Leita í fréttum mbl.is

Sitt lítið af hverju.

Það er margt hræðilegt búið að ske undanfarna daga, öll þessi slys eru alveg hræðileg. Maðurinn á mótorhjólinu, liggur þungt haldin á spítala. Það er ekki bara bílslys, það var skelfilegt að lesa um brunann á Blöduósi í morgun þar sem að maður lét lífið í brunanum. Mér líkar ekki hvað margir eru að slasa sig og deyja þessa dagana. Biðjum fyrir þessu fólki sem liggur slasað á spítölum, og fyrst að við byrjum að biðja á annað borð, þá er alveg til valið að biðja fyrir þeim sem minna mega sín og þá heimilislausu.

Ég er annars búin að eiga þægilega, lata og rólega helgi núna. Vaknaði alveg frá í bakinu, ætlaði að vera svo dugleg í dag, en það verður að bíða betri tíma.

130042008 001

Þarna er Bína nýkomin úr make up, hún var alveg ofsalega ánægð með útkomuna.

130042008 005

Kormákur fór líka, og hann var sko miklu ánægðari og dansaði af gleði.

Takk í bili, eigið góðan dag.


Bílvelta við Laugarveg.

Bílslysin halda áfam, en sem betur fer urðu engin slys á fólki. Sem betur fer heyrir maður nú ekki um mikið um bílveltur innanbæjar.

Farið þið varlega íumferðinni, það er hálka.


mbl.is Bílvelta á gatnamótum Laugavegar og Mjölnisholts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég fékk ráðningu við draumnum!!

Blæðingar og fósturlát í draumi

Þessi draumur barst frá:  Linda litla, lau. 12. apr. 2008

Ég setti þetta inn á bloggið mitt, til að reyna að fá svör. Þar var mér bent á þína síðu. Getur þú ráðið þennan draum fyrir mig ?

DRAUMURINN : Ég var á svo ofsalega miklum blæðingum, ég sest á klósettið og horfi niður í það á meðan ég pissa og það kemur alls konar eitthvað niður úr mér eins og litlar garnir, ég verð hrædd í draumnum en held samt áfram að horfa niður. Þá kemur fóstur, mjög lítið það hefði passað í lófa minn. Það er engir útlimir á fóstrinu, þetta er eins og búkur og höfuð en alveg greinilega fóstur.... þetta fer allt niður í klósettið. Svo vakna ég. Merkir þetta eitthvað ? Mér finnst þetta hálf óhugnarlegt og er alveg viss um þetta þýði eitthvað. Endilega þið sem hafið gaman að því að grugga í draumum, segið mér eitthvað um þetta. Mig dreymir aldrei.

Draumráðning:

Sæl Linda litla og takk fyrir að senda mér drauminn þinn. Ég tel ekki ástæðu fyrir þig að óttast þennan draum þó hann hafi örugglega verið óhuggulegur. Draumtáknin hér eru mjög samfallandi og líklegast er að draumurinn sé ábending til þín um að þú ættir að fara vel með þig, þ.e. huga vel að eigin heilsu. Draumurinn getur þó einnig verið fyrirboði einhverra erfiðleika og þá sérstaklega á þann hátt að einhver von sem þú hefur borið í brjósti bresti. Fóstur er gjarnan fyrirboði einhvers nýs, meðan fósturlát er fyrirboði þess að eitthvað gangi ekki eftir eða viðkomandi eigi að gæta að eigin heilsu. Garnirnar sem þú nefnir. Hafi þetta verið innyfli þín þá er það á sama veg, því það getur verið táknrænt fyrir ósætti einhverskonar og jafnvel missi. Klósettið getur einnig verið táknrænt í þessu til að undirstrika að ósættið sé tengt einhverjum sem þú vinnur fyrir.

Vona að þetta komi þér eitthvað á sporið með drauminn þinn.

Bestu kveðjur :)



Hún er 59 ára og hann er 36 ára.

Rossano Rubicondi er flottur maður...... hvað sér hann við Ivönu ? Hann getur sko gert mikið betur en þetta.

470_ivana_trump_470x300

Á þessari mynd gæti hún verið mamma hans.


mbl.is Ivana Trump á leið í hnapphelduna í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta ótrúlegt, mig langar í svona.

hjyd

Guði sé lof þá er ég nú ekki nærrum eins og þessi aumingja kona.

En ég þekki nokkra sem hafa farið í þessa aðgerð og það hefur gengið misjafnlega vel, samt mjög vel hjá flestum. Ég vil fara í hjáveituaðgerð. OG HANA NÚ !!!


mbl.is Sultarhormón er jafnávanabindandi og heróín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er óskin mín, mig langar í hann.

Ég vaknaði fyrir 9 í morgun og fór á fætur, bloggaði drauminn, fékk mér kaffi með Viggu vinkonu www.bifrastarblondinan.blog.is sem eyðir helginni hérna í Reykjavík, en hún er að vinna í dag hjá frænku sinni í nokkra tíma, en fer ekki fyrr en  á morgun aftur upp að Bifröst. Við sátum einmitt fram eftir að kjafta, reyndar komu í gærkvöldi líka til okkar gestir af efri hæðinni, en það var farið seint að sofa.

12 apríl 2008 036

Vigga fór upp úr klukkan 11 að vinna, Kormákur hringdi í ömmu sína og bað hana að sækja sig og leyfa sér að horfa á video hjá sér þar sem að við erum ekki með video. Jæja, ég var sem sagt ein heima (og auðvitað strákarnir mínir), letin gjörsamlega heltók mig, ég lagðist upp í sófa kveikti á sjónvarpinu, þar var Rachel Ray að elda eitthvað gúmmelaði og ég auðvitað steinsofnaði yfir henni, enda hundleiðinlegt sjónvarpsefni.

Ég átti skemmtilegan og gestamargan gærdag,þar á meðal kom Arna mín www.arnastjarna.blog.is í heimsókn til mín....... það koma bara til mín bloggarar !!! Ég lifi greinilega í tölvuveröld. Nema Arna er nýbúin að fá sér hund..... og þvílíka krúttið, vá hann er alveg yndislegur, þetta er nákvæmlega hundurinn sem að mig langar í, hún er þvílíka knúsírúsíkelírelíkrúttið..... Ég er ekkert ða ýkja neitt, hann er draumahundurinn minn.

12 apríl 2008 003

12 apríl 2008 015

Er maður ekki sætastur ?? Doddi kom svo að sækja krúttintil mín um hálf fjögur.

12 apríl 2008 023

Vigga kom hingað rétt áður en að þau fóru, og náði aðeins að hitta Örnu sina. Við verðum einmitt að fara að reyna að hittast eitthvað vinkonurnar og kíkja á kaffihús eða eitthvað skemmtilegt þar sem að maður gerir aldrei neitt. En það var góður gærdagurinn. Verð bara aðeins að minnast á Kát litla hundinn aftur, hann er svooooo yndislegur, Kormákur sagði einmitt við mig, "mamma, mig langar ekki lengur í páfagauk, mig langar í hund".

Segjum þetta bara nóg núna og gerum okkur góðan dag og skríðum upp í sófa og sofum aðeins meira Sleeping

12 apríl 2008 017


Hvað merkir þetta ? Af hverju er mig að dreyma ?

Þegar ég vaknaði í morgun, þá lá ég bara kyrr og hugsaði um drauminn sem mig dreymdi. Já, mig dreymdi....... mig dreymir aldrei, þannig að ég er viss um að þessi draumur merkir eitthvað. DRAUMURINN :

Ég var á svo ofsalega miklum blæðingum, ég sest á klósettið og horfi niður í það á meðan ég pissa og það kemur alls konar eitthvað niður úr mér eins og litlar garnir, ég verð hrædd í draumnum en held samt áfram að horfa niður. Þá kemur fóstur, mjög lítið það hefði passað í lófa minn. Það er engir útlimir á fóstrinu, þetta er eins og búkur og höfuð en alveg greinilega fóstur.... þetta fer allt niður í klósettið. Svo vakna ég.

Merkir þetta eitthvað ? Mér finnst þetta hálf óhugnarlegt og er alveg viss um þetta þýði eitthvað. Endilega þið sem hafið gaman að því að grugga í draumum, segið mér eitthvað um þetta. Mig dreymir aldrei.

Kv. Linda litla draumhrædda.


Heldur sig meiri en aðra.

Nema hvað ?? Auðvitað þarf hún að framfylgja reglum eins og aðrir þó að hún sé "fræg".

415033A


mbl.is Meinað að fara um borð í flugvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fundinn sekur.

Íslendingur fundinn sekur í Færeyjum. Skelfilega er mikið um fíkniefnabrot. Ég er amk fegin að vera laus úr þessu rugli þegar ég sé svona fréttir.

kokain%202


mbl.is Fundinn sekur í Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engin málaferli í gangi.

Ég skrifaði um það um daginn, að hér hafi verið rifið niður handriðin af blokkinni hjá mér og við lokuð inni, sem sagt hurðin fest aftur utan frá. Frétti svo síðar að það væru málaferli í gangi varðandi viðgerðir og breytingum á blokkinni, en svo er ekki. Ég fór að spyrjast fyrir hjá félagsbústöðum varðandi það að læsa okkur inni og gera svo ekki meira varðandi breytingar. Ég fékk þau svör að engin málaferli væru í gangi, en þau hefðu verið fyrir löngu síðan, núna á að taka blokkina í gegn. Leyfi hefur fengist og þess vegna hafi verið byrjað að vinna hérna. Nú ég spurði þá hvort að mennirnar ætluðu ekki að fara að vinna þá eitthvað í blokkinni svo að við íbúarnir gætum þá kannski farið að opna svalardyrnar, þar sem að td hann patti minn gerir ekkert annað en að væla fyrir utan dyrnar og vill komast út í ferskt loft. Ok, hann hafði ekki hugmynd um það maðurinn. Fyrirtækið sem tók að sér verkið hefur þetta eftir sínum hentugleika, þeir þurfa bara að skila verkinu fyrir einhvern x tíma. Jæja, á fimmtudaginn í síðustu viku, þá var komið með vinnuskúr........

Unufellid 005

Ég og Bína á efri hæðinni, við dönsuðum húllahæ og chachacha í tilefni þess að núna færi að styttast í yfirbyggðu svalirnar okkar. Við settumst niður við eldhúsborðið, þömbuðum kaffi og plönuðum hvað ætti nú að fara út á svalir þegar að þær verða tilbúnar. Við plönuðum það svoooo mikið að það var hreinlega ekkert orðið eftir í íbúðunum okkar, heldur allt hreinlega komið út á svalir. Jæja, dagarnir liðu og alltaf biðum við Bína og plönuðum meira en ekkert skeði, vinnuskúrinn var staðsettur alltaf fyrir utan einmanna og ónotaður. Þangað til á þriðjudaginn...... þá byrjaði fjörið og eitthvað fór að gerast.

Unufellid 003

Þeir eru byrjaðir þessar elskur..... en auðvitað urðum við vinkonurnar svekktar yfir því að þeir byrjuðu a endanum.... þar sem að við bíðum alltaf eftir yfirbyggðu svölunum okkar.

Unufellid 004

En þetta er amk komið af stað. Núna ætlum við bara að fylgjast með þessu rólegar og kannski skreppa á eitthvað bæjarflakk til að kaupa okkur eitthvað til skreyta svalirnar með þegar þær eru tilbúnar Joyful Ég held áfram að leyfa ykkur að fylgjast með, þeas ef að þessi færsla var ekki alveg að drepa ykkur úr leiðindum.

Núna ætla ég að henda mér í sturtu og hrein föt. Ég á nefnilega von á skemmtilegum gestum í dag sem að ég hef ekki séð í margar vikur.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband