Leita í fréttum mbl.is

Hvað heitir fjallið á myndinni ??

Tindastóll

Hvað heitir fjallið og hvar er það ?


Sódóma Reykjavíkur

það er ekki einu sinni óhætt að vera heima hjá sér, hvað er eiginlega að verða með Reykjavík. Það er spurning um að flýja út á land, flytja bara í burtu héðan á meðan maður sleppur frá öllu slæmu.
mbl.is Þrír piltar ruddust inn í íbúð konu á níræðisaldri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir komu hjartanu af stað aftur.

Það er alltaf gott að lesa um svona, og þessir feðgar eiga svo sannarlega skilið þennan titil. Snögg viðbrögð hjá þeim, Sveinbirni og Tómasi. Glæsilegt hjá ykkur !!
mbl.is Bjargaði eiginkonu í hjartastoppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bubbi alltaf að bjarga heiminum.

Ég efast um að Bubbi Morthens geti breytt hugarfari fólks með því að halda stórtónleika. Sé ekki fyrir mér að fólk fari með fordóma gagnvart útlendingum og komi út af tónleikunum frelsað frá útlendingahartri.
mbl.is Bræður og systur gegn fordómum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Special prize for you my friend.

Allt selst á netinu, meira að segja gamalt súkkulaðistykki. Kona sem fann fimm ára gamalt súkkulaðistykki undir sófapulllu hjá sér.

Og ekki nóg með það, heldur var það selt á 26.000 krónur, Takk fyrir pent.

Ég sem hélt að ég væri ekki nóg og dugleg að taka til.


mbl.is Gott verð fyrir gamalt súkkulaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bónus eða Pólskt ?? Já takk.

Blandaðar myndir 002Blandaðar myndir 004

Þetta er það sem að ég sé út um svalrdyrnar hjá mér...... það eru Bónus kerrur út um allt Fellahverfið. Ástæðan...... það er búið að loka Bónus í fellunum, var reyndar gert í sumar. En nú þurfa íbúar í fellunum að fara í Bónus í Hólunum og fólk er greinilega ekki að nenna að labba alla þessa leið til baka með vörurnar sínar og fer því bara með hana með sér heim. Ég er reyndar mjög ósátt við að versluninni í hverfinu var lokað, en hérna var líka 11-11 verslun, en henni var líka lokað. Núna höfum við bakarí, sjoppur og pólska búð. Það fæst nú heilmargt í þessari póslku búð, en hún er ekki bónus.

Ég fór í KBbanka í morgun, er að reyna að koma mínum fjármálum á hreint. Ég á von á hringingu frá bankanum í vikunni og ég vona að þeir geti eitthvað hjálpað mér með þessar skuldir mínar. Vildi helst vera laus við allt á þessu ári, þetta er jú ekki nema milljón, þannig að ég vona að ég nái a.m.k. miklu niður af skuldinni. Ég er svo búin að fá nóg af þessu skulda-intrum-innheimtu-vanskila dótaríi. En hef ákveðið að fara að fara vel með peningana, þar sem ég er komin með smá helgarvinnu.

Rúnar kom og var hérna hjá Maríu og músinni um helgina, húsið náðist ekki að vera tilbúið fyrir helgina þannig að henni var eytt hérna í borginni. Það er yndislegt að sjá hvað feðgarnir eru líkir. Blandaðar myndir 030

Við mæðgurnar fórum á Rakarastofuna á Klapparstíg í dag og María fékk sér permanett, það er allt annað að sjá hana, set inn mynd af henni á morgun. Nenni ekki að tæma myndavélina núna. Inga Birna setti það í hárið á henni og er hún mjög fín, Inga Birna er hárgreiðslukonan okkar, það fær enginn annar að fara í hárið á okkur. Ég ætla í strípur á fimmtudaginn til hennar, þar sem hún vinnur ekki þriðjudaga og miðvikudaga.

Nóg í bili..... hafið það gott elskurnar mínar. Kv. Linda litla (ánægða amman)


Þú færð ekki kettling, þú ert hommi.

Ég á ekki til eitt einasta aukatekið orð....... hvað er að svona fólki ?

Ég er svooooooo hneyksluð og gáttuð að ég bara.....  sit á gati.

Hún er lesbísk og fær þess vegna ekki að kaupa hvolpinn.


mbl.is Sektuð fyrir að neita að selja lesbíu hvolp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjáið ! Hvað er að fólki ?

Þetta er alveg magnað..... hvað er að svona fólki ?? Vitið þið hvernig þið látið heilann í svona fólki líkjast grænni baun ???

Nú auðvitað byrja á því að blása hann upp í rétta stærð og mála hann svo grænann.

Hvers vegna fer fólk ekki eftir þessu.... LOKAÐ ! Skilur fólk ekki orðið LOKAÐ ??? Eða þarf fólk alltaf að athuga hvort að það sé verið að ljúga að því ?? Hvað er málið ??


mbl.is Lögðu á lokaða Holtavörðuheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn góður fyrir svefninn.

sætt

Myndin kemur brandaranum ekkert við.

Hvað áttu að gera við gamallt hakk ?Woundering?

Nú auðvitað búa til ELDRI BORGARA.

HALoLHAGrinHALoLHAGrinHALoLHAGrinHALoLHAGrinHALoLHAGrinHALoLHAGrin


Bjórinn meira virði ????

Það lítur út fyrir það að bjórinn sé henni meira virði en barnið. Vill síður fá bjórinn í gólfið og springa en barnið í framrúðuna eða eitthvað hræðilegt.

Hvað er að fólki ?? Ég sé allt of oft börn óspennt í belti hér í Reykjavík, hvers vegna gerir fólk þetta ?? Er því sama um börnin eða eru foreldrar ekki að fylgjast með því hvort að börnin fari í beltið ??


mbl.is Bjór í belti en ekki barnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband