Leita í fréttum mbl.is

Bloggvinir mínir.

Ég hef verið að spá í að ég eyði miklum tíma í tölvunni, er mikið að skoða bloggsíður hvort sem er hjá mínum bloggvinum eða bara bloggurum sem eru nýbúnir að blogga. Ég elska blogg, mér finnst bloggvinir mínir vera mínir vinir, mér finnst ég þekkja þá. Ég stend mig að verki að vera að tala um blogg"vini" mína við gesti og gangandi á heimilinu. Hvar væri ég ef að ég hefði ekki tölvu ?? Þá ætti ég ekki svona marga vini, það er nokkuð ljóst.

Endilega ef þú sem ert að lesa þetta ert ekki bloggvinur minn..... viltuþá bjóða mér bloggvináttu þína ?? Ég get endalaust bætt við mig vinum Wink

Málið er að með bloggið, það hjálpar líka fólki. þegar að ég byrjaði að blogga fyrir einhverjum 5-6 árum þá hjálpaði það mér þar sem að ég var svo þunglynd, ég gat talað um líðan mína á netinu. Það er léttir að geta komið frá sér vanlíðan. Ég bjó á Sauðárkróki á þesum tíma, þekkti ekki marga þar. Ég bjó þar með börnunum mínum og ég fékk útrás á netinum um að tala um líðanina og ef að ég hefði ekki bloggað, þá held ég að það hefði verið erfiðara fyrir mig að vinna í sjúkdómnum. Ég er ekkert smá þakklát fyrir þetta blogg. Mér líður vel í dag, ég nota ekki netið til að tala um vanlíðan mína, ég nota það af því að mér finnst það gaman og nýt þess. Ég hef séð bloggsíður þar sem að fólk skrifar um slæma líðan ogég trúi því að því líður betur að geta losað sig við það hérna.

Kannski er þetta innantóm færsla.... veit ekki, af hverju byrjuðið þið að blogga ? Hvað eruð þð búin að blogga lengi ??

Takk fyrir að nenna að lesa Smile og mundu.... þú ert vinur minn og mér þykir vænt um þig Kissing

childrens-1Takið eftir því hvað stelpukjáninn er abbó hehehe


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Yndislegt Linda. Já, ég er alveg sammála, það er svo margt gott sem kemur út úr þessu bloggi og bloggvináttu. Alveg frábært fyrirbæri!

Ég er mikið heima og finnst gott að geta tjáð mig, innri þörf fyrir að skrifa og svo að "hitta" fólk. Ég er rétt búin að vera að þessu í ár, algjör nýgræðingur

Bestu kveðjur Linda mín

Ragnhildur Jónsdóttir, 14.4.2008 kl. 12:18

2 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Sæl!

Já það er margt gott við þennan blogg heim!

Ég byrjaði bara alveg óvart reyndar, fyrir um ári síðan og hef mjög gaman af því að setja inn (ath semdir) færslur hjá bloggvinum og eins og þú segir þá finnst manni þeir vera kunnugri enn bara bloggvinir, svona er þetta bara, gaman af þessu og hálpar eflaust mörgum eins og þú talar um.

Upgrade your email with 1000's of emoticon icons

Kjartan Pálmarsson, 14.4.2008 kl. 12:34

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég byrjaði nú að blogga vegna þess að ég hafði svo margt að segja við annarra manna bloggum ;) 

Hrönn Sigurðardóttir, 14.4.2008 kl. 12:54

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Linda þetta innlegg er svo langt í frá að vera innantómt reyndar fullt af hlýju og fegurð.  Ég segi sama og Hrönn glaptist á að byrja að lesa hérna og til að auðvelda mér að svara skráði ég mig inn og sé ekki eftir því.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.4.2008 kl. 15:12

5 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Kvitt,kvitt Linda mín

Guðný Einarsdóttir, 14.4.2008 kl. 15:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband