Leita í fréttum mbl.is

Skák og mát.

Vá, þetta eru búnir að vera alveg yndislegir dagar sem ég hef verið heima. Væri eiginlega til í að vera lengur heima, en ég og Kormákur erum að fara austur á morgun. Mikið var annars gott að koma heim aðeins. Það er búið að vera leiðindaveður í dag og ég ekki nennt að fara út einu sinni. Elín María er búin að vera hjá Kormáki megnið af deginum og hann mjög ánægður með það.

helgarfríið mitt 055

SJá þessi krútt, þau eru ekkert smá happy yfir að hafa loksins hist. Enda Kormákur búinn að vera lítið heima í sumar.

helgarfríið mitt 032

Elsku ömmustrákurinn kom bæði í heimsókn í gær og í fyrradag, góður skammtur fyrir mig þar sem að ég hef varla séð hann í einhvern mánuð og það er ko allt of langur tími.... amma fær bara fráhvarfseinkenni...... bleikar bólur á nefið.

helgarfríið mitt 047

fjórfætlingarnir mínir eru líka búnir að vera hamingjusamir yfir því að fá okkur heim. Þeir hafa sko verið dekraðir um helgina með fiskimat, túnfisk og harðfisk og meira að segja komst Patti í nýmjólk í dag...... vá hvað honum fannst hún góð.

helgarfríið mitt 049

Annars er ég að vona að við förum að koma heim alveg, það er búið að vera mikill þvælingur á okkur í sumar. Og við mæðginin erum eiginlega komin með heimþrá.

helgarfríið mitt 022

helgarfríið mitt 023

helgarfríið mitt 053

Bína kom í heimsókn í dag og dró mig á rasshárunum fram úr rúminu, sem var ágætt ég var bara í leit og nennti ekki á fætur til að hanga.... en var sko fljót á fætur þegar  hún kom. Hún kom með ostaköku (homemade) jammínamminamm, alveg geggjuð góð, hún er alltaf að baka eitthvað og elda eitthvað gott og alltaf kemur hún með eitthvað til okkar, ég held að hún hafi áhyggjur af því að við horumst niður hér á neðri hæðinni. En alla vega, þá er það bara hollustan núna. ætla að hætta þessum skrifum og skella mér í sallatið sem var eftir í gærkvöldi. ummmm... það er svo gott og svo var líka afgangur af nýjum kartöflum. Ég sauð fullan pott af nýjum kartöflum í gærkvöldi.

Ágætt í dag... síjúleiter beibs, end hef a næs ívning.

Linda litla sallatæta.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Yndislgar myndir kjéddla mín.

En í alvöru þú þarft að drífa þig í Brasilískt vax.

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.7.2008 kl. 19:12

2 Smámynd: Linda litla

hahahaha..... ég var lengi að fatta af hverju þú sagðir að ég þyrfti að fara í Brasilískt vax. Ég hugsaði bara "hvað er að henni", sá hún mig í sturtu í lauginni..... HAHAHA... svo kveikti ég hehehehe já það er þörf á vaxi þegar maður er dreginn fram á rasshárunum.

Linda litla, 21.7.2008 kl. 19:38

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Rasshár, ekki gott mál. Mikið er ömmulingur mikið krútt og dafnar vel. Ætlarðu ekki að flytja austur??  Máttu borða ostaköku ef þú ert salatæta. ?? bara að stríða, ostakökur eru hollar.  Knús ogfarðuvelmeðþig   Kisses 

Ásdís Sigurðardóttir, 21.7.2008 kl. 19:47

4 Smámynd: Linda litla

Ostakökur eru nú ekki hollar ef að þær eru búnar til úr m.a. rjóma og með súkkulaði ofan á..... en þær eru ógeðslega góðar

Af hverju koma athugasemdir mínar svona asnalega út, þær taka svo mikið pláss......

Linda litla, 21.7.2008 kl. 20:29

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Vá hvað þetta eru skemmtilegar myndir, og hvað maður skilur þig að sakna alls. Barnabörnin eru yndisleg.  Flottar myndir af krökkunum og stubburinn þinn er frábær á þessari síðustu

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.7.2008 kl. 20:34

6 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

já halló.

Gunnar Gunnarsson, 21.7.2008 kl. 20:47

7 Smámynd: Aprílrós

Dafna aldeilis flott ömmukrúttið og mömmukrúttið.

Bestu kveðjur til ykkar.

kveðja Guðrún Ing

Aprílrós, 21.7.2008 kl. 21:34

8 Smámynd: Hrafnhildur Björk Jónsdóttir

Gaman að sjá þessar frábæru myndir af frændum mínum , risa nú þú

Hrafnhildur Björk Jónsdóttir, 21.7.2008 kl. 21:48

9 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Krúttlegar myndir af já krúttlegu frændum mínum...Ummm hefði sko alveg verið til í að vera með ykkur og kjamsa ostaköku ummm

Jæja ég sé ykkur bara á morgun,ef ég hef að opna augun,það gekk nú hálf illa í morgun...see you darling

Guðný Einarsdóttir, 21.7.2008 kl. 23:38

10 identicon

jæja annar dagurinn í vinnunni í dag og þú biður mig um að kíkja á bloggið þitt og það fyrsta sem ég sé er mynd af stráknum mínum og ég er næstum farin að tárast..! mig langar heim til hans

Maja (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 10:28

11 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Humm rasshárunum  Hvaða voða ferðalag er alltaf á ykkur fjölskyldunni ? Flottar myndir af flottri fjölskyldu   Hafðu það gott Linda mín

Katrín Ósk Adamsdóttir, 23.7.2008 kl. 18:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband