Færsluflokkur: Bloggar
20.9.2008 | 17:40
Réttir og rigning....
Ég er stödd á Hellu núna. Það voru Reyðarvatnsréttir í dag, og þar sem að þetta veður getur ekki hagað sér almennilega þá er ég viss um að í þetta skiptið var bara fólk í réttunum sem að þurfti að vera þar. Það hafa nenfilega margir gaman af því að fara í réttir og taka þátt, en örugglega ekki margir í dag sökum veðurs.
Brjálað rok..... úrhelli, er málið á Hellu í dag. Ég er fegin að ég þurfi ekki að vera eitthvað úti, þar sem að ég á ekki pollagalla.
Ég átti mjög gott kvöld í gærkvöldi með mömmu, við spjöllaðum til miðnættis. Og í morgun héldum við áfram að kjafta. Það er gott finnst mér þegar maður á foreldra til að tala við, þá á ég við að það eru ekki allir tengdir sínum foreldrum. Það var ekki gott samband okkar á milli út af minni neyslu, en það er orðið allt annað núna. Og er sambandið búið að vera að styrkjast í allt sumar.
Núna skín "gula fíflið" enda réttirnar búnar. Ekkert réttarball á Hellu þetta árið, Hellubúm til mikillar ama. Það er annars mjög skrítið hérna á Hellu, það virðist vera svo mikið mál að fá leyfi fyrir balli hjá sýslumanninum, virkar eins og það sé verið að drepa niður allt skemmtannalíf hérna smátt og smátt.
Jæja... nóg um það, ég fer hvort eð er ekki á böll hérna og mér er eiginlega sama sjálfri en leiðinlegt fyrir þá sem að langar að gera eitthvað stöku sinnum.
Hef a næs dei pípol.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
19.9.2008 | 15:12
TIL HAMINGJU LJÓSMÆÐUR.
Jæja, það er gott að það er búið að semja. Þá ætti allt að fara að ganga sinn veg í starfi ljósmæðra.
Til hamingju með þetta ljósmæður !!
En þetta er nú loka föstudagsbloggið mitt. Ég er farin í helgarfrí frá tölvunni, er að fara að skella mér austur með Viggu og fjölskyldu.
Eigið þið ánægjulega helgi og farið varlega.
Enn og aftur til hamingju ljósmæður.
kv. Linda litla lipurtá.
Passið ykkur á því ef að ykkur verður komið á óvart um helgina. SURPRISE !!!
![]() |
Miðlunartillagan samþykkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.9.2008 | 13:54
Yndislegir gestir.
Það verður spennandi að sjá þessa þætti, hef yfirleitt gaman að sjónvarpsefni sem viðkemur tónlist. Vona ég samt að þeir verði endursýndir þar sem að ég sé aldrei sjónvarp um helgar, eða yfirleitt ekki.
Annars er Jónsi flottur og á alveg örugglega eftir að standa sig í þessum þáttum, vona bara að hann leggi ekki skóna á hilluna varðandi söng, því hann er mjög góður tónlistarmaður.
Jæja, það voru að fara frá mér gestir. Arna http://arnastjarna.blog.is/blog/arnastjarna/, Fríða Dís og Bjössi voru hjá mér í heimsókn. Vá það er svoooo langt síðan ég sá tvíburanam, og þeir hafa ekki stækkað neitt smá mikið og eru algjörar dúllur. Auðvitað var gripið í myndavélina, en set engar myndir inn núna. Skelli inn myndum af heimsókninni eftir helgi, þegar ég kem heim aftur.
Það er alltaf svo yndislegt að hitta hana Örnu, við getum alltaf talað saman, alveg sama um hvað, við getum talað endalaust, alveg sama hve lengi við hittumst í einu, það er samt alltaf of stuttur tími finnst mér. Doddi kom svo í smátíma í kaffi, en þau fóru fljótlega eftir að hann kom, einum kaffibolla síðar eða svo.
Jæja, gott í bili..... hafið það gott um helgina og farið varlega.
Kv. Linda litla.
![]() |
Jónsi: Verð að læra að hemja mig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.9.2008 | 08:29
Hvernig er hægt að vera svona vondur ??
Ég hef verið að hugsa um fórnarlömb ofbeldis undanfarna daga, eðlilega þar sem er búið að vera frétt um 3 börn sem hafa þurft að þola ofbeldi á heimilinu.
Mikið ofsalega held ég að börnin séu illa farin, bæði eftir að þurfa að þola ofbeldi og einnig fyrir að geta ekki hafa sagt frá þessu þar sem að þeim er greinilega hótað eða eru of hrædd við gerandann til þess að segja eitthvað.
Alltaf þegar að börn eiga í hlut, verð ég alveg brjáluð. Hvernig er hægt að gera saklausum börnum slíkt ??
Enginn á skilið að vera beittur líkamlegu eða andlegu ofbeldi.
Þessi þrjú börn sem eru í fréttunum núna, hafa gegnið í gegnum ýmislegt greinilega og hefur komið fram m.a. að eitt barnið sé með stungusár og er haldið að það hafi verið notað sem skotskífa......... hvað er að fólki ??
Hvernig er hægt að gera börnunum sínum svona ??
Hvað er að fólki sem að gerir svona ??
Ég vona svo innilega að þessi börn fái alla þá hjálp sem að þau þurfa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.9.2008 | 21:26
Góður dagur að enda.
Jæja, þá er komið fimmtudagskvöld á mínu heimili. Þegar við Kormákur komum heim úr judoinu þá settum við popp í skál og vatn í könnu og fundum spil og svo hlömmuðum við okkur niður við eldhúsborðið og fórum að spila, það var mikið gaman og mikið hlegið. Elska svona stundir sem við eigum saman. Nú judoið gekk vel hjá Kormáki og tók ég einhvern slatta af myndum á æfingunni.
Þarna að aðeins tekið á því á æfingunni áðan, það er svo gaman að fylgjast með á æfingu.
Þetta er málið...... eins og Kormákur orðaði það "kósý kvöld".
Svona var mesti tíminn af spilakvöldinu okkar, Kormákur alveg í kasti. Hann hlær svooo innilega þegar að hann byrjar og með rosalega smitandi hlátur.
Litla ömmumúsin að pósa fyrir þá gömlu.
Namminamm, svo fékk maður að gæða sér aðeins á vanilluskyrinu hennar ömmu.
Jæja...föstudagur á morgun og Kormákur fer til pabba síns, það þýðir að ég fer austur til pabba og mömmu.
Ég er búin að gera tvær tilraunir til að lesa fyrir enskuna, en það er ekki að virka. Athyglisbresturinn og einbeitingaskorturinn er alveg að fara með mig, ég er smá fegin að ég hafi ákveðið að taka bara eitt fag (fyrir utan íþróttir). Ég er alveg búin að sjá það að eitt fag er mikið meira en nóg fyrir minn veika haus. En ég ætla að reyna áfram, ég gefst sko ekki upp. María og fjölsk. verða hérna í heima hjá mér um helgina og ætla svo hún og Hjörleifur litli að vera eitthvað áfram fram í næstu viku og ég verð að fá hana til að hjálpa mér við þetta.
Segi þetta gott í bili, hafið það gott elskurnar.
Kv. Linda litla með trega hausinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
18.9.2008 | 14:21
Ísland- Pólland. Pólland here I come.
Matarkarfan hefur svo sannarlega hækkað undanfarna mánuði.
Frá því um miðjan apríl, þegar verð körfunnar var fyrst mælt, hefur
vörukarfa ASÍ hækkað um 7%-16% í flestum matvöruverslunarkeðjum. Mest er hækkunin tæp 17% í Kaskó og rúm 13% í Bónus en minnst hefur verð körfunnar hækkað í Hagkaupum um ríflega 5% frá því í apríl.
Þetta er mikil hækkun sérstaklega fyrir láglaunamanninn.
Mér verður hugsað til foreldra minna sem búa á Hellu og er það alveg svakalega dýr verslun sem enginn tímir að versla í og hún er kannski notuð í neyð..... en þá er ekkert til þar. Foreldrar mínir þurfa að keyra á Selfoss til að komast í Bónus. Á milli Hellu og Selfoss eru held ég 38 km. og er það þónokkur spotti þar sem bensínið er jú ekki gefið.
Ég vona svo sannarlega að þessi kreppa fari að ganga yfir. Ég spái því að næsta vor verði hún nánast gengið yfir.... ath ég er reyndar ekki góður spámaður hehehehe
Út í allt annað..... í gær bókaði ég ferð til Kraká hjá Heimsferðum. Ég og börnin mín tvö ætlum að skreppa til Kraká í 4 daga í nóvember. Ég hlakka alveg svakalega mikið til. Eftir helgi ætla ég að skella mér niðrí bæ og kaupa mér einhverjar bækur um Pólland sem segja mér hvað við getum skoðað þar.
Margir eru sjálfsagt hissa á því að við skulum fara til Póllands...... en af hverju ?? Hér á landi er allt fullt af pólverjum, af hverju ekki kynna sér þeirra heimaland ???
Ég segi ykkur frá því einhver tímann í næstu viku hvað er hægt að sjá spennandi og merkilegt þarna.
Nóg í bili.... er að hamast við að gera hómið mitt fínt, það gengur dúndurvel eftir að ég stillti Gullbylgjuna í botn.
rætí píbol.....
![]() |
Matarkarfan hækkar um 5-7% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.9.2008 | 08:58
Drama......glæstar vonir, haustið, gosið og fleira.
Þó að ég sé hálf vælandi yfir glæstum vonum þá ætla ég samt ekki að missa af þættinum í dag. Ég meina ég er vöknuð snemma á morgnana og hef ekkert betra að gera en að horfa á þetta, það er ágæt afþreying, þannig að ég sé það að ég get ekki málað mig fyrir klukkan 9 á morgnana, nema ég ætli að hafa svörtu taumana niður kinnarnar á mér það sem eftir er dags.
Ég er að byrja í GOS bindindi.... ég er búin að komast í gegnum einn dag, var smá pirruð í gær, held að það sé út af gosleysinu. Fékk ekkert koffein eins og ég er vön, er vön að byrja alla daga með sígó og gosi. Núna er það bara vatnsbrúsinn, ég skal, get og vil hætta í gosinu.
Ég var að spá í það að fara út með myndavélina mína í dag, en ég þoli bara ekki þetta rok.... það er reyndar engin rigning, alla vega ekki ennþá.... ætla að sjá til á eftir.
Eru annars ekki fallegu haustlitirnir komnir ?? Elska litadýrðina á haustin..... kannski þarf að bíða aðeins lengur eftir litunum, hef bara lent í því að hafa beðið of lengi og þegar ég fór af stað með vélina þá var allt fokið.
JÆja..... glæstar vonir eru að byrja.... sí jú folks !!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.9.2008 | 16:04
Tilfinningar......
Mínar nýjustu vangaveltur núna eru "tilfinningar". Ég hef verið að pæla í því undanfarið að það er einhver tilfinningasveifla í gangi hjá mér þessa dagana, en af hverju það veit ég ekki.
Ég er farin að fylgjast aðeins með sjónvarpi, sem er gott mál. Þá er ég ekki alltaf hangandi í tölvunni. Nema síðustu daga þegar ég horfi á imbann og það kemur eitthvað sorglegt eða fallegt..... kommon, þá þarf ég að berjast við tárin. Hvað ætli sé að ske með mig ??
Eitt dæmi..... ok, og þið fáið kast. Ég er aðeins farin að fylgjast með Glæstum vonum á morgnana á stöð 2 (okei, núna fá þeir sem þekkja mig alveg örugglega kast) . Ég fylgdist með þessum þáttum árið 2000 þegar ég var kasólétt og einnig eftir að ég átti Kormák. Þannig að ég man eftir flestum af þessum persónum. T.d. Stefanie... hún hefur alltaf farið í taugarnar á mér kerlingabeyglan, þarf að skipta sér af öllu, hefur alltaf rétt fyrir sér og ræður yfir öllum.
Núna er sú gamla komin sála (auðvitað Taylors) út af vandræðum í hjónabandi...... Taylor ráðleggur henni að hitta móður sína sem að hún hefur ekki hitt í 30 ár...... kommon, þetta er of erfitt fyrir mig að horfa á, ég verð að líta undan og kyngja. Ég er ekki að höndla svona.
Hvað ætli málið sé með mig ??
Þekkið þið svona tilfinningar ??
Er ég kannski að verða mannleg loksins ??
Finnst ykkur það eðlilegt að ég sé gráti nær þegar ég horfi á glæstar vonir ??
úffff..... ég er farin að væla, sí jú leiter.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
17.9.2008 | 12:47
Svakalegar skemmdir á vegum.
Þetta er svakalegt, svona leit þetta út eftir fárviðrið í nótt. Það er stórt skarð í veginum í botni Patreksfjarðar.
Það urðu miklar vegaskemdir á vestfjörðum í óveðrinu. Stór skriða féll meðal annars á veginn, sem liggur inn í Örlygshöfn á Patreksfirði og er hann alveg ófær.
Þetta er sem betur fer gengið yfir, en tjónið varð mikið.
![]() |
Miklar vegaskemmdir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.9.2008 | 08:52
Það vantar 80 milljónir.
Það er sorglegt að lesa þessa frétt, en í henni er talað við TRyggva Ingólfsson sem býr í Hvolsvelli. http://greenbrown.blog.is/blog/greenbrown/entry/642831/ þetta er dóttir hans og hefur hún Berglind verið að vekja athygli á þessari söfnun.
Það þarf að safna 80 milljónum til að hægt sé að senda 8 sjúklinga í tilraunameðferð, ég vona svo sannarlega að það eigi eftir að safnast.
Söfnunin er byrjuð í gegnum símann
904 1000
904 3000
904 5000
Ég er búin að leggja mitt af mörkum, munum að margt smátt gerir eitt stórt.
Á föstudagskvöldið verður svo bein útsending á stöð tvö þar sem söfnunin heldur áfram.
Hjálpum þeim að hjálpa öðrum.
![]() |
Vildi að ég fyndi til |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
bifrastarblondinan
-
doramaggy
-
halkatla
-
annabjo
-
diddan
-
ragjo
-
greenbrown
-
ingunnjg
-
katja
-
gullaeinars
-
siggathora
-
loathor
-
komaso
-
addabaldurs
-
raggafg
-
ollana
-
gelgjan
-
kruttina
-
arijosepsson
-
asthildurcesil
-
beggita
-
biddam
-
brandurj
-
brybba
-
skordalsbrynja
-
tungirtankar
-
jyderupdrottningin
-
rannug
-
topplistinn
-
gydadrofn
-
osland
-
hronnsig
-
hugarafl
-
danjensen
-
kliddi
-
ijt
-
keli
-
jonaa
-
ktomm
-
markusth
-
rebekkarut
-
roslin
-
sisvet
-
bogatun8
-
sikklida
-
scorpio
-
svala-svala
-
svetlana
-
taraji
-
skog3