Leita í fréttum mbl.is

Nú árið er liðið......

Er ekki rétt að henda inn einhverju nokkrum orðum í tilefni nýja árssins. Fyrstu dagarnir eru bara búnir að vera rólegir. Kormákur kom heim í gær frá pabba sínum og fórum við beint í fjölskyldumatarboð heim til Helga bróður, þar mættum við mæðginin með dýrindis reyktan hátíðarkjúkling. Þetta var auðvitað stórfínt matarboð eins og alltaf. Þarna voru mætt Pabbi og mamma, Garðar og Guðrún, Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí og auðvitað Helgi og fjölskylda og við mæðginin. Við vorum þarna til klukkan ca. half tíu í gærkvöldi, að boðinu loknu skutlaði Garðar bróðir okkur heim.

Vigga og Florin eru enn hjá okkur og verða a.m.k. til morguns, en þau eru búin að vera hjá okkur síðan í fyrra hehhehehe

Við Kormákur skruppum í bæinn í dag, það er langt síðan ég hef skroppið í bæinn. Við fórum á café Paris og fengum okkur að borða og svo fékk ég að sjálfsögðu latte í eftirmat. So röltum við Laugarveginn, ég keypti blek í nýja prentarann minn sem að María og Rúnar gáfu mér í jólagjöf. Svo fórum með strætó í mjóddina og skruppum í nettó og þaðan heim, komum heim um hálf sex. Þetta var bara ágætis dagur hjá okkur.

Skólinn byrjar ekki fyrr en á föstudaginn hjá gormi, þannig að við þvælumst eitthvað á morgun líka. Ég á að hitta sálfræðinginn hans í fyrramálið, fara á féló og sækja um húsaleigubætur og hringja á tryggingastofnum, þar sem ég var að fatta að ég fæ enga heimilisuppbót. Ég talaði við eina vinkonu mína í dag sem er á örorkubótum og hún er með um 170.000 á mánuði mér brá að heyra það, þar sem að ég er bara með 114.000 og mér finnst það ansi mikill munur á tekjum þar sem við erum báðar einstæðar mæður með 7 ára barn. Þetta er eitthvað sem verður að skoða.

Ég held bara að þetta ár leggist vel í mig, byrjunuin lofar góðu. Ég er ákveðin í að vinna mikið í mér og mínum málum á árinu, og ætla að gera mitt besta til þess að bæta bæði mína andlegu og líkamlegu hlið. Helst af öllu myndi ég vilja að geta unnið svo mikið í mér að ég yrði lyfjalaus og vinnufær, ég held að ég þrái ekkert meira en að geta farið að vinna og farið að lifa eðlilegu lífi eins og annað fólk. En þetta á allt eftir að breytast vonandi í árinu, þegar Kormákur byrjar í skólanum á föstudaginn þá ætla ég að byrja að fara á fætur með honum og labba í Breiðholtslaug og synda. Ég er viss um að þegar maður byrjar þá verður það ómissandi.

Jæja, bullerý bull nóg komið af því. Læt þetta gott heita í bili. Hafið það gott elskurnar og farið vel með ykkur.

Kv. Linda litla

p.s. Ekkert bólar á barni ennþá, kannski ætti ég að fara austur og fara með Maríu út að skokka eða senda Rúnar bara með hana í bíltúr í þúfum hehehehehe

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dísaskvísa

P.S í öðru veldi

Ég skal bara skutla þér til hennar og hjálpa þér - ég vil fara að verða næstum því næstum því frænka.  Ég veit ekki hvort ég geti farið heim á morgun- nema að barnið komi í nótt- ég er svo hrædd um að þú sofir af þér símann LOL

Hvernig fannst þér skaupið (þetta líka lélega að mínu mati)?

Dísaskvísa, 3.1.2008 kl. 00:04

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Barnið kemur, ég var sett á 2.janúar fyrir 20 árum, drengurinn kom 16, bara eins og honum sýndist.  Gott samt að fæðast í janúar.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.1.2008 kl. 00:09

3 Smámynd: Linda litla

Skaupið var alveg skelfilegt Vigga, mér stökk ekki bros á vör einu sinni af því.

Og Ásdís ég veit að barnið kemur þegar það er tílbúið.... ég er bara svo spennt.

Linda litla, 3.1.2008 kl. 00:34

4 identicon

Ég er bara ósammála - mér fannst skaupið bara fínt en allaveganna þá hlakka ég mikið til að þú verðir amma - er voða spennt, yndislegt að fá lítið kríli í fjölskylduna þína ;)

Svo veit ég að þú átt eftir að vera dugleg að taka á þínum málum - þú ert svo dugleg

Berglind Elva (IP-tala skráð) 3.1.2008 kl. 00:46

5 identicon

Mér fannst skaupið alveg ágætt, góðir sprettir inn á milli. Gangi þér vel með þetta allt saman hjá þér kona.  Sjáumst kannski eitthvað fljótlega

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 4.1.2008 kl. 11:26

6 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Ekkert sérstakt skaup,,en hvernig er með þig ferðu ekki að verða amma er orðin leið á orðinu tilvonandi amma...halló amma

Guðný Einarsdóttir, 4.1.2008 kl. 13:23

7 Smámynd: Sigríður Þóra Magnúsdóttir

Gleðilegt ár Linda  .

Gangi þér vel á nýja árinu það er ekkert smá prógram hjá þér á næstunni

Skaupið var fáranlegt  mér stökk ekki bros ....kannski of miklar væntingar Næturvaktinn er frábær .

Kv Sigga  

Sigríður Þóra Magnúsdóttir, 4.1.2008 kl. 19:09

8 Smámynd: Dísaskvísa

Hæ - hvernig væri að þú létir heyra í þér og létir mann vita ef eitthvað er að gerast hjá Maríu, ég þarf að hafa það á hreinu hvort ég sé orðin næstum því -næstum því frænka

Dísaskvísa

Dísaskvísa, 6.1.2008 kl. 03:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband