunni hans.... Barnaklám það er eitt... það er viðbjóður. Hvers vegna eru ósjálfbjarga einstaklingar svona oft misnotaðir ? Hvað er eiginlega til mkið af pervertum í heiminum ? Vegna þess að við vitum ekki nema smá part af því sem í gangi er.
![]() |
Svíi hélt konu sinni í kynlífsþrælkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.5.2008 | 20:02
Meira af villtu kynlífi...
Þetta er búið að vera hinn furðulegasti dagur..... ég hékk á netinu og í símanum í nánast allan morgun, og eyddi svo megninu af eftir hádeginu í bælinu í letikasti. Ég er búin að vera að hringja út um allt í morgun, og fæ svar með hús á Hellu um helgina. Ég vona svo innilega að ég fái þetta hús.... ég er nefnilega með einbýlishússasýki núna þessa dagana. Mig langar að búa í stóru einbýlishúsi með bílskúr og garði, og vera með snúrur í garðinum til að þurrka rúmfötin mín. En þetta kemur víst allt í ljós um helgina, og þegar ég kem heim að austan á mánudaginn þá segi ég ykkur hverngi helgin fór og vonandi fylgja þá myndir af húsinu.
Ég bara varð að hafa þessa fyrirsögn HA HA HA HA Það er einvher púki í mér í dag. Annars er ég eiginlega bara hálf þreytt eftir daginn, ég er búin að gera svo mikið af engu hehehe þannig að ég þyrfti eiginlega að leggja mig í dágóða stund eftir það. Kormákur kom heim úr skólanum með vini sínum og stoppuðu þeir stutt inni, fóru út að leika sér, svo hringdi Kormákur um klukkan 7 og spurði hvað hann mætti vera lengi... ég sagði honum að koma heim að borða en NEI.... hann var ekki svangur, það er svo gaman á svona góðum dögum, það er bara leikið sér út í eitt. En hann kemur nún um 8 leytið, og þá hendi ég honum í bað, við lærum og skríðum svo í rúmið og knúsumst.....
Segjum þetta ágætt, ætla að snáfast fram í eldhús og vaska upp og gefa loðnu strákunum mínum eitthvað að borða.
Hafið það gott snúllurnar mínar..... og ekki gera neitt sem að ég myndi ekki gera..... sem sagt ALLT LEYFILEGT.!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
bifrastarblondinan
-
doramaggy
-
halkatla
-
annabjo
-
diddan
-
ragjo
-
greenbrown
-
ingunnjg
-
katja
-
gullaeinars
-
siggathora
-
loathor
-
komaso
-
addabaldurs
-
raggafg
-
ollana
-
gelgjan
-
kruttina
-
arijosepsson
-
asthildurcesil
-
beggita
-
biddam
-
brandurj
-
brybba
-
skordalsbrynja
-
tungirtankar
-
jyderupdrottningin
-
rannug
-
topplistinn
-
gydadrofn
-
osland
-
hronnsig
-
hugarafl
-
danjensen
-
kliddi
-
ijt
-
keli
-
jonaa
-
ktomm
-
markusth
-
rebekkarut
-
roslin
-
sisvet
-
bogatun8
-
sikklida
-
scorpio
-
svala-svala
-
svetlana
-
taraji
-
skog3
Af mbl.is
Nýjustu færslurnar
- Öryggið á oddinn. Íslenskar kaldastríðshetjur. Nikita Khrushchev og Nató
- Frost á húsnæðismarkaði ætti að lækka stýrivexti en mun ekki gera það
- ÞETTA ER NÁTTÚRULEGA ALVEG MEÐ ÓLÍKINDUM ÞETTA AFREK.......
- *CONTACT* Nú er ALHEIMS-LÖGREGLAN mætt á svæðið og hérna koma þeirra SKILABOÐ :
- Athugasemd við pistil Gandra