Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

Reykingamaður = Reykdólgur

Ég verð nú að segja að ég rauk upp þegar ég sá þessa frétt þar sem talað er um umræddan "REYKDÓLG". Þetta flokka ég nú bara undir fordóma, erum við reykingafólkið orðin reykdólgar..... ég er hneyksluð á þessari frétt.
mbl.is Kveikti sér í sígarettu við flugtak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að verða með þennan heim ?

Það verður kræfara og kræfara. Áður var fólk stungið eða skotið og var það tengt fíkniefnum, kynþáttahatur, einhverjar óeirðir, stríð o.þ.h. Núna eru börnin farin að stinga hvort annað vegna ósættis við sjónvarpsefnið..... þessi heimur harðnandi fer það er nokkuð ljóst. Hélt reyndar að það væru mörg sjónvörp á heimilum í dag svo að allir geti horft á sitt í næði.
mbl.is Stakk bróður sinn er þeir rifust um hvað ætti að horfa á í sjónvarpinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fer til Kúbu eftir hálfan mánuð og kem líklega ekki heim aftur.

Það gat skeð að eitthvað svona myndi birtast svona rétt fyrir Kúbuferðina, væri það ekki alveg eftir því að stoppa flugið þegar við erum á Kúbu og við kæmumst ekki heim aftur ? he he he Annars er það líka alveg ótrúlegt hvað fólki á Kúbu er refsað fyrir það að Kastró skuli vera við völd þar.
mbl.is Finna að Kúbu-flugi íslenskra flugfélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að ??

Hvernig væri bara að trufla ruv og leyfa okkur að ráða hvort að við viljum borga af þessu eða ekki. Það er ekki horft á´Ríkissjónvarpið á mínu heimili og ég er langt frá því að vera sátt við þessar endalausu hækkanir, það er rétt ár síðan gjaldið var hækkað síðast.
mbl.is Afnotagjald RÚV hækkar um 4% 1. desember
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hornskápur til sölu, kostar meira en tölu.

100_0490ÉG vil byrja á því að segja ykkur að þessi fallegi furu hornskápur er til sölu á litlar 15.000 krónur, hafi einhver áhuga er honum bent á að hafa samband við Unni í síma 8465210 en hún er einmitt nýflutt í nýtt húsnæði og það er ekki pláss fyrir skápinn.

Það er búið að vera mikill þvælingur á mér í dag, ég er búin að fara í BYKO með tengdó að kaupa baðkar og ljós, svo kíktum við í Mjóddina, Rúmfatalagerinn í Smáranum og svo sóttum við Berg, en hann verður einmitt hjá okkur Kormáki á mánudögum og þriðjudögum í vetur. Þegar Björk kom að sækja hann, þá reddaði hún sjónvarpinu fyrir mig. Það var eitthvað rugl á því eftir að ég fékk sjónvarpsskápinn, eitthvað vitlaust tengt hjá mér, en ég er einmitt ekki mikill tækja og tóla gúrú. Verð alltaf að fá hjálp við svona lagað, enda búin að vera sjónvarpslaus í næstum viku það er reyndar ekkert að bögga mig þar sem að ég horfi nánast ekkert á sjónvarp, en Kormákur vill sjá barnatímann á daginn.

Ég spjallaði við Maríu mína í dag og hún býst við að koma suður á fimmtudaginn, en hún kemur nú yfirleitt til mín a.m.k. einu sinni í viku. Ég keypti einmitt barnastóla sessu í Rúmfó handa tilvonandi ömmubarni í dag, sem kostaði litlar 99 krónur. Við erum mæðgurnar erum orðnar miklu tengdari eftir að hún varð ófrísk, sem er náttúrulega bara gott mál.

Þetta er víst ágætt í bili, held að ég komi mér snemma í rúmið í kvöld. Takk fyrir lesturinn og hafið það gott. Kv. Lindalitla.´ðuÞað er eins gott að það fór ekki svona þegar ég var nærrum búin að kveikja í um daginn. Ég býst við að ég myndi frekar brenna inni heldur en að sjást svona á almannafæri, ég er svo roooooosalega feimin.


Hilton kyssir bara strákana.....

Einmitt, hún sefur ekki hjá þeim. Ég ætla bara að láta ykkur vita það að ef að þið trúið þessari vitleysu þá er ég Margrét Danadrottning og hana nú. !
mbl.is Paris Hilton ætlar að leita að nýjum kærasta í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EUROSTAR OG PISS ????

Ég hef verið í Camden og ég var nú ekki vör við neitt líkt þessu. Svo er ég ekki að skilja hvernig þetta geti verið auglýsing fyrir Evrópuhraðlestina, hvernig í ósköpunum tengist þetta henni ?
mbl.is Sprænir í tebolla til að auglýsa London
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott ef að þetta eru réttir menn....

Það er bara vonandi að þetta séu réttu mennirnir. En það voru handteknir fjórir menn, en það voru þrír sem rændu söluturninn.........
mbl.is Fjórir handteknir í tengslum við rannsókn á vopnuðu ráni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvíldardagurinn er í dag ;o)

Gulla kom í gær í bæinn og fengum við okkur nokkra öllara, svo kom Kalli vinur hennar og við sátum og kjöftuðum fram eftir kvöldi. Brynja, Kiddi og Bjöggi kíktu líka í mýflugnamynd. Um miðnættið skelltum við okkur á moesbar í Seljahverfinu, hitti Helgu þar og tókum við nokkra pool. Gaman að hitta Helgu og einnig að taka pool. Gulla og Kalli fóru svo fljótlega, en ég var áfram með Helgu, eftir einhverja 4-5 leiki nenntum við ekki meira og fórum bara heim.

Ég ætlaði að sofa vel út í morgun, en það var ekki flóafriður fyrir Gulla. Ég held að hún hafi hringt svona 10 sinnum og ég svaraði henni bara tvisvar, svo komu þau eitthvað um tvö leytið hún og Kalli. Kalli kom með hátlara handa mér á græjurnar mínar, og ætlar svo að kíkja í vikunni og tengja þá fyrir mig. Ég henti inn myndaseríu af þeim tveimur, samt aðallega af Gullu það var einhver myndatöku púki í mér í gærkvöldi og tók ég endalausar myndir.

Tengdó kom færandi hendi með samlokur áðan og stoppaði hún stutt. Gulla var að fara og tengdó, þannig að ég ákvað að henda inn nokkrum orðum en svo ætla ég að leggja mig í smátíma áður en Kormákur kemur heim. Hann var að hringja og er á Selfossi.

Þetta er nú eitthvað voðalega innihaldslaust blogg hjá mér he he he he en það skiptir engu máli, það verður bara öðruvísi næst.

Sjáumst kv. Linda litla

100_0350


Klikkað lið

Hvað er í gangi ? Er að fara af stað núna einhver ránbylgja ? Það er nú búið að vera ágætis pása á þeim undanfarið. Það er skelfilegt þegar þetta byrjar og yfirleitt eru þetta fíklar sem eru að fjárfesta neysluna sína.
mbl.is Vopnað rán í söluturni í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband