18.6.2008 | 23:14
Eru feitir í minnihlutahóp ??
Sko ef að ég væri rekin úr vinnu fyrir að vera of feit, myndi ég ekki taka vinnu þar aftur ef að mér væri boðin hún. Halló !!! Kjóllinn var ekki nóg og stór, af hverju var ekki saumaður nýr kjóll á konuna þá ??? Þoli ekki svona fordóma gagnvart feitu fólki.
Ég er ekki í vinnu þannig að það er ekki hægt að reka mig, og svo hef ég verið það vel liðin í vinnum sem ég hef verið í, að ég hef ekki þurft að hafa áhyggjur af því. En þessi blessaða óperusöngkona Deborah Voigt er búin að fara í magaaðgerð og þegar búin að missa 40 kíló. Ég reyndi nú að hafa samband við Reykjalund fyrir helgi en þar fékk ég þau svör að ekkert yrði skorið upp í sumar. En ég er eimitt (fyrir þá sem ekki vita) að bíða eftir að komast í hjáveituaðgerð.
Þó að ég sé feit, þá get ég ekki sagt að ég hafi verið fyrir fordómum..... minnist þess ekki. Held reyndar að ef að einhver myndi segja eitthvað við mig, þá myndi ég bara berja viðkomandi hehehehe
Svona var hún, það er heldur betur munur á konunni. Hún er bæði unglegri núna og miklu myndarlegri. Pælið í því þegar ég er búin að fara í aðgerð..... vá ég hlýt að verða óstjórnlega falleg......
Þetta er Deborah Voigt í dag.
gúdd bæ... hef a næs næt.
Of feit óperusöngkona snýr aftur eftir megrun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 232815
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- bifrastarblondinan
- doramaggy
- halkatla
- annabjo
- diddan
- ragjo
- greenbrown
- ingunnjg
- katja
- gullaeinars
- siggathora
- loathor
- komaso
- addabaldurs
- raggafg
- ollana
- gelgjan
- kruttina
- arijosepsson
- asthildurcesil
- beggita
- biddam
- brandurj
- brybba
- skordalsbrynja
- tungirtankar
- jyderupdrottningin
- rannug
- topplistinn
- gydadrofn
- osland
- hronnsig
- hugarafl
- danjensen
- kliddi
- ijt
- keli
- jonaa
- ktomm
- markusth
- rebekkarut
- roslin
- sisvet
- bogatun8
- sikklida
- scorpio
- svala-svala
- svetlana
- taraji
- skog3
Athugasemdir
Bara sjálfstraustið sem hún hefur fengið og er komin í gallabuxur. Það eitt segir mér mikið.
Anna Guðný , 18.6.2008 kl. 23:17
já elsku konan er örugglega bara ánægari með sig eftir þetta en ekki fallegt að segja henni upp vinnunni vegna þessa.
alva (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 23:23
Flott kona og gott fyrir heilsuna hennar.
Tók hún ekki þessa ákvörðun sjálf?
Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2008 kl. 23:51
Jú tók hana sjálf, eftir að hafa verið rekin. Svo var henni boðin vinna aftur. Ég hefði sko aldrei tekið henni..... er reyndar líka þrjóskupúki og læt ekki vaða yfir mig.....
Linda litla, 18.6.2008 kl. 23:58
Ég er feitur og fíla mig vel. Við erum bæði fædd árið 1971 ... Linda ... ég og þú við erum frábær!!!
Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 00:08
Feit fólk er hressara en mjónurnar ....satt og sannaðég veit það bara sko
Guðný Einarsdóttir, 19.6.2008 kl. 00:28
Frábær hugleiðing.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.6.2008 kl. 00:45
Já þetta er ótrúleg breyting sem orðið hefur. En ég skil hana samt vel að taka vinnunni aftur. það er gott fyrir sjálfstraustið. Hins vegar er enginn yfirvigt á fegurð sem kemur innanfrá.
En Þessi ágæta kona var að selja bæði rödd sína og útlit ekki satt. Alveg eins og leikkona sem er of feit fær ekki nema sérstök hlutverk, vegna útlits, þar eru kröfur áhorfenda um að aðalskvísan sé ekki svo feit að hún komist varla fyrir á sviðinu. Það gilda bara önnur lögmál í þessum bransa, vegna þeirra krafna sem eru, og er ekki hægt að breyta. Þannig er nú það.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.6.2008 kl. 01:45
Ég verð að taka undir með Ásthildi, svona er nú bara skemmtana bransinn í dag.
Sporðdrekinn, 19.6.2008 kl. 04:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.