Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Nú varð ég hissa..... og það skeður ekki oft.

Er þetta ekki grín ??

Tjaldstæðin eru eingöngu fyrir 23 ára og eldri nema.......... í fylgd með fullorðnum ?!?!?!?!!?!?

Dóttir mín má sem sagt ekki tjalda á Akranesi,( ef að henni dytti til hugar að fara í ferðalag í sumar) nema ég væri með henni. Reyndar er sambýlismaður hennar eldri en hún.... ætli það sé nóg ? En ef að hann væri að vinna mikið og hún myndi fara ein með barnið.... mætti hún ekki tjalda ??

Þetta er nú meiri (kúrva) vitleysan.

Ok, það er kannski bara verið að tala u m Írska daga, en kommon.....

family_tent_1


mbl.is Yngri en 23 ára bannað að tjalda nema í fylgd með fullorðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn fleiri látnir finnast.....

Tölurnar hækka bara og hækka og það ekkert smá á hverjum degi. 34.273 eru látnir í kjölfar fellibylsins í Búrma og samt eru enn 27,836 manns saknað ennþá.  1.5. milljón manns eru enn í lífshættu á hamfarasvæðinu. Þetta er svo hræðilegt.

Í Kína hækka tölur látinna líka, þegar ég bloggaði í gær voru 10.000 látnir, í fréttum í dag stendur að 12.000 séu látnir.

Biðjum fyrir þessu fólki. Biðjum saman þegar mikil þörf er á. Í kvöld ætla ég að kveikja á kertum fyrir fólkið.      

Copy of fasdr

Hugsum til þeirra sem minna mega sín.                                                                


mbl.is Yfir 34 þúsund látnir á Búrma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörmungar í heiminum.

23.000 manns létust í Búrma, 10.000 hafi látist í Kína. Náttúruhamfarir er miklar þessa dagana, tugir fólks deyr, þetta er sorglegt hvernig náttúran getur tekið mörg mannslíf. Óveður í Bandaríkjunum, þessu ætlar ekki að linna.

Hugsið ykkur þessar hörmungar, hugsið ykkur ef að þetta væri landið okkar. Ættingjar, vinir og fjölskyldur sem fólkið er að missa. Það hlýtur að vera brýn þörf á áfallahjálp á þessum stöðum. RauðiKrossinn er örugglega á fullu með sína sjálfboðaliða að hjálpa þessu fólki.

Við megum vera þakklát fyrir Rauða Krossinn. Ég man þegar að Suðurlandsskjálftinn reið yfir 17 júní 2000. Ég átti þá heima á Hellu, Kormákur minn var skírður þennan dag (mér var reyndar bent á það síðar að ég hefði átt að skíra drenginn "Skjálfti Richter"). Nema jarðskjálftinn var ekki þægileg upplifun, fólk ruddist út úr salnum þar sem skírnarveislan fór fram í  og það RUDDIST í orðsins fyllstu merkingu. Börn urðu undir þegar skírnargestir ruddu sér leið út. Ég og Garðar bróðir, tókum að okkur að fylgja/draga þá út sem frusu í sætunum. Ég var hrædd við jarðskjálftann en ekki svo mikið að ég missti mig. Mér fannst ég ein af þeim abyrgustu þarna, sem var í því að róa niður mannskapinn og hugga þá sem á því þurftu að halda.

Rauði Krossinn var með aðstöðu í skólanum og veitti þar fólki áfallahjálp sem á því þurftu að halda og það voru ansi margir. Rauði Krossinn er að vinna gott starf og er starfsfólkið sem aðstoðaði fólk var allt í sjálfboðavinnu.

Þessar hörmungar sem ríða heiminum á fullu núna eru skelfilegar en á svona stundum eigum við að hugsa til þessar góðgerðar......

e995a1a1f6f9be40


mbl.is 10 þúsund látnir í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju verður stolið næst ??

Ja hérna hér.... öllu er hægt að stela. ROTÞRÓ... hvað er að .

rotthro

Ég meina kommon... það er ekkert lítið mál að stela einu stykki rotþró. HA HA HA  HA afsakið mig, en ég er bara svo hissa að mér finsnt þetta bara fyndið.

Ég þarf einmitt að fylgjast með því þegar ég fer í heimsókn næst, mig vantar svo nýja klósettsetu hjá mér. Fattaði ekki að tékka á því þegar ég var á kaffihúsi í gær, kannski hefur setan þar verið eitthvað sætsýnisleg hehehe

bullírugl í mér

gúddbæ.....


mbl.is Rotþró stolið og sett niður í nágrenninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mæðradagurinn happadagur hjá sumum.

Ég verð nú að viðurkenna það að ég er ekki mikil fótboltaáhugamanneskja. En þegar ég rak augun í þessa frétt, þá datt ég ansi mörg ár aftur í tímann.

Ég er yngst í mínum systkynahópi, við erum fimm systkynin. Ég held að sem krakka og ungling þá hafi mér komið best saman við bræður mína. Þeir eru að verða 39 ára í júlí, eða 2 árum eldri en ég. Þegar ég var krakki þá fékk ég að vera með þeim í fótbolta, við vorum alltaf í garðinum heima á Heiðvangi með boltann. Alltaf einn í marki og tveir úti að keppast, markið var á milli tveggja trjáa. mamma var aldrei ánægð með okkur þarna útií garði og alltaf að skamma okkur fyrir að vera að skemma gróðurinn.

Nema ég var Manchester United aðdáandi, Helgi bróðir var Liverpool (líf er púl) og Garðar var Tottenham fan. Enginn okkar hélt með sama liðinu og aldrei vorum við sammála með nokkurn skapaðan hlut varðandi fótbolta. Þetta hefur gengið í einhver ár að við vorum í boltanum saman, þeir voru reyndar ósparir á að kalla mig tudda strákarnir, mér var alveg sama af því að ég gat sko alveg náð boltanum jafnt af þeim eins og þeir af mér. Svo breyttist þetta allt og Linda litla nennti nú ekki að vera alltaf í fótbolta, líkaði betur að vera kannski heima hjá Iðu Brá, við gátum verið úti að labba, fela okkur á bak við skúra og reykja, eða jafnvel á rúntinum með Steinari, Denna og Ása heitnum.

Það eru ekki mörg ár síðan að bræður mínir tjáðu mér það að ég hefði verið góð í fótbolta..... af hverju var mér aldrei sagt það ?? Þá hefði ég kannski haldið áfram að spila með og áhuginn orðið meiri. NEI.... aldrei fékk ég að vita þetta í æskunni. Ég er búin að sjá það út, að það er allt Helga og Garðari að kenna að ég er svona feit !!! Ef að þeir hefðu sagt eitthvað þegar ég var yngri þá væri ég örugglega fræg (grönn) fótboltastjarna á Spáni !!

afmæli Kormáks 046

Þetta eru hinir meintu FITUVALDAR mínir, þeir Garðar og Helgi.. Þeir fá EKKI prik dagsins.

Mér er alveg óhætt að púkast aðeins svona í þeim, þar sem að ég veit ekki til þess að þeir skoði/lesi bloggið mitt muhahahhahaha

En aðalmálið !!! Bloggfærslan átti víst aðallega að vera um "uppáhaldsliðið mitt" MANCHESTER UNITED. Þeir eru ensku meistararnir í knattspyrnu, annað árið í röð. Hver hefur svo alltaf haft rétt fyrir sér varðandi besta liðið ?? hehehe audda litla sys hún Linda  litla.

Ef að þið nenntuð að lesa þetta..... þá segi ég bara takk fyrir að nenna því.

Góða nótt og megi draumar ykkar vera fagrir. InLove

c_documents_and_settings_ingal_my_documents_my_pictures_pularar_sucks_382018

Hverjir eru bestir ??

 


mbl.is Manchester United er enskur meistari 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halló ! Vill einhver taka að sér einstæða móðir, er hress og skemmtileg. Bara soldið lonely.

Þetta er nú aldeilis búið að vera frábær dagur í dag. Ég drullaðist á fætur um hádegið, henti mér sturtu og fór svo fljótlega með Bínu út. Fórum niðrí bæ, hittum Brynju og svo fórum við vinkonurnar á Prikið að fá okkur kaffi, en Vigga var einmitt að vinna þar í dag.

Vá, þetta var geggjuð tilbreyting. Ég veit ekki hvað það er langt síðan að ég hef farið á kaffhús á Laugarveginum. Eins og Brynja sagði að ég ætti að fara að vera duglegri að koma niður í bæ. Ég var nefnilega alltaf í miðbænum, ég var hin eina sanna miðbæjarrotta. En nú er öldin önnur... Jæja, Vigga kom svo eftir vinnu að sækja garðhúsgögnin sín, en þau eru einmit búin að vera inni í stofu hjá mér síðan í síðustu viku og mín líka, þar sem að ég þurfti að tæma svalirnar svo að það sé hægt að vinna á þeim þarna úti. Núna er ég bara með mín garðhúsgögn, en það samanstendur af 3 manna bekk, 2 stólum og 1 borði. Ef að einvher hefur áhuga þá ætla ég að selja þetta fyrir litlar 2500 krónur. Þar sem að verið er að byggja yfir svalirnar mínar og ég bý uppi á þriðju hæð með engan garð.... þá hef ég ekkert með þetta að gera.

Annars er bara rólegt kvöld framundan hjá mér, þarf reyndar að hitta fólk í kvöld. Var einmitt að fá símtalið, verða þjóta.... fer á hjólinu mínu (nema hvað).

