Leita í fréttum mbl.is

Yndislegir gestir.

Það verður spennandi að sjá þessa þætti, hef yfirleitt gaman að sjónvarpsefni sem viðkemur tónlist. Vona ég samt að þeir verði endursýndir þar sem að ég sé aldrei sjónvarp um helgar, eða yfirleitt ekki.

Annars er Jónsi flottur og á alveg örugglega eftir að standa sig í þessum þáttum, vona bara að hann leggi ekki skóna á hilluna varðandi söng, því hann er mjög góður tónlistarmaður.

Jæja, það voru að fara frá mér gestir. Arna  http://arnastjarna.blog.is/blog/arnastjarna/, Fríða Dís og Bjössi voru hjá mér í heimsókn. Vá það er svoooo langt síðan ég sá tvíburanam, og þeir hafa ekki stækkað neitt smá mikið og eru algjörar dúllur. Auðvitað var gripið í myndavélina, en set engar myndir inn núna. Skelli inn myndum af heimsókninni eftir helgi, þegar ég kem heim aftur.

Það er alltaf svo yndislegt að hitta hana Örnu, við getum alltaf talað saman, alveg sama um hvað, við getum talað endalaust, alveg sama hve lengi við hittumst í einu, það er samt alltaf of stuttur tími finnst mér. Doddi kom svo í smátíma í kaffi, en þau fóru fljótlega eftir að hann kom, einum kaffibolla síðar eða svo.

Jæja, gott í bili..... hafið það gott um helgina og farið varlega.

Kv. Linda litla.


mbl.is Jónsi: Verð að læra að hemja mig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja skordal

Já þetta verður örugglega skemmtilegir þættir tala nú ekki um fyrst Jónsi er þarna hann er svo mikið yndi verður örugglega endursýnt vonum það fyrir þig!! Hafðu það notalegt um helgina ljúfust

Brynja skordal, 19.9.2008 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband