Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007
17.11.2007 | 16:24
Ökumaður og jólasveinarnir
![]() |
Ölvaður farþegi henti bílstjóranum út og ók sjálfur í bæinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2007 | 13:40
Laugardagur til lukku ;o)
Runninn er upp laugardagur
með kulda og snjó í för.
Maginn minn er ekki magur
hann fullur er að mör.
HAHAHAHAHAHA Mikill yrkill er ég, ég er ekki öryrki fyrir ekki neitt hehehe
Já það er laugardagur og 37 dagar til jóla. Það styttist óðum í afmlæisdag minn úfffff..... þoli ekki að ég skuli eldaast á hverju ári, væri til í að hafa þetta annað hvert ár. Við mæðgurnarskelltum okkur í bíó í gærkvöldi og skemmtum okkur ágætlega, fórum á myndina "the heartbreak kid" www.midi.is/bio Ben Stiller er alltaf góður og sveik hann okkur ekki í þessari mynd. Þó að myndin hafi verið góð, urðum við samt fyrir smá vonbrigðum áttum von á meiri hlátri. Við komum heim ú bíó um eittleytið í nótt og skelltum okkur í tölvuna og fórum á www.trivia.is og festumst þar, héngum í því til klukkan 4 í nótt, er þetta eðlilegt ?? Kallast þetta að eiga sér líf ?? Við mæðgurnar kunnum sem sagt að skemmta okkur saman og stóðum okkur betur en þessir 12 ára grislingar sem við vorum að keppa við he he he og að sjálfsögðu gisti María og bumbubúinn hérna hjá mér.
Til hamingju með daginn Jón Ingi minn, en hann er einmitt 4 ára í dag, ég ætla reyndar ekki að mæta þar sem að Kormákur er ekki heima, en við kíkjum í heimsókn við tækifæri við mæðginin í þeirri von um að fá eitthvað gott með kaffinu he he
Annars býst ég bara við því að taka deginum með ró, er ekki búin að klæða mig og er ekki á leiðinni til þess. Litla gula hænan er á leiðinni í fellin og ætlar að fá að gista hjá mér af því að hundurinn, kötturinn og svínin sögðu öll "ekki ég".
Nóg annars í bili. Takk fyrir lesninguna og endilega skiljið eftir sönnun að þiðhafið litið við. Kv. Linda litla.
p.s. Ég var búin að gleyma því að segja ykkur að í gærkvöldi kom hingað til okkar snyrtifræðingur hún Kristrún, og ákvað hún að reyna að bjarga eitthvað á okkur andlitinu þar sem að það er ekki fallegt að hafa bara eina augabrún og ætlaði hún að skipta henni í tvær. Útkoman var mjög góð og vorum við allar sáttar. Ég, María og Unnur. María og tengdó fengu sér líka lit á augnhárin, en ég er svo sérvitur að ég vildi bara strípur ú handakrikann. Í lokin ætla ég að skella inn nokkrum myndum af snyrtikvöldinu, en þær eru ekki allar skýrar það sést bara hvað það var gaman hjá okkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.11.2007 | 12:05
Róleg.....
![]() |
Angelina Jolie "gekk af göflunum" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2007 | 13:43
HO HO HO
![]() |
Jólasveinninn má ekki segja hó hó hó! |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.11.2007 | 10:30
Snjór snjór snjór
![]() |
Allt á kafi í snjó í Austurríki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2007 | 08:56
Bruni í fellahverfinu.
Litlu munaði að ég hefði brennt blokkina upp til agna í gær.... ég er enn í sjokki yfir þessu, svona lagað hefur aldrei komið fyrir hjá mér áður þar sem að ég þykir mjög ábyrg gagnvart rafmagnstækjum og eld. Unnur birtist seinni partinn í gær með hamborgara og stakk upp á því að við myndum leda saman, ekkert mál við gerum þetta stundum þá kaupir hún eitthvað að borða og kemur með það og ég elda. Ég kveiki á eldavélinni og ætla að fara að byrja að steikja þegar ég fatta að ég á ekkert á hamborgara, þannig að við ákveðum að hendast í Bónus. Bónus er ekki opið svo að við brunum í Kaskó, þegar ég stend á kassa í Kaskó með þjóðarrétt íslendinga (kokteilsósu) pepsi max, franskar og fleira. Þá man ég alltt í einu eftir eldavélinni, hleyp (já ég hljóp) út úr Kaskó inn í bíl til Unnar, nánast ríf af henni símann og hringi heim í Kormák og bið hann að taka pönnuna af hellunni en passi sig vel að brenna sig ekki. Hann hringir til baka eftir ca. 30 sek. og segir ömmu sinni að það sé allt fullt af reyk inni. Amma hans segir, við erum að koma. Þegar við rennum í hlað í Unufellinu, stekk ég nánast út úr bílnumá ferð og hleyp upp á þriðju hæð og það var dökk grár veggur sem blasti við mér þegar ég opnaði og krakkarnir hóstandi inni. Ég ríf upp svalardyrnar dreg krakkana út, opna alla glugga, kveiki á viftunni og svo eyddum við ansi löngum tíma úti á svölum og maturinn varð nú í seinna lagi. Þökk sé elsku Kormáki mínum að við eigum enn í hún að venda. Ég vil bara biðja ykkur að passa vel upp á eldavélina hjá ykkur, þetta er ekkert grín að lenda í þessu.
Held að ég láti þetta bara duga í bili hérna. Takk fyrir innlitið og ekki væri leiðinlegt ef að þú myndir nú skilja eitthvað eftir þig hérna.... t.d. comment
Annars bara góða helgi og njótið hennar. Kv. Linda
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.11.2007 | 08:12
Íslenski tungudagurinn
![]() |
Fjölbreytt dagskrá á degi íslenskrar tugu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.11.2007 | 02:11
Britney Spears

![]() |
Britney heldur að bölvun hvíli á sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2007 | 08:58
Good morning Iceland !
Hæ hæ og góðan daginn.
Loksins drösslaðist mín á fætur árla morguns, búin að koma drengnum í skólann svo núna hefst allsherjartiltektardagur Linda litlu.
Ég þvældist með Unni í gær og fórum við í Europris og verslaði ég það dótakassa fyrir Kormák, pennsla fyrir hann, jóladúka og eitthvað fleira. Það er alveg ótrúlegt hvað mér tekst alltaf að eyða peningum þegar ég á þá ekki. Nú við kíktum á Brynju í vinnuna og fórum svo með henni heim í kaffi. Komum aðeins við í Hjálpræðishernum, þar sem ég keypti eitthvað af barnafötum á tilvonandi barnabarn. Seinni partinn fór ég svo að sækja sjónvarpsskáp sem mér áskotnaðist og fékk svo Ívar í kaffi eftir það þegar við vorum búin að sækja skápinn.
Nú kvöldið í gær fór í að horfa á Tomma og Jenna með Kormáki, Tommi og Jenni eru alltaf sígildir og skemmtilegir og það er alltaf hægt að hlæja að þeim. Ég hlýddi Kormák yfir vísur sem að hann á að fara með á hátíð í skólanum á morgun, hann sagðist vera soldið kvíðinn af því að hann þarf að tala í mígrafón, en ég efast ekkert um að þetta eigi eftir að ganga vel hjá honum. Hann er svo skýrmæltur. Ég fór að sofa á skikkanlegum tíma aldrei þess vant, eða upp úr miðnætti.
Dagurinn í dag verður bara tiltekt og dunderý, býst ekki við að fara neitt, nema kannski í Rima apótek og sækja mér lyf og búið.
Annars er helgin fram undan og það er pabbahelgi og hafði ég hugsað mér að taka því rólega og slaka bara á. Vera búi að þrífa og njóta þess að vera heima og hafa það bara kósý.
María kemur á morgun og á ég eftir að þvlæast eitthvaðmeð henni. Annað kvöld kemur svo snyrtifræðingur hér heim til að snyrta mig, Maríu og Björk. Þetta er góð þjónust þykir mér að mæta bara á svæðið og flikka upp á kvensurnar. Að því loknu vorum við María að pæla í því að skella okkur í bíó á nýju myndina með Ben Stiller, en trailerinn af myndinni lofar góðu www.midi.is/bio kíkið á það.
Nóg í bili, hafið það gott elskurnar mínar. Kv. Linda litla.
Hendi inn myndum af nýja skápnum og leyfi ykkur sjá hann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.11.2007 | 13:40
Ætti ég að senda ríku köllunum bréf ??
Það er kominn miðvikudagur, ég vaknaði fyrir klukkan 8 með Kormáki. Þegar ég var búin að peyjanum í skólann lá leið mín í rúmið aftur til að hlýja mér aðeins á tánum áður en ég henti mér í sturtu. EN ég steinsofnaði auðvitað, og vakanði við símann klukkan 11:50. Þetta er alveg óþolandi, ég sef og sef. Ég fór ekki almennilega á fætur fyrr en um kvöldmat í gær. Ég get þetta ekki svona, verða ða reyna að rífa mig eitthvað upp. Svona hagar maður sér ekki þegar maður er með barn á heimilinu. Kannski er þetta skammdegið, ég veit a.m.k. að þetta er þunglyndi en ég á að vera á lyfjum fyrir þunglyndi þau virðast ekki vera að gera sig þessa dagana.
Gulla hringdi í morgun og var að benda mér á einbýlishús til leigu á Hellu, ég kannaði það og það eru rúmir 160 fermetrar og bílskúr. Rangárvallahreppur borgar húsaleigubætur en ekki sérstakar, ég hringdi á hreppinn og hún hélt að það væru bara veittar sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík.
Hvernig er þetta annars...... ég er öryrki, einstæð móðir og á aldrei pening. Hvernig er með þessa ríku kalla úti í þjóðfélaginu, ætli maður geti ekki sent þeim bréf og beðið þá um að styrjka sig ? Hvernig ætli þeir myndu bregðast við slíku bréfi ?? Ég meina þeir eru 1-2 mánuði að vinna fyrir árslaunum mínum. Ég get a.m.k. sagt ykkur það að ég sem einstæð móðir og öryrki með mín skuldabréf og mínar skuldir.... þetta er ekki að gera sig.
Ég veð úr einu í annað, ég veit það. En ég var að spekúlera, ég á tvo ketti þá Patta og Tuma og þeir eru mjög spes greyjin, þeir eru alltaf vælandi fyrir utan alla fataskápa í íbúðinni og vilja komast inn í þá..... hva er málið ?? Hafið þið heyrt svona áður ?? Ég kalla þá alltaf skápastrákana mína.
Jæja, elskurnar, nóg væl í bili. Takk fyrir lesninguna og endilega skildu eftir komment ef að þú hefur eitthvað til málanna að leggja.
Kv. Lindalitla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 26
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
bifrastarblondinan
-
doramaggy
-
halkatla
-
annabjo
-
diddan
-
ragjo
-
greenbrown
-
ingunnjg
-
katja
-
gullaeinars
-
siggathora
-
loathor
-
komaso
-
addabaldurs
-
raggafg
-
ollana
-
gelgjan
-
kruttina
-
arijosepsson
-
asthildurcesil
-
beggita
-
biddam
-
brandurj
-
brybba
-
skordalsbrynja
-
tungirtankar
-
jyderupdrottningin
-
rannug
-
topplistinn
-
gydadrofn
-
osland
-
hronnsig
-
hugarafl
-
danjensen
-
kliddi
-
ijt
-
keli
-
jonaa
-
ktomm
-
markusth
-
rebekkarut
-
roslin
-
sisvet
-
bogatun8
-
sikklida
-
scorpio
-
svala-svala
-
svetlana
-
taraji
-
skog3