Eigið gott kvöld í kvöld og verið góð við hvert annað.

Kv. Linda litla.


Segist hafa þroskast mikið.

Hún segist hafa þroskast mikð, og eftir að fór í fast samband hafi hún mikið meiri áhuga á því að vera í góðra vina hópi heima að spila Matador heldur en að vera út á lífinu. Það verður gaman að fylgjast með henni Paris Hilton sjá hvað hún haldi Matadorið lengi út.

paris-hilton-set-for-scary-musical

Persónulega finnst mér það ekki mikið þroskamerki hjá fullorðinni konu að spila Matador LoL


mbl.is Spilar Matador
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fúll í fimm mínútur.

fdat4

Undarlegt hvað ég get látið þennan mann fara í mínar fínustu taugar. Nú legg ég ekki í vana minn að dæma fólk án þess að þekkja það, en hann er bara svo athyglissjúkur drengurinn og barnalegur, hann er eitthvað svo óþroskaður.

Þegar að kom í ljós að hans band lenti ekki í fyrsta sætinu, segist hann hafa verið fúll í fimm mín.

Hann er alveg viss um að við komust ekkert áfram.... greinilega af því að hann vann ekki. Hann er svo mikill egóisti og ánægður með sjálfan sig.... (gubb gubb).

Og til að kóróna allt þá lætur hann út úr sér: "Við erum líka langtum vinsælli en hljómsveitin sem vann" þetta hefur hann örugglega frá vinum sínum. Ég verð nú að viðurkenna að mér fannst lagið nokkuð skemmtilegt og Kormákur elskar það. En þetta er eiginlega bara kroppashow og sirkussýning (finnst mér og munið að við höfum ÖLL rétt á að hafa skoðun/álit).

Regína og Friðrik Ómar eru flott, ég ætla að vona að þeim eigi eftir að ganga vel, sem er nú ekki víst út af þessum austantjaldalöndum.... = klíkan.


mbl.is Skilja ekki Júróvisjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

piss piss og pelamá......

wc%20monobloc

Góðkunningi lögreglunnar braust inn í Baðhúsið í Brautarholti rétt fyrir klukkan fimm í morgun. Sagðist innbrotsþjófurinn bara hafa þurft að pissa....... he he he Ætli þetta hafi verið Lalli ??


mbl.is „Þurfti bara að pissa"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers á ég að gjalda ??

Ég er búin að vera með endalausar pestir í mánuð og er orðin ansi þreytt á þessu, ég hef nóg annað að gera við tímann en að vera alltaf lasin. Ég vaknaði í morgun eftir slæma nótt, alveg frá af hausverk, eyrnaverk og alveg frá í hálsinum og með hita. Halló !! er þetta ekki að verða ágætt hjá mér ?? Ég sem fæ nánast aldrei flensu eða pestar er búin að vera með svona ógeð í rúman mánuð. Jæja, ég staulaðist til læknis og þar fékk ég að vita að ég er með bullandi sýkingu í hálsinum, stíflaðar ennisholur, kinnbeinin stífluð og komin með í eyrun. Eftir læknatímann hjólaði ég í Hólagarð til þess að fara í apótek og leysa út lyfin sem mér voru ávísuð....... þau voru ekki til þar, ég stóð við aðgreiðsluborðið með bullandi hita, sveitt og óglatt og mig langaði hreinlega að fara að gráta. Nú ég fór heim, lagði mig í smátíma og fór svo niðrur í Mjódd áðan til að fara í apótek. Þar fékk ég lyfin. Núna var ég að detta inn úr dyrunum og ætla að gleypa í mig lyf og henda mér svo í sófann og horfa á dvd með Kormáki mínum.

Það er nú samt eitt gott búið að gerast í þessum veikindum, ég hef engu haldið niðri þar sem að Gullfoss og Geysir voru með völdin í ca. 10 daga. Ég er búin að missa 5 kíló í þessum veikindum mínum sem er sko EKKI slæmt, en það er samt helvíti hart að þurfa að vera veikur til þess að léttast eitthvað.

Nóg í bili.... ég ætla að fara að látta mér læknast, hafið það gott elskurnar mínar. Farið vel með ykkur.

rrewgr


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Linda litla
Linda litla

Linda litla er ung kona fædd á því herrans ári 1971, en kann það að vera hið merkilegasta ár mannkynssögunnar hingað til. Hún er tveggja barna einstæð móðir og amma. Á dóttur heitir María Hödd og er fædd 1987 og er í sambúð með Rúnari 1978 og eiga þau tvo syni, annar fæddur í januar 2008 og heitir hann Hjörleifur Máni, og hinn fæddur í apríl 2010 og heitir Jón Oliver. Einnig á hún son sem heitir Kormákur Atli og er fæddur árið 2000.

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband