Leita í fréttum mbl.is

Oj!!!! Ég flyt úr landi.

Er ekki verið að grínast ?? Ef að ég er hrædd við eitthvað, þá er það þetta helv..... og það er verið að flyjta inn 40.000 stk af þessu..... Ég ætla rétt að vona að þetta verði einhvers staðar hinu megin á landinu, þar sem að það hlýtur einvher að ætla að byrja á býflugnaræktun hérna. Hafði nú eiginlega haldið að hér væri of mikill kuldi.....

bombus_hortorum_220205

Ég er flutt..... farin úr landi, ég er svo hrædd við þetta. Það kæmi mér ekkert á óvart ef að eignadinn byggi á móti mér og þær myndu sleppa og fljúga allar til mín.

over and out HONEY..


mbl.is Býflugur fá leyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Skrýtið, ég er einmitt svolítill rasisti þegar kemur að flugum. Svartar ok, en röndóttar vekja alltaf skelfingu hjá mér.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 4.6.2008 kl. 22:31

2 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Þessar krúttlegu hlussur eiga að fara á suðurlandið,Helgi ætlar  að fara að framleiða hunang og þú átt að vera yfir-verkstóri í því dæmi tralllalala,þú færð meira að segja sér búning

Guðný Einarsdóttir, 4.6.2008 kl. 22:34

3 Smámynd: Linda litla

HA HA HA HA Gulla, þarna varstu svooo fyndin að ég hló upphátt hérna við tölvuna. Ég sé mig fyrir mér íröndóttum búning, alveg eins og stór randafluga. Já Anna mín, þá yrðir meira að segja þú hrædd við mig

En ég er svona, ég er skelfilega hrædd við þessar röndóttu hlussur. Það er ekkert sem að hræðir mig meira en þær.

Linda litla, 4.6.2008 kl. 22:41

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég vil nú frekar milljón svona kvikyndi frekar en skjálfta. 

Ásdís Sigurðardóttir, 4.6.2008 kl. 23:00

5 Smámynd: Linda litla

Svei mér þá.... ég held að ég sé hræddari við flugurnar heldur en jarðskjálfta.

En myndi ekki biðja um milljón skjálfta í staðinn fyrir eina flugu.

Linda litla, 4.6.2008 kl. 23:02

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Endilega fluttu til Noregs! Þar eru bara geitungar...

Róslín A. Valdemarsdóttir, 4.6.2008 kl. 23:08

7 Smámynd: Linda litla

Geitungar angra mig ekki... skil það ekki. Bara þessar röndóttu hlussur.

Linda litla, 4.6.2008 kl. 23:11

8 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

æi greyin óskup saklausar.

Gunnar Gunnarsson, 4.6.2008 kl. 23:12

9 Smámynd: Linda litla

Veit að þær eru meinlausar, ég er bara með randaflugu-phobiu.

Linda litla, 4.6.2008 kl. 23:14

10 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég er nú smeykari við geitunga en randaflugur, enda eru þeir mun árásagjarnari. Annars er mér mein illa við öll skordýr sem annað hvort bíta eða stinga, ég er með svo mikið ofnæmi

Sporðdrekinn, 4.6.2008 kl. 23:15

11 Smámynd: Linda litla

Þá er það eðlilegt að vera smeykur við skordýr. En ég er reyndar líka með Köngulóar-phobíu, höndla ekki einu sinni dordingla.

Linda litla, 4.6.2008 kl. 23:19

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ok ég flyt með þér.  Hvert eigum við að fara?  Hugs.. hugs... Svalbarða?  Ætli það séu pöddur þar?

Tékka

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.6.2008 kl. 23:24

13 Smámynd: Sporðdrekinn

 Fyrirgefðu en nú flissaði ég. Svona get ég verið mikið kvikindi þegar að málin snúa ekki að mér  

Annars er allt fullt af allskonar pöddu ættbálkum hér, ég get ekki einu sinni setið úti í garði á meðan ég smóka. Fæ þá bara bit í rassinn!  

Sporðdrekinn, 4.6.2008 kl. 23:25

14 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Hvaða hvaða,stelpur mínar,hunangsflugur og köngulær gera ekki flugu mein haha nema jú köngulærnar drepa flugur,,,

Guðný Einarsdóttir, 4.6.2008 kl. 23:28

15 Smámynd: Linda litla

Jenný við förum á norðurpólinn, ég trúi því ekki að það lifi flugur og skordýr þar. En verðum að muna eftir þvi að taka með okkur föðurland.

Það gat skeð að það væri púki í sporðdrekanum

Linda litla, 4.6.2008 kl. 23:28

16 Smámynd: Linda litla

Sko Gulla..... köngulær gera flugum mein.

Linda litla, 4.6.2008 kl. 23:29

17 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Já veit það en þær gera kannski ekki manni mein annað en að vefa sig út um allar svalir og urrr vefja sig um snúrurnar...skítt með flugurnar

Guðný Einarsdóttir, 4.6.2008 kl. 23:49

18 Smámynd: Dóra Maggý

mikið er ég sammál ykkur stelpur,ég hata mest helv... geitungana,þeir eru bara ógeðsleg kvikindi,þeir eyðileggja alla útiveru fyrir mér,áður en geitungarnir komu hingað hataði ég randaflugurnar.. en ekki lengur því að þeir tóku við hehehe... er maður ekki skrítinn ????   ef moskító flugurnar koma hingað þá fer ég út úr húsi á sumrin og öll samskiptin mín við fólk fara í gegnum tölvuna.. og hana nú !!! 

Dóra Maggý, 4.6.2008 kl. 23:51

19 Smámynd: Dóra Maggý

hahaha.. égmeina   þá ferég ekki út úr húsi allt sumarið.. sorrý   og ég mun horfa bara á náttúrumyndir í tölvunni.... ohhh það yrði bara sorglegt

Dóra Maggý, 5.6.2008 kl. 00:02

20 Smámynd: Aprílrós

Linda mín ! þú ert með svo mikið af skordýra matar-uppskriftum svo er ekki upplagt að veiða í matinn ???? hehehe. Velta þeim uppúr orly deigi og steikja, þá er komið hið fínasta snakk, rétt eins og með fíflana. Vala Matt lærði það af einni að steikja fifla hausana.

Aprílrós, 5.6.2008 kl. 00:14

21 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Hvernig er hægt að vera hræddur við litlu saklausu býflugurnar, mér þykir vænt um þær.  En vegna geitunganna í garðinum mínum hef ég vanrækt garðinn minn í nokkur ár

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.6.2008 kl. 00:58

22 Smámynd: Emma Vilhjálmsdóttir

æææ þær eru svo loðnar og flottar.  Fyrir tveimur árum síðan stakk ein hlussan mig og það var hrykalega sárt.  En... mér finnst þær samt eiginlega flottastar í teiknimyndunum og verð eiginlega að viðurkenna að ég er líka hrædd við þær

Emma Vilhjálmsdóttir, 5.6.2008 kl. 01:01

23 identicon

Mér finnst þessar stóru ( big mamas ) æðislegar dúllur!! En blesssaðir geitungarnir - úff en maður verður bara að muna að ef þessar elskur væru þurrkaðar út - þá væri heimurinn ekki lengi til, þær smáu halda uppi stórum hluta vistkerfisins...

alva (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 01:44

24 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ef þetta eru genabíflugurnar sem framleiða mikið af hunangi, líst mér ekki á þetta. Þær eru árásargjarnar og gera hópárásir á einn mann í einu. Vona bara að þetta séu "Normal" flugur. Það er víst ódýrir fuglaflensu kjúklingar í dag tilbúnir til útflutnings og innflutnings hingað. Ætli það verði ekki næsti innflutningurinn. Flest dettur fólki í hug...

Óskar Arnórsson, 5.6.2008 kl. 05:10

25 identicon

Æ mér finnast þessar flugur voða krúttlegar - en bara í fjarlægð sko!  En þessar sem er verið að flytja inn.....ER EKKI ALLT Í LAGI????? Til hvers eiginlega? Við höfum alveg nóg úrval af flugum hérna, takk kærlega.  Þurfum ekkert fleiri.

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 09:51

26 Smámynd: Linda litla

Markús: Ég myndi halda að þetta væru þessar flugur sem þú ert að tala um. Ég meina, ef að það er verið að flytja inn 40.000 bíflugur er það ekki í einum tilgangi ? Er það ekki fyrir hunangsframleiðslu ? Eða kannski bara til að hræða mig úr landi. hehe

Linda litla, 5.6.2008 kl. 10:49

27 Smámynd: Sporðdrekinn

Ég skil ekki af hverju það er leyft að flytja inn nýja dýrategund, hvað eina sem að gerir manni lífið leit!

Sporðdrekinn, 5.6.2008 kl. 13:58

28 identicon

Héddddna var einhver að tala um flugur

Iða Brá (IP-tala skráð) 5.6.2008 kl. 16:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband