Leita í fréttum mbl.is

Bónus eða Pólskt ?? Já takk.

Blandaðar myndir 002Blandaðar myndir 004

Þetta er það sem að ég sé út um svalrdyrnar hjá mér...... það eru Bónus kerrur út um allt Fellahverfið. Ástæðan...... það er búið að loka Bónus í fellunum, var reyndar gert í sumar. En nú þurfa íbúar í fellunum að fara í Bónus í Hólunum og fólk er greinilega ekki að nenna að labba alla þessa leið til baka með vörurnar sínar og fer því bara með hana með sér heim. Ég er reyndar mjög ósátt við að versluninni í hverfinu var lokað, en hérna var líka 11-11 verslun, en henni var líka lokað. Núna höfum við bakarí, sjoppur og pólska búð. Það fæst nú heilmargt í þessari póslku búð, en hún er ekki bónus.

Ég fór í KBbanka í morgun, er að reyna að koma mínum fjármálum á hreint. Ég á von á hringingu frá bankanum í vikunni og ég vona að þeir geti eitthvað hjálpað mér með þessar skuldir mínar. Vildi helst vera laus við allt á þessu ári, þetta er jú ekki nema milljón, þannig að ég vona að ég nái a.m.k. miklu niður af skuldinni. Ég er svo búin að fá nóg af þessu skulda-intrum-innheimtu-vanskila dótaríi. En hef ákveðið að fara að fara vel með peningana, þar sem ég er komin með smá helgarvinnu.

Rúnar kom og var hérna hjá Maríu og músinni um helgina, húsið náðist ekki að vera tilbúið fyrir helgina þannig að henni var eytt hérna í borginni. Það er yndislegt að sjá hvað feðgarnir eru líkir. Blandaðar myndir 030

Við mæðgurnar fórum á Rakarastofuna á Klapparstíg í dag og María fékk sér permanett, það er allt annað að sjá hana, set inn mynd af henni á morgun. Nenni ekki að tæma myndavélina núna. Inga Birna setti það í hárið á henni og er hún mjög fín, Inga Birna er hárgreiðslukonan okkar, það fær enginn annar að fara í hárið á okkur. Ég ætla í strípur á fimmtudaginn til hennar, þar sem hún vinnur ekki þriðjudaga og miðvikudaga.

Nóg í bili..... hafið það gott elskurnar mínar. Kv. Linda litla (ánægða amman)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, þeir eru líkir feðgar.  Sæt litla fjölskyldan.  Hafðu það gott gullið mitt.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.2.2008 kl. 23:15

2 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Er mín bara að fara að punta sig ég líka ..já þeir eru líkir feðgarnir,

Guðný Einarsdóttir, 11.2.2008 kl. 23:18

3 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

Flottir feðgar..og gott hjá þér að vera í punt stuði...það er bara gaman.Knús

Agnes Ólöf Thorarensen, 11.2.2008 kl. 23:21

4 Smámynd: Mín veröld

jiii hlakka til að sjá mynd af ykkur mæðgum þið verið að setja inn fyrir og eftir myndir það er svo gaman !!!!

knús á ykkur, hey varstu búin að sjá fyrir og eftir myndirnar af berg?

Mín veröld, 11.2.2008 kl. 23:47

5 Smámynd: Mín veröld

kannski maður ætti að bjóða heimkeyrslu úr bónus í breiðholti gegn vægu gjaldi og grætt smá aur

3 eldriborgara fá far heim með vörurnar á þúsunkall! (*hugsihugs*)

Mín veröld, 12.2.2008 kl. 00:03

6 Smámynd: SigrúnSveitó

kvitt...

SigrúnSveitó, 12.2.2008 kl. 08:23

7 Smámynd: Tiger

Alltaf gott að koma fjármálunum í lag til að þurfa ekki að vera í stanslausum snúningum við að redda hinu og þessu. Vona það besta fyrir þig með bankann. Gangi þér vel rúsína..

Tiger, 12.2.2008 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband