Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Svakalegt.....

458516A

Þetta er alveg ótrúlegt, alltaf heyrir maður eitthvað nýtt...... ætli það hafi eitthvað verið með innilokunarkennd þarna inni ??


mbl.is Ísskápurinn sprakk í tætlur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndafærsla.

Ég fór í fermingarveislu hjá Þóri frænda í gær og var hún rosa flott. Þar var steik og meðlæti í boði og ísterta og kransakaka í eftirrétt. Fullt af ættingjum sem komu saman á þessari stundu.

Ferming Þoris 014

Hér er fermigarbarnið Þórir Freyr með pabba sínum, þeir sýnast MJÖG þroskaðir feðgarnir.... eða hvað finnst ykkur ?? LoL

Ferming Þoris 027

Helga Brynja systir Þóris var auðvitað í veislunni og brosti sínu blíðasta eins og alltaf.

Ferming Þoris 050

Þarna voru Guðný, Sissa og auðvitað Iða Brá (mamman)

Ferming Þoris 085

Arnar Daníel (bróðirinn sem fermist á næsta ári) langamma Nína og Iða Brá (mamman)

Ferming Þoris 038

Kormákur á milli bræðrnanna Þóris og Arnars.

Ferming Þoris 029

Svo er það Besti frændi (Árni Rúnar) en hann er elstur af systkynunum, eða 17 ára.

Ferming Þoris 016

þarna voru auðvitað Inga og Elfa Rún  vinstra megin við þær eru mæðgurnar Ninna og Valborg.

Ferming Þoris 034

Og Brynjar Ingi, Ingu og Elfuson. Hann er svooooo mikið krútt þessi rúsínubollufrændi minn.

Ferming Þoris 031

Þarna eru mæðginin mín María og Hjörleifur Máni og Besti stendur þarna hjá þeim.

Ferming Þoris 079

Þetta eru Berglind, Baldur og Bragi Fannar og Sigríður Theodóra dóttir Gullu og Sæma.

Ferming Þoris 035

Guðný og Svanur voru mætt ásamt Rúnari Stein og Kolbrúnu Maríu sem reyndar engin mynd var tekin af.

Þetta var rosagóður dagur, var reyndar mjög slöpp allan daginn og alltaf að fara í svitaköst. Þegar við komum heim til Reykjavíkur þá var ég með þvílíkar magakvalir.

Fór á þvæling í morgun að sækja eina afmælisgjöf í Kringluna, byrjaði á því að leiðinni þangað að gubba í bílnum...... þessi alls herjar flensa er ekki að fara hjá mér. Ég er búin að vera lasin síðan á fimmtudag fyrir rúmri viku. Dagurinn í dag fór mestmegnis fram í bælinu, reyndar í kvöld, þá passaði ég Hjörleif svo að María og Rúnar gætu kíkt í bíó.

Segjum þetta gott í dag, held að ég ætti að hvíla mig fyrir krakkaafmælið á morgun.

Hafið það gott elskurnar og farið velmeð ykkur og góða helgi.


Nýr vorboði mættur til landssins.

Ég er alveg viss um að ég hafi séð kríu í gær, í Árnessýslunni. Þetta er enn einn vor-boðinn.

kria


mbl.is Krían kom með sumrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattsvikari,

37887320

Skattsvikarinn....... ég er nú ekki alveg jafn slæm og hann, ég á nú bara eftir að skila skýrslunni.

Njótið dagsins, það er jú annar í sumardegi fyrsta. Sideways


mbl.is Wesley Snipes dæmdur í þriggja ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oj..... ertu að grínast ??

bilde

Er verið að grínast í mér ?? Rottugangur er eitthvað sem að ég vildi ekki verða vör við, ég bý sem betur fer uppi á þriðju hæð. Vonandi er rotturnar ekki á stærð við þessa hérna á myndinni.


mbl.is Rottur í Réttarholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjaldséðnir svartir svanir og hvítir hrafnar.

Gleðilegt sumar kæru bloggvinir mínir. Sumardagurinn fyrsti leggst mjög vel í mig. Ég kom austur á Hellu í gærkvöldi, Kormákur varð eftir á Selfossi og fór heim til Maríu en ég var hjá Gullu (núverandi eiginkonu í fjarbúð). Ég er að fara í fermingu á eftir hjá honum Þóri Frey frænda mínum, guð hvað þessir krakkar stækka hratt. Jæja, hendi svo inn einhverjum myndum úr veislunni í kvöld, þegar ég kem heim.

Eigið góðan sumardag elsku krúttin mín.

Sumarkveðja frá Lindu litlu.

Varðandi fyrirsögnina, þá eru svartir svanir eitthvað sem að mig langar að berja augum, og ekki væri verra að vera með myndavélina hjá sér.

knús í daginn. Kissing


mbl.is Svartir svanir á sveimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að ??

Helv.... maðurinn fær 4 ára fangelsi.... Arg ! Hvað er að þessu dómkerfi hérna á Íslandi ??
mbl.is Braut gegn sex ungum stúlkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er snilld......

 

 

 





oijki
Taka tvö
Smá vísbending :
Hún er rússnesk..
Getur þú ekki upp á þessu ?
Ætlarðu að gefast upp ?
:
:
:
:
:
:
:
:
9ojuii
Sóðahugsanaháttur í þér.
Haltu núna áfram að vinna.


Lögga... hva er í gangi ??

Ég á ekki til orð yfir viðbrögðum lögreglunnar, þeir láta til skarar skríða með piparúða !!!! Já kæri löggukall, þetta er mjög sniðugt hjá ykkur. Sprayið bara piparúða í augun á bílstjórunum og þá getið þið verið alveg vissir um að þeir færi ekki bílana. Hvað dettur löggunni í hug næst ?? Sprengja dekkin hjá þeim ???

hthrwt


mbl.is Mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var nærrum dauð úr níkótínskorti......

Ég hentist út áðan, það var neyðarástand á heimilinu..... Linda litla var sígarettulaus. Hentist því í pólsku búðina, keypti kattamat, pepsi max og winston.

winston

Var svo varla komin út úr búðinni þegar að ég kveikti mér í . Tók því aðeins rólega þarna fyrir utan, að rettu lokni lá leiðin inn í bakaríið, besta bakaríið í bænum (bakaríið í fellunum) þar sem þjónustan er í fyrirrúmi og afgreiðslufólkið alveg hreint frábært. Þar settist ég niður með einhvers konar rúnstykki með grænmeti, skinku og osti og gúffaði því í mig með hreinum trópí og las morgunblaðið.

eat-panivorous-man-bread-C

Veðrið er alveg yndislegt, blankalogn og hlýtt. En ég er samt að spá í að halda mig innandyra megnið af deginum, er ennþá að kafna úr hósta.

Ég hringdi í www.kaka.is í morgun og pantaði afmælistertuna fyrir Kormák, en það er einmitt 20 manna STAR WARS terta. Ég mæli með þessum stað. Þegar að Hjörleifur Máni var skírður þá var skírnartertan einmitt keypt hjá þeim og hún var alveg ofsalega falleg.

gúddbæ í bili.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband