Leita í fréttum mbl.is

Myndir af (fj)öryrkjum og Jóhönnu félagsmálaráðherra.

Dagurinn í dag gekk vel hjá (fj)öryrkjum, þeir hittust á café paris klukkan 10 í morgun og fengu sér kaffi, spjölluðu og fóru yfir gögnin sem Jóhanna Sigurðardóttir átti að fá. Upp úr klukkan ellefu var lagt af stað í Félagsmálaráðuneytið til fundar við ráðherrann.  Þar sem að Jóhanna var ekki tilbúin að taka á móti okkur strax koma Hrannar B. Arnarsson aðstoðamaður hennar og ræddi málin við okkur og kom hann mjög vel fram. FjöryrkjarHér talar hann til okkarEnn er talað við Hrannar

Skömmu síðar birtist Aðalkonan hún Jóhanna, og tók vel á móti okkkur. Gaf sig alla í að hlusta á Ásdísi (fj)öryrkja sem las smá pistil fyrir hana. Hún tók vel í alla hluti og sagði okkur að það væri nú þegar allt farið af stað í okar málum og veit ég að Jóhanna á eftir að gera sitt fyrir okkur, þar sem að henni er annt um þá sem undir eru í þjóðfélaginu. Enn er lesið fyrir JóhönnuJóhanna félagsmálaráðherraTakk fyrir okkurÉg skelli inn hérna nokkrum myndum af morgninum, en það eru fleiri myndir í alb+umi hér til hliðar Okkur fjöryrkjum og Jóhönnu.


Hverjir þora að svara ??

Það hefur alltaf verið stórmál að viðurkenna að fólk fari með bænir á kvöldin. Það er eins og það skammist sín fyrir það. Ég tala við Guð á kvöldin, ýmist í hljóði eða upphátt. Þegar ég er búin að biðja hann um eitthvað, þakka honum fyrir og slíkt þá fer ég með Faðir Vorið.

Hverjir hérna þora að viðurkenna að þeir fari með bænir eða tali við Æðri mátt ??


Hún varð örugglega abbó.....

HA HA HA HA HA HA

Þetta er snilldarleið til þess að gera fyrrverandi afbrýðisama, senda henni bara allar myndirnar úr brúðkaupinu sem að henni var að sjálfsögðu EKKI boðið í.

Frekar neyðarleg mistök he he he en hlægileg.


mbl.is Fyrrum kærasta fékk brúðkaupsmyndirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

9 merkur

María fór í mæðraskoðun í dag og er litla ömmubarnið mitt orðið 9 merkur, þannig að þetta verður sko ekkert smábarn þegar það kemur í heiminn he he he Barnið er búið að snúa sér og skorða sig rétt núna, ætli það hafi ekki snúið sér þegar María datt um helgina. En ljósmóðurin var búin að segja að ef að það væri enn sitjandi þegar hún kæmi í skoðun næst þá yrði hún trúlega tekin með keisaraskurði 17 desember. Sem betur fer hefur það breyst. Ég heyrði í Maríu í dag og hún ætlar að koma suður á morgun til okkar og vera nótt. Ætli við mæðgurnar höfum það bara ekki gott og prjónum og föndrum eða eitthvað skemmtilegt saman. Það væri gaman að kíkja í Garðheima og finna eitthvað föndurdót fyrir jólin.

Kormákur er búinn að vera fínn í dag, las fyrir mig án múðurs og var bara ánægður með skóladaginn. Ég talaði við Vilborgu bekkjarsystur hans í dag og hún sagði að það væri verið að stríða honum í frímínótunum og ef að hún heyrði það þá léti hún starfsmenn vita um leið. En þau eru sammála um það að bekkurinn þeirra er besti bekkurinn í skólanum en þar eru allir svo góðir vinir.

Annars er ég lítið búin að gera í dag, ég labbaði jú í Shell til Guðnýar og spjallaði við hana, verslaði ávexti, safa og sígarettur og fór svo heim. Ella kíkti aðeins á mig í kvöld og var að bjóða mér sjónvarpsskáp, en þar sem að ég á einn fínann þá afþakkaði ég hann. En ef að einhverjum vantar sjónvarpsskáp þá er einn hérna hjá okkur gefins. Bara láta mig vita og ég gæti þess vegna hent inn mynd af honum.

Þetta er ágætt í bili. Ætla að koma mér snemma í bólið. Takk fyrir að nenna að lesa þetta látlausa blogg mitt og þangað til næst góða nótt og hafið það gott.

Kv. Linda litla.


Er þetta satt ??

Britney Spears er að flippa endanlega yfir. Nýbúin að missa forræðið yfir börnunum og vill núna fara að ættleiða. Það er ekki öll vitleysan eins, ef að ég myndi missa forræðið yfir mínum börnum myndi ég ekki stökkva út í ættleiðingu. Myndi frekar reyna að fá eins mikinn tíma með börnunum og mögulegt væri. Mér finnst eins og hún sé að finna sér eitthvað annað í staðinn fyrir börnin, sem sagt setja sín börn í annan flokk.

Svo er heldur ekki að passa saman ættleiðing og jarðarför, hún er sem sagt að undirbúa jarðaförina sína líka......... ætli það taki því fyrir hana að ættleiða ef að hún ætlar að fara að hrökkva upp af ?? Ég held að hún hreinlega viti ekkert í sinn haus.


mbl.is Britney vill ættleiða kínverska tvíbura
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síminn er dýr.....

Það er ekkert skrítið að maður tími varla að tala í símann. Hvernig í andsk.... stendur á þessu ? Af hverju þarf alltaf allt að vera dýrara hjá okkur íslendingum heldur en nágrannaþjóðum ?? Af hverju er ekki hægt að hafa verð svipað og annars staðar ? Þetta er alveg óþolandi.
mbl.is Farsímaþjónusta dýrust á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég get ekki reykt á mig skalla.

Guði sé lof fyrir það þá er ég kvenmaður he he he strákar endilega lesið þettta ef að þið reykið.
mbl.is Reykja á sig skalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins kominn háttatími

Ég er fegin því að það er komið kvöld. Ég er búin að vera í bassli með soninn í dag, hann vildi ekki í skólann í morgun, hann ætlaði ekki í skólann í morgun og hann fór ekki í skólann í morgun. Ég veit ekkert hvað ég á að gera við hann, pabbi hans hringdi í kvöld og hann ætlar eitthvað að reyna að ræða við hann um helgina. Ég ætla að vona að það gangi eitthvað áður en ég hreinlega spring.

Annars var þetta frekar rólegur dagur. Ég þvoði 3 þvottavélar aðallega af undirdýnum, lökum og rúmfötum. Vaskaði upp í næði á meðan ég eldaði matinn í kvöld og svo eftir kvöldmatinn. Tók til í blessaðri ruslaskúffunni og henti og henti drasli úr henni. Ég skil ekki þessa endalausu söfnunaráráttu hjá mér. Taldi dósir og flöskur, en við erum einmitt að safna dósum of löskum og ætlum svo að fara í utanlandsferð fyrir ágóðann. Þá förum við saman ég krakkarnir, barnabarnið og tengdasonurinn. En það verður ekki fyrr en þar næsta sumar, þannig að við höfum nægan tíma til að safna.

Tumi og Patti voru svo ánægðir þegar við komum heim í gær og þeir eru ennþá að sniglast íkringum okkur og mala, Kormákur var einmitt að tilkynna mér fyrr í kvöld að hann vildi að hann væri Tumi. Þá væri alltaf verið að klappa honum og hann þyrfti ekki að gera annað en að borða, sofa og mala. Ég get ekki ímyndað mér að það sé skemmtilegt líf, þá held ég að ég kjósi frekar mitt þó að það sé einfalt og tilbreytingalaust.

Jæja, nógí bili. Ætla að fara að skríða undir feld. Takk fyrir lesninguna og góða nótt og bless þangað til næst.

Kv. Linda litla.


Jarðskjálftar..... Hjálp

Mér er eiginelga hætt að standa á sama, núna er landið allt farið að skjálfa. Ég er fegin á meðan ég finn ekkert, þar sem að mér er svoooo illa við þetta. En hvað ætli sé í gangi ??? Fyrst var það Selfoss, svo var það Vatnajökull og núna er farið að skjálfa á Hveravöllum.....

Ég segi nú bara ekki annað en HJÁLP !!!!


mbl.is Jörð skelfur við Hveravelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klikkað undir Hafnarfjalli

Fyrir utan það að það er ALLTAF helv.... rokrassgat undir Hafnarfjalli, þá var ég nú að koma frá Bifröst seinni partinn í gær og það var rosalega hvasst þar. Það tók ekkert smá í bílinn, ég hélt á tímabili að hann myndi hendast út í skurð í þessu klikkaða roki.
mbl.is Bíða veðurs í Borgarnesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband