27.8.2012 | 00:57
Doksi á morgun !!!! Hvað kemur til ?!?!?!??!?!?
Jæja viðbrögðin við nýju lyfjunum eru að breytast, ég er ekki eins sljó og ég var og mér er farið að líða betur. Á að mæta hjá doksa í fyrramálið og vonandi verða einhverjar ákvarðanir teknar og hann leyfi mér að fara að vinna, það er ekki hægt að vera svona aðgerðarlaus allan daginn. Annars er ég aðeins að virkjast, get vaskað upp, sópað, þvegið þvott en allt tekur þetta tíma hjá mér, er lengi en það hefst allt fyrir rest.
María og Ormabobbarnir komu í dag austur með Kormabobbann minn ;) Gott að fá hann heim fyrst að mér er farið að líða betur. er ekki að loka mig inni í herbergi allan daginn og sofa. Finnst samt einhver veginn að ég eigi langt í land í þessum niðurtúr mínum. Maður lærir líka víst alltaf meira og meira um sjálfan sig þegar maður er svona andlega veikur.
Ég er að velta því fyrir mér hvort að ég eigi að fjárfesta í nígótín juppliguppli á morgun, ég er búin að vera að reykja 2-3 pakka af sígarettum á dag undan farið og það er ekki að gera sig, veit samt ekki alveg hvort að þetta sé rétti tíminn að reyna að hætta núna þegar andlega hliðin er svona. Ég fór í apótekið um daginn að kanna verðið á juppligupplinu og það var minnir mig rúmlega 5000 kall, og ég tímdi því ekki....... komon, það er 5 pakkar af sígó. Juppligupplið endist a.m.k aðeins lengur. Það er greinilega eitthvað brenglaður hugsanaháttur hjá manni. Ætla að sofa á þessu í nótt og ákveða mig þegar ég kem frá doksa á morgun, ætti kannski að ræða þetta við hann í leiðinni hvort að þetta sé rangur tími til að hætta.
Jæja, er orðin frekar þreytt . Búin að gera fullt í dag þó að mér finnist ég ekkert gera hehehehe
Segjum þetta gott í dag, farin undir feld að sofa. Eigið góða drauma.
kv. Klikkaði geðsjúklingurinn :/
Nýjustu færslur
- 16.11.2014 That´s life my friends....... sometimes it SUCKS !!!
- 25.10.2014 já fyrirsögn..... gleymdi henni, veit heldur ekkert hvernig h...
- 23.10.2014 Ég skeit í deigið.... þið vitið hvað það þýðir er það ekki ?
- 21.10.2014 Ágætis fræðsla
- 21.10.2014 http://sykur.is/2014/1037/hvada-stjornumerki-passa-best-og-ve...
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.12.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 232867
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- bifrastarblondinan
- doramaggy
- halkatla
- annabjo
- diddan
- ragjo
- greenbrown
- ingunnjg
- katja
- gullaeinars
- siggathora
- loathor
- komaso
- addabaldurs
- raggafg
- ollana
- gelgjan
- kruttina
- arijosepsson
- asthildurcesil
- beggita
- biddam
- brandurj
- brybba
- skordalsbrynja
- tungirtankar
- jyderupdrottningin
- rannug
- topplistinn
- gydadrofn
- osland
- hronnsig
- hugarafl
- danjensen
- kliddi
- ijt
- keli
- jonaa
- ktomm
- markusth
- rebekkarut
- roslin
- sisvet
- bogatun8
- sikklida
- scorpio
- svala-svala
- svetlana
- taraji
- skog3
Athugasemdir
þú ert ekkert klikkaður geðsjúklingar mamma mín.lov u!!
Korri cool (IP-tala skráð) 27.8.2012 kl. 12:46
hahahahahaha....... lovjú tú !!
Linda litla, 27.8.2012 kl. 13:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.