20.10.2014 | 17:46
Stolið af www.pjatt.is
1. Þetta er ferli, ekki ástand
Með þessu á ég við að þunglyndi virkar oftast ekki bara eins og kvef. Manneskjan er ekki bara þunglynd í nokkra tíma, daga eða vikur, læknast síðan og allt er betra. Algengara er að sjúkdómurinn fylgi fólki mestanpart ævi þess, eða ævilangt. Manneskja getur átt betri daga, vikur, mánuði og jafnvel ár en síðan læðist sjúkdómurinn upp að fólki eins og skuggi og getur haldið því í heljargreipum sínum í lengri tíma.
2. Þetta er ekki bara aumingjaskapur
Ég er mjög metnaðargjörn og ákveðin manneskja og viðurkenni þess vegna fúslega að ég á mjög erfitt með að skilja þunglyndi.
Þunglyndi sýgur úr fólki alla orku, það á erfitt með að finna til gleði, á jafnvel erfitt með að finna til sorgar, fólk er dofið, þreytt. Þunglyndi raskar eðlilegri starfsemi líkamans, sumir sofa og sofa en aðrir ná varla að festa svefn, aukin matarlyst hrjáir einhverja en aðrir eiga erfitt með að koma niður bita. Margir komast fram úr með herkjum á morgnanna og sumir bara alls ekki. Við "eðlilega" fólkið skiljum þetta ekki. Hvað er svona erfitt við að vakna á morgnanna? Þetta er ekkert flókið, þetta snýst um að setja annan fótinn fram fyrir hinn og vippa sér fram úr. Af hverju hættir aðilinn ekki bar'essu fjandans væli?
Þetta er ekki svona einfalt. Ég er viss um að þú gætir spurt hvaða manneskju sem er sem berst við þunglyndi hvort hún myndi bara hætta að vera þunglynd ef hún gæti, og hver ein og einasta myndi segja JÁ TAKK. Engan langar að vera dofinn tilfinningalega, engan langar að líða hörmulega, engan langar að finna til vonleysis. Ef það væri svona fjári auðvelt að "snappa" úr þunglyndi eftir hentisemi myndu ekki svona margir þjást af því, en staðreyndin er önnur, þunglyndi hrjáir fleiri en þú heldur.
3. Þetta snýst ekki um þig
Við erum öll mannleg. Við gerum mannlega hluti. Stór hluti af því að vera mannlegur er að reyna að finna skýringar á hlutunum. Þegar við skýrum hlutina finnst okkur við hafa meiri stjórn. Meiri stjórn veldur því að okkur líður betur.
Þess vegna leitumst við eftir því að skýra þunglyndi. Við grípum í eitthvað sem er kunnuglegt, og það erum við sjálf. Hvað er kunnuglegra þér en þú? Þar sem við gerum þetta ósjálfrátt sjáum við hluti oftar en ekki sem í tengslum við okkur sjálf, út frá okkur sjálfum. Þess vegna er algengt að reyna að skýra hegðun manneskjunnar sem á við þunglyndið út frá eigin hegðun. Makinn er þunglyndur vegna þess sem þú sagðir, sagðir ekki, gerðir eða gerðir ekki. Hann eða hún finnur ekki til nógu mikillar hamingju með þér. Þú ert ekki nógu skemmtileg/ur, áhugaverð/ur, merkileg/ur og svo framvegis og svo framvegis. Hættu þessu, hættu strax! Þetta snýst einfaldlega bara ekkert um þig. Hegðun makans orsakast ekki af þinni hegðun, heldur er atferli sjúkdómsins algjörlega óháð því sem þú gerir. Þunglyndi er ekki hægt að skýra á þennan hátt.
4. Þolinmæðin þrautir vinnur allar
Þó þunglyndi makans stafi ekki af þér hefur það samt áhrif á þig og þú hefur um leið áhrif á makann. Þú hjálpar ástandinu ekki neitt með því að snúast í vörn, fara í fýlu eða verða reið/ur makanum. Það versta sem þú getur gert er að gagnrýna manneskjuna fyrir það sem hún hefur ekki stjórn á. Þú myndir ekki krefja fótbrotna manneskju um að ganga þegar það er augljóst að hún getur það ekki. Það þarf að horfa eins á andlega sjúkdóma á borð við þunglyndi. Það er nefnilega þannig sem þunglyndi virkar, hann eða hún hefur ekki stjórn á því. Þú getur réttilega reiðst þunglyndinu sjálfu; en ekki reiðast makanum! Um leið og þú byrjar að líta á þunglyndið sem sjálfstæða eigind en ekki eitthvað sem makinn stjórnar getið þið saman byrjað að vinna á því.
Það sem maki þinn þarf virkilega á að halda er að þú sért til staðar fyrir hann. Hafir þolinmæði. Styðjir hann. Sýnir honum ást og umhyggju, væntumþykju og virðingu í gegnum súrt og sætt.
5. Þunglyndið skilgreinir ekki maka þinn
Þetta er líklegast það mikilvægasta af öllu! Þunglyndið er ekki makinn og þar af leiðandi á það ekki að vera meginskilgreiningin á honum, hans eðli eða hans persónu. Makinn þinn er svo miklu meira en þunglyndið sem hann þjáist af, öll höfum við ólíka og um leið einstaka persónuleika, gildi, áhugamál og húmor og fólk sem berst við þunglyndi er þar engin undantekning. Þunglyndi er bara einn lítill þáttur í öllum þeim fjölbreytileika sem einkennir eina mannssál. Ekki gera þau mistök að líta á þunglyndið sem aðalatriðið.
Tölum um andlega sjúkdóma, opnum umræðuna! Sýnum stuðning - Aukum skilning!
Andlegir sjúkdómar eru ekki feimnismál og ekkert til að skammast sín fyrir. Með því að hafa þá uppi á borðum verður mikið auðveldara fyrir okkur öll að eiga við þá, hvort sem um er að ræða okkar eigin sjúkdóma eða annara.
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- bifrastarblondinan
- doramaggy
- halkatla
- annabjo
- diddan
- ragjo
- greenbrown
- ingunnjg
- katja
- gullaeinars
- siggathora
- loathor
- komaso
- addabaldurs
- raggafg
- ollana
- gelgjan
- kruttina
- arijosepsson
- asthildurcesil
- beggita
- biddam
- brandurj
- brybba
- skordalsbrynja
- tungirtankar
- jyderupdrottningin
- rannug
- topplistinn
- gydadrofn
- osland
- hronnsig
- hugarafl
- danjensen
- kliddi
- ijt
- keli
- jonaa
- ktomm
- markusth
- rebekkarut
- roslin
- sisvet
- bogatun8
- sikklida
- scorpio
- svala-svala
- svetlana
- taraji
- skog3
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.